Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Qupperneq 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Qupperneq 18
S íleski leikstjórinn Alejandro Jodo- rowsky kláraði kvikmyndina End- less Poetry með því að hefja söfnun í gegnum hópfjármögnun á Indie Gogo. Tökur á kvikmyndinni, sem er önnur í seríu sjálfsævisögu, hans drógu úr honum þrek og hann sér sér ekki fært að koma til Íslands í þetta sinn sem heiðurgestur RIFF. Í hans stað kemur til landsins sonur hans, Brontis Jodorowsky, sem lék meðal ann- ars í kvikmynd föður síns, El Topo, frá 1970 og mun svara spurningum áhorfenda og halda masterclass í tengslum við sýningar RIFF á Endless Poetry og Dance of Reality, sem er fyrsta myndin í sjálfsævisöguseríunni. Kvikmyndin The Holy Mountain frá 1973 er án efa frægasta mynd Jodorowskys. Hún er mjög súrrealísk könnun á dulspeki hins vest- ræna heims og alkemískum fræðum og myndi frekar teljast listaverk en bíómynd. Myndin var fjármögnuð af John Lennon og Yoko Ono á sínum tíma en Lennon hreifst mik- ið af myndinni El Topo sem Jodorowsky hafði gert. Framleiðandi hennar var Allen Klein sem var þekktur sem umboðsmaður The Roll- ing Stones og Bítlanna á seinni árum. Myndin sjálf fór hinsvegar ekki í dreifingu fyrr en í byrjun þessarar aldar og þykir meðal annars hafa haft mikil áhrif á einn þekktasta lista- manns samtímans, Matthew Barney. Jodorowsky er auk þess heimspekingur, leikari, galdramaður, Tarot-sérfræðingur, hann hefur einnig skrifað fjölmargar bækur, leikrit og teiknimyndasögur og það mætti lýsa honum sem einskonar spámanni samtímans. Jodorowsky komst einnig langleiðina að gerð kvikmyndarinnar Dune sem síðar var gerð af David Lynch. Úr því ferli var gerð heimildar- myndin Jodorowsky‘s Dune, heimild um bestu vísindaskáldsögumynd sem aldrei leit dagsins ljós. Jodorowsky fæddist í Chile árið 1929 en for- eldrar hans voru innflytjendur, gyðingar, frá Úkraínu. Hann hefur hinsvegar verið búsettur í París frá 24 ára aldri og það er til Parísar sem ég hringi á sólríkum eftirmiðdegi frá Reykja- vík. Kona kemur í símann og talar frönsku. Hún kallar: „Alejandro, c‘est le journaliste Isl- andais,“ og réttir honum símann. Umferðar- niður og væl í lögreglubílum heyrist í fjarska. Ég titra af kvíða en hann er strax afskaplega vingjarnlegur og talar með sterkum spænsk- um hreim. Hann biður mig að tala hægar og skýrar þar sem enska hans sé ekki mjög góð. Hr. Jodorowsky, kvikmyndin The Holy Mountain var sýnd í Reykjavík síðastliðinn vetur og það var slegist um miðana. Ég man eftir ungum manni sem hélt á miðanum sínum og starði á hann og sagði í sífellu: „Ég trúi þessu ekki, ég trúi þessu ekki.“ Hvers vegna heldur þú að þessi mynd hafi ennþá svona mik- il áhrif á fólk í dag? „Ég gerði þessa kvikmynd til að búa til list. Til að búa til eitthvað hreinskilið. Eitthvað sem skilur eitthvað eftir sig. Kvikmyndir sem eru gerðar í gróðatilgangi hafa stuttan líftíma, eft- ir svona tvo mánuði ertu búinn að gleyma um hvað myndin fjallaði. En þegar þú horfir á list, þá er listamaðurinn alltaf til staðar í henni, sí- breytilegur. Verkið verður lifandi, eins og mannvera, þegar það er hreinskilið. Ég held að ungt fólk sé oft að leita að kvikmyndum sem gefa því eitthvað, eitthvað sem er ekki bara af- þreying, heldur eitthvað skemmtilegt, sem vekur það. Ég geri aldrei leiðinlegar myndir. Ég geri sterkar, myndrænar myndir, list. Ég er ekki að búa til eitthvað til að græða á því, hvort sem það eru peningar, frægð eða að- dáun. Ég þurfti að bíða í þrjátíu ár eftir því að sýna Holy Mountain. Enginn vildi sýna þessa mynd og allir í kvikmyndaiðnaðinum hötuðu þessa mynd af því að hún aðlagaðist honum ekki. En unga fólkið sér þetta og skilur þetta.