Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Side 18
S
íleski leikstjórinn Alejandro Jodo-
rowsky kláraði kvikmyndina End-
less Poetry með því að hefja söfnun
í gegnum hópfjármögnun á Indie
Gogo. Tökur á kvikmyndinni, sem
er önnur í seríu sjálfsævisögu, hans drógu úr
honum þrek og hann sér sér ekki fært að koma
til Íslands í þetta sinn sem heiðurgestur
RIFF. Í hans stað kemur til landsins sonur
hans, Brontis Jodorowsky, sem lék meðal ann-
ars í kvikmynd föður síns, El Topo, frá 1970 og
mun svara spurningum áhorfenda og halda
masterclass í tengslum við sýningar RIFF á
Endless Poetry og Dance of Reality, sem er
fyrsta myndin í sjálfsævisöguseríunni.
Kvikmyndin The Holy Mountain frá 1973 er
án efa frægasta mynd Jodorowskys. Hún er
mjög súrrealísk könnun á dulspeki hins vest-
ræna heims og alkemískum fræðum og myndi
frekar teljast listaverk en bíómynd.
Myndin var fjármögnuð af John Lennon og
Yoko Ono á sínum tíma en Lennon hreifst mik-
ið af myndinni El Topo sem Jodorowsky hafði
gert. Framleiðandi hennar var Allen Klein
sem var þekktur sem umboðsmaður The Roll-
ing Stones og Bítlanna á seinni árum. Myndin
sjálf fór hinsvegar ekki í dreifingu fyrr en í
byrjun þessarar aldar og þykir meðal annars
hafa haft mikil áhrif á einn þekktasta lista-
manns samtímans, Matthew Barney.
Jodorowsky er auk þess heimspekingur,
leikari, galdramaður, Tarot-sérfræðingur,
hann hefur einnig skrifað fjölmargar bækur,
leikrit og teiknimyndasögur og það mætti lýsa
honum sem einskonar spámanni samtímans.
Jodorowsky komst einnig langleiðina að gerð
kvikmyndarinnar Dune sem síðar var gerð af
David Lynch. Úr því ferli var gerð heimildar-
myndin Jodorowsky‘s Dune, heimild um bestu
vísindaskáldsögumynd sem aldrei leit dagsins
ljós.
Jodorowsky fæddist í Chile árið 1929 en for-
eldrar hans voru innflytjendur, gyðingar, frá
Úkraínu. Hann hefur hinsvegar verið búsettur
í París frá 24 ára aldri og það er til Parísar sem
ég hringi á sólríkum eftirmiðdegi frá Reykja-
vík.
Kona kemur í símann og talar frönsku. Hún
kallar: „Alejandro, c‘est le journaliste Isl-
andais,“ og réttir honum símann. Umferðar-
niður og væl í lögreglubílum heyrist í fjarska.
Ég titra af kvíða en hann er strax afskaplega
vingjarnlegur og talar með sterkum spænsk-
um hreim. Hann biður mig að tala hægar og
skýrar þar sem enska hans sé ekki mjög góð.
Hr. Jodorowsky, kvikmyndin The Holy
Mountain var sýnd í Reykjavík síðastliðinn
vetur og það var slegist um miðana. Ég man
eftir ungum manni sem hélt á miðanum sínum
og starði á hann og sagði í sífellu: „Ég trúi
þessu ekki, ég trúi þessu ekki.“ Hvers vegna
heldur þú að þessi mynd hafi ennþá svona mik-
il áhrif á fólk í dag?
„Ég gerði þessa kvikmynd til að búa til list.
Til að búa til eitthvað hreinskilið. Eitthvað sem
skilur eitthvað eftir sig. Kvikmyndir sem eru
gerðar í gróðatilgangi hafa stuttan líftíma, eft-
ir svona tvo mánuði ertu búinn að gleyma um
hvað myndin fjallaði. En þegar þú horfir á list,
þá er listamaðurinn alltaf til staðar í henni, sí-
breytilegur. Verkið verður lifandi, eins og
mannvera, þegar það er hreinskilið. Ég held að
ungt fólk sé oft að leita að kvikmyndum sem
gefa því eitthvað, eitthvað sem er ekki bara af-
þreying, heldur eitthvað skemmtilegt, sem
vekur það. Ég geri aldrei leiðinlegar myndir.
Ég geri sterkar, myndrænar myndir, list. Ég
er ekki að búa til eitthvað til að græða á því,
hvort sem það eru peningar, frægð eða að-
dáun. Ég þurfti að bíða í þrjátíu ár eftir því að
sýna Holy Mountain. Enginn vildi sýna þessa
mynd og allir í kvikmyndaiðnaðinum hötuðu
þessa mynd af því að hún aðlagaðist honum
ekki. En unga fólkið sér þetta og skilur þetta.“
Býr ekki til kvikmyndir
til að græða á þeim
Þú þurftir að hópfjármagna Endless Poetry.
