Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016
Upptökurnar sýna að HillaryClinton gat varla staðið ífæturna. Lífverðir og að-
stoðarmenn styðja Clinton og hjálpa
henni að skjögra inn í svarta smá-
rútu. Á augabragði hafa fleiri líf-
verðir bæst við hópinn, næstum eins
og til að byrgja myndavélunum sýn á
forsetaefni demókrata.
Þetta var á sunnudaginn, 11. sept-
ember, og Clinton var stödd í New
York á minningarathöfn um hryðju-
verkin sem höfðu skekið alla heims-
byggðina fimmtán árum áður.
Alltaf sitjandi?
Netheimar fóru strax að loga. Þetta
var ekki í fyrsta sinn sem eitthvað
virtist ama að Clinton. Gagnrýn-
endur hennar (og samsæriskenn-
ingasmiðir) höfðu bent á að hún sæ-
ist mun sjaldnar opinberlega en
keppinauturinn, og þegar hún stigi
fram í sviðsljósið virtist hún iðulega
þurfa að sitja eða styðja sig við hand-
rið. Sumum hefur þótt eins og móti
fyrir einhvers konar lækningatæki í
gegnum aðra buxnaskálmina.
Alla vikuna veltu andstæðingar
Clinton sér upp úr veikindum henn-
ar. Hægrisinnaði stjórnmálafrétta-
vefurinn PJ Media tók saman langan
lista yfir veikindi forseta-
frambjóðandans og ýmis atvik sem
bentu til slæmrar heilsu:
Árið 1998 fékk hún alvarlegan
blóðtappa í annan fótinn; 2005 féll
hún í yfirlið vegna magaveiki, 2009
þurfti hún að fara í aðgerð vegna
brákaðs olnboga og seinna sama ár
fékk hún annan blóðtappa; 2012 fékk
hún magavírus, féll í yfirlið, fékk
högg á höfuðið og heilahristing;
sama ár kom þriðji blóðtappinn; árið
2013 sást Clinton með sérstaka linsu
í gleraugunum sínum, að því er virð-
ist til að laga það að sjá tvöfalt. Varn-
armálaráðuneytið staðfesti að linsan
væri vegna afleiðinga heilahristings-
ins frá árinu áður; árið 2015 var upp-
lýst að hún þjáðist af vanvirkum
skjaldkirtli; undanfarin tvö ár hefur
Hillary í þrígang fengið mikil hósta-
köst á sviði.
Lætur lungnabólgu
ekki stoppa sig
Og veikindin þann 11. september?
Lungnabólga var það víst, þó að
starfsmenn Clinton hefðu í fyrstu
sagt fjölmiðlum að hiti og ofþreyta
hefðu verið ástæða aðsvifsins. Svo
kom í ljós að hún hafði raunar verið
greind með lungnabólgu tveimur
dögum áður, en vinnusemi og
þrjóska hefði orðið ofan á svo Clin-
ton mætti á athöfnina í New York og
reyndi að harka af sér.
Ekki minnkaði umræðan við
þetta: er ekki lungnabólga háalvar-
leg veikindi fyrir 68 ára konu? spurði
efasemdafólkið. Af hverju var hún
ekki lögð inn á spítala frekar en að
vera ekið á heimili dóttur sinnar?
Var það út af heilahristingnum hér
um árið að Clinton átti erfitt með að
muna ýmis mikilvæg atriði, stór og
smá, þegar rannsakað var hvernig
hún hafði geymt háleynileg gögn á
eigin netþjóni?
Sjónvarpslæknir rekinn
Það eru fleiri en samsæris-
kenningasmiðir sem hafa áhyggjur
af heilsu Clinton. Sjónvarpslækn-
irinn Drew Pinsky missti vinnuna
hjá CNN seint í ágúst eftir að hafa
tjáð sig um heilsu Clinton í morgun-
útvarpsþætti sem var sendur út um
miðjan mánuðinn. Pinsky hafði,
ásamt kollega sínum, farið yfir þau
heilsufarsgögn sem Clinton hefur
birt og þótti honum bæði tilefni til að
hafa áhyggjur af heilsu hennar og
ekki síður þeim lyfjum sem henni
höfðu verið gefin. Læknaskýrsl-
urnar sýndu að Clinton höfðu verið
gefnar úreltar lyfjategundir sem
gætu haft óæskilegar aukaverkanir.