“ Býr ekki til kvikmyndir til að græða á þeim Þú þurftir að hópfjármagna Endless Poetry. Hvernig gekk það, og er eitthvert vit í því að búa til svona kvikmyndir í dag? „Ég segi nú að ég sé að gera þetta vegna þess að ég trúi því að líf mitt sé í listinni. Ég er listamaður, ég er ekki viðskiptamaður. Og þá er mér sama hvort ég græði peninga eða ekki, það eina sem skiptir mig máli er að geta búið til myndir og að finna peninga til þess að gera það. List er ekki viðskipti. Hópfjármögnunin gekk mjög vel. Ég var samt búinn að spara, ég hafði ekki gert kvikmyndir í tuttugu ár þar til ég gerði Dance of Reality en þá missti ég allt.“ Hann skellihlær. Og þú hlærð? „Já! Ég er að búa til kvikmyndir til að tapa peningum, ekki til að græða peninga.“ Og hann hlær ennþá meira. „Ég átti örlítinn pening til að byrja á næstu mynd. En ég hef ungan aðstoðarmann, Xavier Guerrero, sem sagði við mig að við gæt- um byrjað á henni, en aldrei klárað hana. Þá sagði ég honum að það væri fullt af bókum til í heiminum sem hefðu aldrei verið kláraðar, en þær hefðu samt notið mikilla vinsælda. Þannig að við byrjuðum, en svo á miðju ferlinu týndi ég tökuvélinni minni. Þá stakk hann upp á hóp- fjármögnun og það gekk mjög vel, við fengum í kringum eina milljón dollara og ég keypti nýja tökuvél. Ég kláraði myndina og varð að heil- ögum betlara!“ Hvers vegna ákvaðstu að gera sjálfs- ævisögulegar kvikmyndir? „Þegar ég var að gera fyrstu myndirnar mínar, The Holy Mountain, El Topo og Santa Sangre, þá var ég ungur og þekkti ekki þján- ingar lífsins. Þegar maður eldist þá missir maður hluti. Maður missir fjölskyldu og vini þegar þau deyja, maður missir líkama sinn, og þá uppgötvar maður sálina í sjálfum sér, og það sem býr í hjartanu. Þá færir maður fók- usinn frá höfðinu til hjartans og vill tala um til- finningarnar sem bærast í sálu manns og í hjartanu. Og hvaða tilfinningar talar maður um? Nú, sínar eigin. Og þá fer ég að segja sög- una um líf mitt og hvernig það var, vegna þess að sérhvert líf er eins og skáldsaga. Hver ein- asta manneskja, meira að segja leiðinlegasta manneskja sem þú þekkir, hefur eitthvað að segja. Þess vegna gerði ég þetta og er að gera.“ Ást er hinn raunverulegi sannleikur En titillinn, ertu að gefa í skyn að ljóðlistin sé óaðskiljanlegur hluti af þinni heimssýn? „Já, sjáðu til, þegar við tölum þá getum við ekki notað réttu orðin og fundið sannleikann. Vegna þess að tungumálið er ekki sannleik- urinn. Orð eru ekki sannleikur, þau eru að- gerð. Það eina sem mannveran getur fundið fyrir er fegurð. Það er ekki hægt að finna sannleikann, en það er hægt að finna feg- urðina. Og þess vegna er ljóðlistin mjög mik- ilvæg. Vegna þess að í gegnum hana nálgumst við sannleikann. Og hver er sannleikurinn, jú, að ég elska. Ég elska allt. Það er hinn raun- verulegi sannleikur. Mannleg ást, kosmísk ást, heilög ást. Og það er skilgreiningin á list. Svona byrjaði ég að gera þessar kvikmyndir í seríunni og ég ætla að gera eina enn og loka hringnum. Sú þriðja mun heita Essential Work og á sér stað í París og í Mexíkó.“ En ég hélt að þú ætlaðir að gera fimm? „Nei! Ég hætti við. Vegna þess að ég er að tapa svo miklum peningum,“ segir hann og skellihlær. „Sjáðu til, ég byrjaði á einhverju og get ekki klárað það af því ég get ekki betlað peninga frá öðru fólki alla ævi. Ég ætla hins- vegar að gera fjórðu myndina á eftir henni en það er teiknimynd, sem er framhald á El Topo, sonur El Topo. Það er ævintýri sem fjallar ekki um mig, það er kvikmynd sem hefur marga fleti og einn þeirra er flötur fyrir ungt fólk og kjánalegt fólk. Ég ætla að gera mynd sem meira að segja kjánalegt fólk mun elska. Og það er miklu auðveldara að afla peninga fyrir teiknimynd.