Hvernig gekk það, og er eitthvert vit í því að
búa til svona kvikmyndir í dag?
„Ég segi nú að ég sé að gera þetta vegna
þess að ég trúi því að líf mitt sé í listinni. Ég er
listamaður, ég er ekki viðskiptamaður. Og þá
er mér sama hvort ég græði peninga eða ekki,
það eina sem skiptir mig máli er að geta búið
til myndir og að finna peninga til þess að gera
það. List er ekki viðskipti. Hópfjármögnunin
gekk mjög vel. Ég var samt búinn að spara, ég
hafði ekki gert kvikmyndir í tuttugu ár þar til
ég gerði Dance of Reality en þá missti ég allt.“
Hann skellihlær. Og þú hlærð? „Já! Ég er að
búa til kvikmyndir til að tapa peningum, ekki
til að græða peninga.“ Og hann hlær ennþá
meira. „Ég átti örlítinn pening til að byrja á
næstu mynd. En ég hef ungan aðstoðarmann,
Xavier Guerrero, sem sagði við mig að við gæt-
um byrjað á henni, en aldrei klárað hana. Þá
sagði ég honum að það væri fullt af bókum til í
heiminum sem hefðu aldrei verið kláraðar, en
þær hefðu samt notið mikilla vinsælda. Þannig
að við byrjuðum, en svo á miðju ferlinu týndi
ég tökuvélinni minni. Þá stakk hann upp á hóp-
fjármögnun og það gekk mjög vel, við fengum í
kringum eina milljón dollara og ég keypti nýja
tökuvél. Ég kláraði myndina og varð að heil-
ögum betlara!“
Hvers vegna ákvaðstu að gera sjálfs-
ævisögulegar kvikmyndir?
„Þegar ég var að gera fyrstu myndirnar
mínar, The Holy Mountain, El Topo og Santa
Sangre, þá var ég ungur og þekkti ekki þján-
ingar lífsins. Þegar maður eldist þá missir
maður hluti. Maður missir fjölskyldu og vini
þegar þau deyja, maður missir líkama sinn, og
þá uppgötvar maður sálina í sjálfum sér, og
það sem býr í hjartanu. Þá færir maður fók-
usinn frá höfðinu til hjartans og vill tala um til-
finningarnar sem bærast í sálu manns og í
hjartanu. Og hvaða tilfinningar talar maður
um? Nú, sínar eigin. Og þá fer ég að segja sög-
una um líf mitt og hvernig það var, vegna þess
að sérhvert líf er eins og skáldsaga. Hver ein-
asta manneskja, meira að segja leiðinlegasta
manneskja sem þú þekkir, hefur eitthvað að
segja. Þess vegna gerði ég þetta og er að
gera.“
Ást er hinn raunverulegi sannleikur
En titillinn, ertu að gefa í skyn að ljóðlistin sé
óaðskiljanlegur hluti af þinni heimssýn?
„Já, sjáðu til, þegar við tölum þá getum við
ekki notað réttu orðin og fundið sannleikann.
Vegna þess að tungumálið er ekki sannleik-
urinn. Orð eru ekki sannleikur, þau eru að-
gerð. Það eina sem mannveran getur fundið
fyrir er fegurð. Það er ekki hægt að finna
sannleikann, en það er hægt að finna feg-
urðina. Og þess vegna er ljóðlistin mjög mik-
ilvæg. Vegna þess að í gegnum hana nálgumst
við sannleikann. Og hver er sannleikurinn, jú,
að ég elska. Ég elska allt. Það er hinn raun-
verulegi sannleikur. Mannleg ást, kosmísk ást,
heilög ást. Og það er skilgreiningin á list.
Svona byrjaði ég að gera þessar kvikmyndir í
seríunni og ég ætla að gera eina enn og loka
hringnum. Sú þriðja mun heita Essential
Work og á sér stað í París og í Mexíkó.“
En ég hélt að þú ætlaðir að gera fimm?
„Nei! Ég hætti við. Vegna þess að ég er að
tapa svo miklum peningum,“ segir hann og
skellihlær. „Sjáðu til, ég byrjaði á einhverju og
get ekki klárað það af því ég get ekki betlað
peninga frá öðru fólki alla ævi. Ég ætla hins-
vegar að gera fjórðu myndina á eftir henni en
það er teiknimynd, sem er framhald á El Topo,
sonur El Topo. Það er ævintýri sem fjallar
ekki um mig, það er kvikmynd sem hefur
marga fleti og einn þeirra er flötur fyrir ungt
fólk og kjánalegt fólk. Ég ætla að gera mynd
sem meira að segja kjánalegt fólk mun elska.
