Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Side 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Side 16
MÓÐURMÁLIÐ 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016 Svanhvít Lilja IngólfsdóttirÁrmann Jakobsson Á rmann Jakobsson, prófessor í ís- lenskum bókmenntum fyrri alda á Hugvísindasviði við Há- skóla Íslands, segir þó að engin hætta sé á að íslenskan deyi al- veg út. „Mér finnst hættan vera sú að íslensk- an takmarkist einhvern veginn, þ.e.a.s. að hún verði aðeins notuð á vissum sviðum mannlífs- ins. Annars staðar verði hún nánast horfin.“ Íslenskan má ekki einungis vera til á prentmáli Íslendingar eignuðust opinbera málstefnu í fyrsta sinn 12. mars 2009 þegar Alþingi sam- þykkti tillögur íslenskrar málnefndar að opin- berri stefnu í málefnum íslenskrar tungu. Í til- lögum hennar að íslenskri málstefnu segir: „Framtíðarhorfur tungumáls ráðast fyrst og fremst af stöðu þess innan málsamfélagsins en ekki af stærð málsamfélagsins. Ef tungumál er notað á öllum sviðum er staða þess sterk. Á hinn bóginn er staða hvaða tungumáls sem er veik ef það er ekki notað eða jafnvel ekki talið nothæft nema á sumum sviðum samfélagsins og það látið víkja fyrir öðrum málum. Staða ís- lenskrar tungu verður best treyst með því að nota íslensku sem víðast í íslensku samfélagi og á sem fjölbreyttastan hátt þannig að engin svið verði út undan. Þar er mikilvægt að þjóðin sjálf taki einarða afstöðu með íslenskri tungu.“ Stefnuskrá Málnefndar er endurskoðuð á fimm ára fresti, þar sem áherslur breytast en stefnan helst óbreytt. Málnefndin vill gera sérstakt átak í að ís- lenskan sé ekki einungis til á prentmáli. Ár- mann, sem er starfandi í nefndinni, segir að Ís- lendingar unni prentmáli mjög mikið en að það sé staðreynd að á næstu áratugum verði þeir með menningarneyslu sem að hluta til verði á gömlu miðlunum og að hluta til í gegnum ým- iss konar öpp. Hópur neytenda fari ekki leng- ur á bókasöfn heldur vilji fá hlutina inn á sím- ann sinn. „Við þurfum að vera með eitthvað handa þessu fólki,“ segir hann og bætir við að fólk megi ekki venjast allt of mikið á ensku. „Málnefndin reynir að vekja athygli á svona málum og efla umræðu. Við erum ekki alltaf með lausnir.“ Umdæmisvandi er stór ógn Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði á Hugvísindasviði við Háskóla Ís- lands, segist hafa áhyggjur af hinum svokall- aða umdæmisvanda. „Umdæmisvandi er sem sé hættan á því að íslenskan missi beinlínis ákveðin notkunarsvið til enskunnar, ann- aðhvort vegna þess að málnotendur kjósi fremur að nota ensku á ákveðnum sviðum eða þá vegna þess að þeir séu beinlínis neyddir til þess vegna þess að íslenska sé ekki í boði,“ segir hann. Val þurfi að vera um að nota ís- lenskuna og að það megi ekki verða þannig að við getum ekki notað hana. Þó að staðan sé ágæt eins og er hafi verið miklar breytingar á samfélaginu síðustu árin sem geti leitt til hnignunar á ýmsum sviðum íslenskunnar. Ármann segir að saga íslenskunnar sé mjög flókin. „Það sem er sérstakt við íslenskuna, finnst mér, er að 17. aldar íslenska er miklu ólíkari fornsögunum en 19. aldar íslenska.