“ Þessar nýjustu myndir þínar virðast hafa þann tilgang að lækna sárin og mögulega sætt- ast við föður þinn. „Já! Tilgangur listarinnar er að lækna sárs- auka og finna gildi okkar. Við erum að leita og að finna. Þegar maður horfir á stórkostlegt málverk þá snertir það við einhverju innan í okkur sjálfum, ekki satt? Við uppgötvum eitt- hvað nýtt. Með þessari mynd langar mig að sýna áhorfendum tilfinningar svo að þeir geti líka fundið tilfinningar innan í sjálfum sér.“ Les Tarot-spilin eins og tungumál Lækning, eða heilun, hefur orðið að stórum hluta af lífi Jodorowskys í kjölfar þess að son- ur hans, Teo, dó árið 1995. Jodorowsky átti einnig ofbeldishneigðan föður og kaldlynda móður sem eru þættir í ævi hans sem hann hefur verið lengi að vinna úr. Hann hefur þró- að ákveðna heilunaraðferð sem nefnist Psycho Magic, einskonar sálfræðigaldur sem hann segir hjálpa mörgum við að vinna úr sálrænum og líkamlegum kvillum. Getur þú útskýrt fyrir okkur þá heilunaraðferð sem þú hefur þróað og kallar Psycho Magic? „Það er erfitt að skilja þetta ferli af því að það er svo skrýtið. Ég hef alltaf heillast af sál- greiningu að hluta til og af göldrum að hluta til. Þessum fornu göldrum, þar sem fólk er læknað með furðulegum hlutum eins og snák- um eða köngulóm. Ég er með töluverðan leik- húsbakgrunn, ég tók þátt í um eitt hundrað spunaleiksýningum í Mexíkó. Það var um þetta leyti sem ég byrjaði að skapa Psycho Magic. Þetta snýst um að búa til myndlíkingar og skilja þær. Til dæmis, í sálgreiningarleik- húsinu myndir þú segja: þessi stóll, hann er móðir þín. Og svo byrjar þú að tala við stólinn og þú endar með að rífast við stólinn og hata hann. Þú getur líka notað ljósmyndir eða talað við gröf. Ef þú átt eitthvað óuppgert við mann- eskju sem er dáin, getur það haft heilandi áhrif að tala við gröfina, þar sem líkið liggur. Þetta virkar eins með lyfleysur, meðal sem er ekki meðal, þetta snýst allt um að breyta hvernig við hugsum. Þá byrjar maður að hugsa um heiminn á nýjan hátt, maður býr til ljóðlistina og maður getur breytt hlutunum. Það er Psycho Magic. Ég hef skrifað nokkrar bækur um þetta, lesið þær endilega.“ Ertu enn að lesa úr Tarot spilum fyrir gesti og gangandi á kaffihúsi í París? „Ég hef verið að nota Tarot-spil í fimmtíu „Ég geri aldrei leiðinlegar myndir“ Alejandro Jodorowsky er goðsagnakenndur, síleskur leikstjóri og nýjasta kvik- mynd hans, Endless Poetry, verður sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst í lok mánaðarins. Jodorowsky sem er orðinn 87 ára gamall segir að eini tilgangur sinn með því að gera kvikmyndir sé að búa til list og tilgangur list- arinnar sé að veita okkur innsýn í okkar eigið sjálf og fegurðina í kringum okkur. Anna Margrét Björnsson amb@mbl.is Ég uppgötvaði kvikmyndir Jodorowskys fyrir um átta árum og heillaðist af mynd- heimi hans sem er uppfullur af táknum, dulspeki og súrrealisma. Að spjalla við hann í síma var mjög merkilegt, hann var einlægur, hláturmildur og inspírerandi. Hann las þar að auki í Tarot-spil fyrir mig í gegnum símann sem var mögnuð upplifun. Jodorowsky hefur ver- ið of veikburða til að ferðast undanfarið og getur ekki mætt á RIFF en segist mjög glaður að Íslendingar geti horft á myndirnar hans. ’Þegar maður eldist þá missirmaður hluti. Maður missirfjölskyldu og vini þegar þau deyja,maður missir líkama sinn, og þá uppgötvar maður sálina í sjálfum sér og það sem býr í hjartanu. 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016 VIÐTAL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.