Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016
Egill Helgason fjölmiðlamaður
auglýsir eftir frakka sínum á fés-
bókinni í vikunni. Frakkinn fannst
en Egill man bara ekkert hvar.
„Þetta eru frekar
pínleg minn-
isglöp. Snemma í
vor var ég í upp-
töku einhvers
staðar í bænum
og gleymdi
frakkanum mínum, dökkgráum ull-
arfrakka. Nokkru seinna hringdi í
mig kona og sagði að frakkinn væri
á ákveðnum stað í bænum. Ég var
á leið til útlanda og gat ekki sinnt
þessu. Nú er ég búinn að gleyma
hvaðan konan hringdi – og þ.a.l.
hvar frakkinn er. En það væri gott
að fá hann fyrir veturinn.“
Svo er alltaf hægt að kvarta smá
yfir vandamálum, stórum og
smáum, en Sara Dögg Svan-
hildardóttir
grunnskólakenn-
ari, sem er í 15.
sæti fyrir Við-
reisn í
Suðvestur-
kjördæmi, var
spæld að ná ekki miðum á Adele.
„Ég og Adele erum báðar í Bost-
on. Hún á tónleikunum sínum en
ég ekki. Bara ef fjandans netið í
háloftunum hefði verið aðeins öfl-
ugra og ráðið við vísagreiðsluna
þá væri ég þar.“
Jón Óskar
myndlistarmaður
er tortrygginn út
í tæknina og tel-
ur jafnvel að ein-
hver sé að reyna
að stöðva hann í að birta mikil-
vægar upplýsingar. „Nú er ég
snöggreiður og vænisjúkur; gmail-
inn er frosinn akkúrat þegar Jakob
Bjarnar Grétarsson rannsóknar-
blaðamaður átti von á upplýs-
ingum frá mér, listmálaranum.
Mikilvægar upplýsingar sem skipta
mig öllu og geta komið 365 loksins
á kortið sem menningarmiðli. Eru
þetta einhverjir helvítis njósnarar?
Hvað vilja þeir? Er til einhver
rannsóknanefnd myndlistar sem
lagar tölvuna?“
Lögmaðurinn Helga Vala
Helgadóttir notar fésbókina til
að auglýsa eftir iðnaðarmanni.
„Kæru FB vinir. Þekkið þið ekki
einhvern snilling sem getur lagað
hjá okkur eins og eitt stykki þak-
rennu? Held hún sé heil en
skökk … eða eitthvað.“
Rithöfundurinn Gerður
Kristný virðist
vera mjög nor-
ræn ef marka
má nýjustu fés-
bókarfærslu
hennar. „Ég var
gómuð á mynd í
Bókasafni Norræna hússins í
sænskum kjól, íslenskri lopapeysu
og danskri regnkápu að kynna mér
norrænt tískublað.“
AF NETINU
Margir virðast þrá að fá aðlifa eftir reglustriku.Miðstýrð hugsun Evr-
ópusambandsins svarar þessu
ákalli fullkomlega því samkvæmt
þeirri hugsun er öllu „mér finnst“
og „mig langar“ og „væri þetta
ekki skynsamlegt og eftirsókn-
arvert“ vikið til hliðar fyrir einni
reglu sem öllum beri að hlýða. Og
til að enginn þurfi að velkjast í vafa
um hvaða regla eigi við hverju
sinni, þá eru kvaddir til sérstakir
„fagmenn“ til að segja okkur
hvernig eigi að reka þjóðfélagið
upp á punkt og prik.
Nú berast þær fréttir að reglu-
meistarar í Brüssel hafi fundið það
út að óheimilt sé að banna innflutn-
ing á hráum eggjum til Íslands og
viti menn, fram spretta ein-
staklingar sem taka þessu fagnandi
og krefjast úrbóta þegar í stað!
Virðist þá engu máli skipta þótt
ekki finnist salmonellulbakteríur í
einu einasta eggi í íslenskri búð-
arhillu en eru hins vegar morandi í
þeim ríkjum sem hingað vilja selja
egg. Vissulega mun vera hægt að
sjóða salmonelluna til dauðs og
öðrum bakteríusjúkdómum er
hægt að halda niðri með lyfjagjöf.
Enda er það óspart gert þar sem
plágur geisa.