“ Á tímabilinu 1750 til 1850 hafi íslenskan breyst og verið hreinsuð. „Fornmálið verður mikill áhrifavaldur og smám saman breiðist út ís- lenska sem er mjög lík fornmálinu að mörgu leyti, með þeim afleiðingum að upp úr 1850 geta Íslendingar lesið fornsögurnar mjög létti- lega,“ bendir Ármann á. Hann telur að sambandi við fornsögurnar hafi verið komið á aftur og að nútímastafsetn- ing sé fornstafsetning. „Málbreytingar eftir 1400 eru meira og minna ekki inni í stafsetn- ingunni. Þannig að hver sem kann íslenska stafsetningu kann íslenskt 14. aldar mál,“ bæt- ir hann við. Stafsetning var ekki samræmd fyrr en á 19. öld. Ármann segir að m.a. hafi verið ákveðið að tengja saman 13. aldar íslensku og 19. aldar ís- lensku. Stafsetningarreglum sé í raun komið á að ofan og við fáum forníslensku í kaupbæti. „Þessi tenging er að rofna að einhverju leyti. Það er hætta á að ný nútímaíslenska verði til sem sé ekki eins og 1920.“ Börn og gamalmenni skilji hvert annað „Það má alltaf velta fyrir sér hreintungustefnu almennt. En öll svona samræming kemur á tengslum. Ef íslenskan er íhaldssamt mál þýð- ir það að börn og gamalmenni skilja hvort ann- að,“ segir Ármann. „Málþróun er í sjálfu sér ekkert slæm en hún veldur alltaf óþægindum af einhverju tagi.“ Þetta þýðir ákveðið sam- bandsleysi. Hreintungustefnan hefur skapað samband milli fólks, að hans mati. Misjafnar skoðanir eru á hreintungustefn- unni. Í íslenskri tungu hafa málbreytingar ver- ið stoppaðar og ekki finnst öllum það gott. Kristján Jóhann Jónsson, dósent í íslenskum bókmenntum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, telur það að vera með gegnheilt tungumál einungis hugmynd. „Norðmenn hafa þá hugmynd að það sé mik- ils virði að varðveita allar mállýskur og öll til- brigði í málinu. Þannig að þeir hugsa þetta al- veg fullkomlega þvert á okkur og lifa ágætu lífi,“ segir hann. Þarna þyrftum við að sjá okk- ur í samhengi. „Á milli kynslóða er alltaf eðlileg breyting, þ.e. atvinnuhættir hverfa og orðaval hverfur og annað kemur í staðinn. Tungumálið er alltaf að breytast. Það er alveg öruggt mál. En hversu mikil breytingin er eða hvort hún skipt- ir máli er miklu erfiðara að átta sig á,“ segir Kristján. Að snappa, fótósjoppa og gúggla Að sögn Eiríks eru dæmi um veiklun í kerfinu okkar, en það eru orð eins og töff, næs og kúl sem venjulega eru notuð óbeygð í íslensku. En oftast ef tökuorð fá einhverja útbreiðslu falli þau í flestum tilfellum inn í beygingarkerfið. „Má þar nefna nafnorðið snapp, það fær ís- lenskan framburð, rímar við happ. Það fær hvorugkyn og greini, við tölum um snappið og það breytir a í ö í fleirtölu eins og hvorugkyns- orð gera, við tölum um mörg snöpp. Slettur koma helst inn í máli unglinga. Ef þær sem lifa laga sig að beygingakerfinu, eins og orðin snapp, fótósjoppa, gúggla og ótalmargar aðrar sé ég ekki að þær valdi miklum skaða,“ segir Eiríkur. Ferðamannastraumurinn hefur mikil áhrif, að mati Eiríks. Verslanir og veitingastaðir séu margir farnir að höfða til ferðamanna með auglýsingum, matseðlum og ýmsum upplýs- ingum sem séu á ensku og íslenskunni jafnvel sleppt. Segir Eiríkur vita til þess af eigin raun að veitingastaður í miðbænum hafi matseðilinn aðeins á ensku og allt starfsfólkið tali einungis ensku. „Við erum með milljón ferðamenn á hverju ári. Það þýðir að ansi mörg tungumál eru töluð hér. Og okkur finnst fólk grandalaust