Og það er miklu auðveldara að afla peninga
fyrir teiknimynd.“
Þessar nýjustu myndir þínar virðast hafa
þann tilgang að lækna sárin og mögulega sætt-
ast við föður þinn.
„Já! Tilgangur listarinnar er að lækna sárs-
auka og finna gildi okkar. Við erum að leita og
að finna. Þegar maður horfir á stórkostlegt
málverk þá snertir það við einhverju innan í
okkur sjálfum, ekki satt? Við uppgötvum eitt-
hvað nýtt. Með þessari mynd langar mig að
sýna áhorfendum tilfinningar svo að þeir geti
líka fundið tilfinningar innan í sjálfum sér.“
Les Tarot-spilin eins og tungumál
Lækning, eða heilun, hefur orðið að stórum
hluta af lífi Jodorowskys í kjölfar þess að son-
ur hans, Teo, dó árið 1995. Jodorowsky átti
einnig ofbeldishneigðan föður og kaldlynda
móður sem eru þættir í ævi hans sem hann
hefur verið lengi að vinna úr. Hann hefur þró-
að ákveðna heilunaraðferð sem nefnist Psycho
Magic, einskonar sálfræðigaldur sem hann
segir hjálpa mörgum við að vinna úr sálrænum
og líkamlegum kvillum. Getur þú útskýrt fyrir
okkur þá heilunaraðferð sem þú hefur þróað
og kallar Psycho Magic?
„Það er erfitt að skilja þetta ferli af því að
það er svo skrýtið. Ég hef alltaf heillast af sál-
greiningu að hluta til og af göldrum að hluta
til. Þessum fornu göldrum, þar sem fólk er
læknað með furðulegum hlutum eins og snák-
um eða köngulóm. Ég er með töluverðan leik-
húsbakgrunn, ég tók þátt í um eitt hundrað
spunaleiksýningum í Mexíkó. Það var um
þetta leyti sem ég byrjaði að skapa Psycho
Magic. Þetta snýst um að búa til myndlíkingar
og skilja þær. Til dæmis, í sálgreiningarleik-
húsinu myndir þú segja: þessi stóll, hann er
móðir þín. Og svo byrjar þú að tala við stólinn
og þú endar með að rífast við stólinn og hata
hann. Þú getur líka notað ljósmyndir eða talað
við gröf. Ef þú átt eitthvað óuppgert við mann-
eskju sem er dáin, getur það haft heilandi áhrif
að tala við gröfina, þar sem líkið liggur. Þetta
virkar eins með lyfleysur, meðal sem er ekki
meðal, þetta snýst allt um að breyta hvernig
við hugsum. Þá byrjar maður að hugsa um
heiminn á nýjan hátt, maður býr til ljóðlistina
og maður getur breytt hlutunum. Það er
Psycho Magic. Ég hef skrifað nokkrar bækur
um þetta, lesið þær endilega.“
Ertu enn að lesa úr Tarot spilum fyrir gesti
og gangandi á kaffihúsi í París?
„Ég hef verið að nota Tarot-spil í fimmtíu
„Ég geri aldrei
leiðinlegar myndir“
Alejandro Jodorowsky er goðsagnakenndur, síleskur leikstjóri og nýjasta kvik-
mynd hans, Endless Poetry, verður sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík,
RIFF, sem hefst í lok mánaðarins. Jodorowsky sem er orðinn 87 ára gamall segir að
eini tilgangur sinn með því að gera kvikmyndir sé að búa til list og tilgangur list-
arinnar sé að veita okkur innsýn í okkar eigið sjálf og fegurðina í kringum okkur.
Anna Margrét Björnsson
amb@mbl.is
Ég uppgötvaði kvikmyndir Jodorowskys fyrir um átta árum og heillaðist af mynd-
heimi hans sem er uppfullur af táknum, dulspeki og súrrealisma. Að spjalla við hann
í síma var mjög merkilegt, hann var einlægur, hláturmildur og inspírerandi. Hann las
þar að auki í Tarot-spil fyrir mig í gegnum símann sem var mögnuð upplifun.
Jodorowsky hefur ver-
ið of veikburða til að
ferðast undanfarið og
getur ekki mætt á RIFF
en segist mjög glaður
að Íslendingar geti
horft á myndirnar hans.
’Þegar maður eldist þá missirmaður hluti. Maður missirfjölskyldu og vini þegar þau deyja,maður missir líkama sinn, og þá
uppgötvar maður sálina í sjálfum
sér og það sem býr í hjartanu.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016
VIÐTAL