Staðreyndin er náttúrlega sú, og
það segja okkur sérfræðingar af
allt annarri tegund en fyrrnefndir
reglugerðafræðingar, að ástæðan
fyrir því að matareitranir eru ekki
eins tíðar hér á landi og annars
staðar, sé sú, að við búum yfir bú-
stofnum sem eru sjúkdómafrírri.
Þar af leiðandi er matvaran heil-
næmari og veldur síður kvillum.
Er þá hættulegt að borða í út-
löndum? Svona spyrja reglumeist-
arar gjarnan, gagnrýnendum sínum
til háðungar, eða hvort hættulegt sé
að flytja inn matvöru að utan? Svar-
ið hygg ég vera á þá lund að allt sé
þetta spurning um líkindi, því meiri
innflutningur, þeim mun meiri líkur
á smiti. Auðvitað hafa þjóðirnar lif-
að af sjúkdóma í matvöru, en þá
með tilheyrandi kveisum eða þá
lyfjagjöf.
Spurningin er hins vegar hvort
okkur finnist ekki rétt að reyna að
varðveita þá auðlind sem heilnæm
matvara óneitanlega er; og hvort
okkur finnist ekki eftirsóknarvert
að setja ofan í börnin okkar fæðu
sem heilnæmust er, hvort okkur
langi ekki til að hafa það þannig?
Eða langar okkur kannski til að
vera vél; hætta að hafa skoðun, láta
slíkt reglusmiðum eftir?
Þessa dagana hafa forystumenn
allra launaþegahreyfinganna og
atvinnurekendasamtaka, einka-
rekinna og opinberra, ferðast víða
um lönd til að sannfærast um að
rétt sé að útrýma kjarabaráttunni
og vélvæða allar ákvarðanir um
laun. Vinnuheiti þessara áforma er
SALEK. Þegar SALEK verði að
raunveruleika, er vonast til að öll
verkföll verði úr sögunni enda
verði nú allt ákveðið af fagmönn-
um á miðstýrðu borði. Talsmenn
atvinnurekenda, með úttroðin prí-
vatveskin sín, eru spenntir og fjár-
málaráðherra telur að hér með
verði vandi allra fjármálaráðherra
úr sögunni – engin verkföll framar
enda allur mannskapurinn hlekkj-
aður og blóðlaus í þokkabót eins
og vélar náttúrlega eru.
Svo fýsandi eru opinberir starfs-
menn að fá aðgang að vélrænum
kauphækkunum, að þeir bjóðast til
að semja niður lífeyrisréttindi – að
vísu ekki sín eigin – heldur þeirra
sem á eftir koma.
Þetta var reynt á níunda áratug
síðustu aldar en var afstýrt á síð-
ustu stundu. Fyrir vikið tókst að
stórbæta lífeyriskjörin og ýmis
önnur réttindi. Það kostaði bar-
áttu, marga fundi með miklu af
„mér finnst“ og „mig langar“.
Þannig var kúrsinum breytt, með
svita og ólgandi blóði. Það hefði vél
aldrei gert.
En viljum við vera vél?
Viljum við vera vél?
Getty Images/iStockphoto
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
’Nú berast þær fréttirað reglumeistarar íBrüssel hafi fundið það útað óheimilt sé að banna
innflutning á hráum
eggjum til Íslands og viti
menn, fram spretta ein-
staklingar sem taka þessu
fagnandi og krefjast úr-
bóta þegar í stað!
N
ýbýlavegur8.-200
Kópavogur-S:527
1717
-
dom
usnova@
dom
usnova.is
-w
w
w
.dom
usnova.is
Ábyrgðarmaður Domusnova: Haukur Halldórsson, hdl., lgf.
Lóðin er 131,5 fm eignarlóð á horni Grettisgötu og Vitastígs
SPENNANDI EIGN Á FRÁBÆRUM STAÐ Í MIÐBÆNUM.
OPIÐ HÚS N.K. SUNNUDAG Þ. 18. SEPTEMBER KL. 17-17:30.
EINBÝLISHÚS Á EIGNARLÓÐ VIÐ GRETTISGÖTU 47.
64.900.000 kr. 115,2 m2
Vilborg Gunnarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
vilborg@domusnova.is
S: 6918660
VETTVANGUR