gagn- vart þessu,“ segir Ármann. „En maður spyr sig; eru þessir ferðamenn virkilega komnir hingað og vilja ekki sjá móðurmálið? Af hverju er fólk að ferðast yfir höfuð ef það fær aðeins ensku alls staðar? Þurfum að geta talað við tækin Framfarir í talgreiningu og talstýringu eru miklar og von bráðar má búast við að ýmsum algengum heimilistækjum verði stjórnað með því að tala við þau. Eiríkur segir þurfa átak á sviði íslenskrar máltækni til að sporna við þessari þróun. „Það þarf fé til að útbúa ákveð- in gögn og vinna ákveðna tæknivinnu. Verði þetta ekki gert er hætta á að íslenskan missi stórt notkunarsvið yfir til enskunnar. Fyrsta skrefið er að málnotendur og stjórnvöld átti sig á þeim gífurlegu breytingum sem hafa orð- ið á umhverfi og aðstæðum íslenskunnar á ör- fáum árum, til hvers þær gætu leitt, og hvern- ig hægt væri að bregðast við.“ Risarnir vilja íslensk stýrikerfi Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir, þýðandi og ís- lenskufræðingur, hefur fengist við þýðingar fyrir stórfyrirtæki á borð við Microsoft, Google og Samsung. Þeir hafa séð hag sinn í því að þýða hugbúnað og stýrikerfi sín yfir á ís- lensku. Svanhvít hefur ekki neina haldbæra skýringu á því aðra en að Íslendingar séu góð- ir viðskiptavinir. „Það er mjög dýrt fyrir þá að þjónusta okkur á þennan hátt,“ segir Svanhvít og bendir á að þessi fyrirtæki hafi ekki séð sér hag í að þýða fyrir lönd sem eru mun stærri en Ísland. Hún segir að ótrúlega mikið sé þýtt yfir á ís- lensku miðað við stærð landsins. Apple-fyrir- tækið hafi aftur á móti ekki séð hag sinn í því að íslenska stýrikerfið sitt. Þýðingarvélar koma aldrei í staðinn fyrir þýðendur Tæknibreytingar eru hraðar og Íslendingar þurfa að fylgja þeim eins og aðrir ef þeir ætla ekki að heltast úr lestinni, að mati Svanhvítar. Önnur lönd hafi tæknivætt þýðingarkerfin sín og vélþýðingar séu algengari en áður. Með þýðingarvél sé hægt að margfalda þann orða- fjölda sem þýddur var áður með hefðbundnum hætti. „Þýðingarvélar af þessu tagi eru dýrar. En þær geta skorið úr um það hvort við fylgj- um eftir þróuninni eða ekki. Slíkar vélar koma aldrei í staðinn fyrir þýðendur en flýta mikið fyrir. Afleiðingarnar verða þær að stóru fyrir- tækin vilja ekki lengur eiga viðskipti við okkur því að mannlegu þýðingarnar eru miklu dýrari en þær vélrænu. Það sem gerist er að öll stýri- kerfi verða á ensku og við töpum íslenskunni á þessum vettvangi,“ segir hún. En allt kostar þetta peninga og Íslendingar Er íslenskan að deyja út? Á tímum alþjóðavæðingar og tæknibyltinga hafa komið upp vangaveltur um stöðu íslenskrar tungu. Hún er talin vera undir meiri þrýstingi en oft áður. Tunga sem aðeins rúmlega 300.000 manns tala er líklegri til að eiga undir högg að sækja og jafnvel hverfa smám saman. En nákvæmlega hvaða ógn steðjar að íslenskunni? Á óeðlileg þróun sér stað og ef svo er, hvað er hægt að gera til að sporna við henni? Bára Huld Beck og Bergþóra Jónsdóttir Fátt er íslenskara en sauðkindin nema ef vera skyldi íslensk tunga. ’Að rita íslenskuer ekki aðeinseitthvað sem rithöf-undar og bók- menntafræðingar þurfa að kunna. ’Forsendan fyrirþví að íslenskanlifi góðu lífi er aðforrit og stýrikerfi séu á íslensku.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.