Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Side 21
18.9. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Í tilefni sýning-
arinnar Öld
barnsins: norræn
hönnun fyrir
börn frá 1900 til
dagsins í dag í
Norræna húsinu
hafa Norræna
húsið og End-
urrmenntun efnt
til námskeiðs sem Sigga Heimis
iðnhönnuður stýrir. Á námskeiðinu
skyggnast nemendur inn í heim
skandinavískrar hönnunar undir
leiðsögn Siggu sem starfaði meðal
annars hjá IKEA og Fritz Hansen.
Námskeiðið er mánudaginn 26.
september frá klukkan 19:00 til
22:00 og mánudaginn 10. október á
sama tíma.
SKOÐA SKANDINAVÍSKA
HÖNNUN
Sigga Heimis
Hönnun með
Siggu Heimis
Katrín Ísfeld innanhúss-arkitekt hefur orðið þessvör að mínimalískur stíll
inni á heimilum sé á undanhaldi og
afslappaðri og litríkari stíll að koma
sterkur inn. „Það má segja að að-
altrendið þessa stundina sé breiðari
litaflóra. Það hentar mér mjög vel
þar sem ég hef alla tíð unnið mikið
með liti. Svo eru plöntur, borð-
lampar, fallegir skrautmunir og
speglar að koma inn á heimilin í
auknum mæli. Heimilin eru loksins
að verða afslappaðri og fjölbreytt-
ari.“
Kúnst að nota nokkra liti
saman í einu rými
„Litaflóran sem er í tísku núna er
afskaplega áhugaverð, mikið af
djúpum sterkum litum á móti ljós-
ari gráum og sandlitum. Þar má
nefna grænbláan og dökkvínrauðan
sem dæmi,“ útskýrir Katrín sem
segir einnig bleik-appelsínugula liti
vera að ná auknum vinsældum á
meðan hvíti liturinn fær smá hvíld.
„Í stað þess hvíta kemur ljósgrár
og sandlitir sem eru svo flottir á
móti þessum djúpu dökku tónum.“
Katrín segir þó að það sé mikil
kúnst að nota nokkra liti saman í
einu rými. „Það krefst þess að þeir
séu settir skemmtilega og vandlega
saman, það er krefjandi að nota
marga ólíka liti svo útkoman verði
flott,“ segir Katrín sem tekur því
fagnandi að íslensk heimili séu að
verða miklu litríkari en áður fyrr.
Dugleg að vinna með liti á
eigin heimili
Katrín kveðst vera dugleg að mála
og vinna með liti heima hjá sér.
„Það er ekkert skemmtilegra en að
gera tilraunir á sínu eigin heimili.“
Í stað þess að skipta út húsgögnum
þegar hún vill breyta til þá kýs hún
frekar að mála og punta heimilið
með fjölbreyttum og flottum hlut-
um. „Ég er dálítið púðasjúk og er
alltaf að freistast í þeim efnum. Ég
er einnig veik fyrir alls konar fal-
legum hlutum eins og vösum og
ljósum. Ég er ekki mikið í að
skipta út húsgögnum því ég vil eiga
frekar góð og klassísk húsgögn sem
lifa og eldast vel,“ segir Katrín og
bendir á að svo sé alltaf hægt að
fríska upp á stóla og sófa með því
að láta bólstra þá. „Já, ég er nýbú-
in að láta bólstra „rokkara“-stól
með brjálæðislega flottu áklæði,
það er algjört listaverk. Þessi stóll
er æði á móti svarta klassíska leð-
ursófanum mínum. Þetta þarf allt
að spila vel saman þannig að allir
hlutir nái að njóta sín vel, það er
ekki nóg að vera frakkur og frum-
legur og setja fullt af ólíkum hlut-
um saman. Það þarf að finna
ákveðið jafnvægi.“
Djúpir litir koma sterkir inn
Morgunblaðið/Ófeigur
Dökkblár veggur skapar hlýlegt yf-
irbragð í vinnuherbergi.
Innanhússarkitektinn Katrín Ísfeld segir liti vinsæla í innanhússtískunni um þessar mundir. Katrín kveðst vera dugleg að mála og
vinna með liti bæði í verkefnum og heima hjá sér og tekur því fagnandi að íslensk heimili séu að verða miklu litríkari en áður fyrr
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Katrín Ísfeld innan-
hússarkitekt segir
afslappaðri og litrík-
ari stíl vera að koma
sterkan inn.
Fáðu Opn heyrnartæki til prufu í 7 daga.
Tímapantanir í síma 568 6880.
www.heyrnartaekni.is
Fullkomnustu heyrnartækin frá Oticon
Prófaðu nýju Opn
heyrnartækin í 7 daga
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Nýtt heyrnartæki.
Sannað að auðveldi
heilanum að heyra.
meðBrainHearing™ tækni
Heilinn vinnur á ótrúlegum hraða við að greina úr hljóðum. Nú getur þú fengið heyrnartæki
sem heldur í við hann! Nýju Opn heyrnartækin frá Oticon búa yfir BrainHearing™ tækni
sem vinnur úr hljóði á ofurhraða. Rannsóknir hafa sýnt að með Opn heyrnartækjum batnar
talskilningur um 30%*, áreynsla við hlustun minnkar um 20%* og þú manst um 20% meira
af samtölum þínum**. Opn heyrnartækin létta á álagi við að heyra og auðvelda þér að fylgja
samræðum í krefjandi hljóðumhverfi.
* Borið saman við Alta2 Pro heyrnartæki. | ** Ávinningur einstaklinga getur verið breytilegur og er háður tæki sem hefur verið notað.