Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016 S nemma beygðist krók- urinn. Sex ára gamall gekk hann hús úr húsi í Vestmannaeyjum og seldi gellur. Fimmtán ára var hann orðinn kokkur á skipi, upp á einn hlut og kvart. Síðar var hann pikkaló á Borginni, þjónn á Grillinu á Hótel Sögu og haslaði sér völl í veitingahúsabransanum. Rekstur hefur verið hans ær og kýr og þegar Ólafur Laufdal hafði mest umleikis átti hann og rak fimm skemmtistaði, Sjallann, Broadway, Hótel Ísland, Hollywood og Hótel Borg, auk þess eitt stykki ferðaskrifstofu, Ferðaskrifstofu Reykjavíkur, og eitt stykki út- varpsstöð, Aðalstöðina. Að ógleymdri Fegurðarsamkeppni Ís- lands sem hann stóð fyrir um langt árabil. Ekki að ósekju að maðurinn hafi gengið undir nafninu „skemmt- anakóngur Íslands“. Fyrir um áratug dró Ólafur sig út úr öllum rekstri, söðlaði um og settist að í Grímsnesi. Var með því að virða vilja eiginkonu sinnar, Kristínar Ketilsdóttur, sem þótti nóg komið; bóndi hennar gæti ekki endalaust skilað sér heim úr vinnunni undir rauðan morgun. „Ég var alveg sammála því,“ segir Ólafur. „Alla okkar tíð hef ég haft miklu meira en nóg að gera og hún átti alveg inni hjá mér að ég hægði aðeins ferðina. Ég sá ekkert eftir því að draga mig út úr hringiðunni á þessum tíma. Ég var líka búinn að lofa konunni að við yrðum er- lendis tvo til þrjá mánuði á ári.“ – Hefurðu staðið við það? „Nei, nei!“ Hann glottir. Gisting fyrir um 200 manns Menn hlaupa nefnilega ekki svo auðveldlega undan eðli sínu og nú, áratug síðar, er Ólafur orðinn um- svifamikill gistibóndi í Grímsnesi. Raunar svo umsvifamikill að undr- um sætir. Þau Kristín hafa í sam- einingu reist heilt þorp á bökkum vatnsmestu bergvatnsár landsins, Sogsins, sem hlotið hefur nafnið Hótel Grímsborgir og var opnað árið 2010. Að frátöldu einbýlishúsi þeirra hjóna eru húsin á svæðinu tólf tals- ins, þar sem boðið er upp á gist- ingu fyrir um 200 manns í um 100 herbergjum. Gistirými þessa fjög- urra stjörnu hótels skiptast upp í superior-herbergi, junior-svítur, stúdíóíbúðir og lúxusíbúðir en Ólaf- ur upplýsir að megnið af gestum sé velefnað fólk. Stærst er 200 fermetra einbýlis- hús sem Ólafur sýnir sendinefnd Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins. Það nýtur víst mikillar hylli. „Segjum að þú verðir fimmtugur og viljir bjóða fjölskyldunni að njóta tímamótanna með þér í góðu yfirlæti. Þá er þetta upplagt!“ full- yrðir hann. Við þetta má bæta að 25 heitir Fer ekki í bæinn nema af nauðsyn Heilt þorp hefur risið í tengslum við Hótel Grímsborgir á umliðnum árum og frekari framkvæmdir á döfinni. Já, athafnamaðurinn Ólafur Laufdal er hvergi nálægt því að fella segl enda hlaupa menn ekki svo auðveldlega undan eðli sínu. Ólafur unir hag sínum vel fyrir austan og fer ekki í bæinn nema af nauðsyn. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Ragnar Axelsson rax@mbl.is Eitt af húsunum þrettán sem Ólafur hefur reist í Grímsborgum á undanförnum árum. Hann er hvergi nærri hættur. VIÐTAL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.