„Að okkar mati er hún að fá lækn-
ismeðferð sem hefði verið veitt á 6.
áratugnum,“ sagði hann.
Einfaldar óákveðnum valið
Munu áhyggjur af heilsu Clinton
fjara út? Var þetta stormur í vatns-
glasi? Er nokkuð óeðlilegt að veikj-
ast endrum og sinnum? Myndi ekki
eitthvað láta undan hjá flestum sem
þyrftu að standa í þeirri þrotlausu
baráttu sem bandarísku forseta-
kosningarnar eru?
Ein besta greiningin á áhrifum
heilsufarsumræðunnar kemur frá
Scott Adams, höfundi teiknimynda-
sagnanna um Dilbert. Hann spáir
því að ímynd Hillary hafi skaðast of
mikið: hún hrundi niður á versta
stað, á versta tíma, svo að stór hluti
kjósenda tengir mögulega heilsu-
bresti hennar við það hvort hún geti
stýrt landinu á erfiðum tímum.
Vangaveltur um heilsu Clinton eru
líka einfalt smáatriði sem óákveðnir
kjósendur geta látið ráða vali sínu,
frekar en að þurfa að setja sig inn í
stefnu forsetaframbjóðendanna í
flóknum pólitískum hitamálum.
Fréttaskýrandinn Ben Swann tek-
ur í svipaðan streng, nema hvað
hann segir að mesti skaðinn sé vegna
þess að Clinton og fólkið í kringum
hana hafi ítrekað vísað vangaveltum
um heilsu hennar á bug og kallað
þær „ruglaðar samsæriskenningar“.
Nú þegar stoðum virðist hafa verið
rennt undir samsæriskenningarnar
um heilsuna, ætli sé þá kannski fótur
fyrir öllum hinum samsæriskenning-
unum líka?
Veik á
versta stað
á versta tíma
Veikindi Clinton um síðustu helgi gætu fælt
frá óákveðna kjósendur og gefið alls kyns
samsæriskenningum byr undir báða vængi.
AFP
Veikindi Hillary Clinton gætu kostað hana atkvæði óákveðinna kjósenda og eflt samsæriskenningasmiði.
’
Er Gary Johnson hraustasti
forsetaframbjóðandi allra tíma?
Fyrirsögn greinar í Men‘s Health um forsetaefni
Libertaríanista, en hann hefur m.a. klifið Everest
ERLENT
ÁSGEIR INGVARSSON
ai@mbl.is
BANDARÍKIN
PITTSBURGH Uber
hóf að bjóða upp á
leigubílaferðir með
sjálfakandi bílum eftir
tveggja ára prófanir.Til
að byrja með verða
tveir tæknimenn í
hverjum bíl til að grípa
inn í ef þurfa þykir.
ENGLAND
LONDON
Englandsbanki kynnti
nýjan fimm punda seðil
sem skartar ásjónu
Winston Churchill.
Seðillinn er gerður úr
plastefni, þolir þvott og á
að gera peningafölsurum
lífið leitt.
NOREGUR
BRYNE Dómstóll
úrskurðaði að norsk
hárgreiðslukona
skylldi greiða jafnvirði
140.000 íslenskra
króna í sekt fyrir að
eita að þjónn usta
múslimska konu með
-shíjab læðu.
ÞÝSKALAND
BAUTZEN Til
átaka kom milli
hælisleitenda og
þjóðernissinnaðra
öfgamanna í þýska
smábænum Bautzen.
Um 1,1 milljón flótta-
og farandfólks hefur
flust til Þýskalands.