Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016
HÖNNUN
Þau Alexander sem vinnur í fjár-málageiranum og Ester semer með BA-gráðu í félagsfræði
og er heimavinnandi sem stendur
hafa haft í nægu að snúst þar sem þau
tóku íbúð sína algerlega í gegn.
Parið keypti íbúðina, sem er frá
árinu 1980, í upprunalegri mynd og
hentu nánast öllu út og byrjuðu nokk-
urnveginn á núllpunkti.
Meðal annars skiptu þau um stiga,
gólfefni og endurgerðu eldhús og
baðherbergi frá grunni.
„Ég var með ákveðnar hugmyndir
í kollinum þegar við fórum af stað en
fann fljótt að það þýddi ekki að festa
sig of mikið við þær. Sumu fylgdi ég
eftir en margt þróaðist í allt aðra átt.
Það er að mörgu að huga þegar
kemur að því að innrétta heila íbúð,
mér fannst boltinn fyrst fara að rúlla
þegar ég fann mér útgangspunkt til
að vinna út frá en ég byrjaði á að velja
gólfefni og síðan kom eitt af öðru,“
svarar Ester og bætir við að henni
finnist mjög mikilvægt að skápapláss
sé nóg enda eldhúsinnréttingin teikn-
uð með það í huga og það sama gildir
um fataskápana.
Ester segir stílinn á heimilinu
nokkuð skandinavískan, einfaldan,
bjartan og mínimalískan.
„Ég legg mikið upp úr því að hafa
hreint í kringum mig og einfaldleik-
inn hjálpar til við það. Ég vel að hafa
húsgögnin hvít en brýt þau upp með
gráum tónum. Hvítur og grár er gott
„combo“. Það er þó örlítið meiri lita-
gleði í barnaherbergjunum þar sem
bleikt og gulllitað kemur sterkt inn,“
segir Ester sem hefur jafnframt ein-
staklega gaman af því að dúllast í her-
bergjum dætra sinna. „Þar er enda-
laust hægt að breyta og bæta og ég
hreinlega elska allt dúlleríið sem
fylgir því að eiga þrjár prinsessur.“
Aðspurð hvar parið versli helst inn
á heimilið segir Ester þau versla mik-
ið í IKEA og er stór hluti húsgagn-
anna þaðan. „Við eigum marga fal-
lega skrautmuni úr Epal og Líf og list
og svo er Söstrene Grene alltaf í
miklu uppáhaldi sem og Ilva og Hús-
gagnahöllin.“
Ester hefur jafnframt gaman af því
að skoða Pinterest og hefur fengið
margar góðar hugmyndir þaðan í leit
að innblæstri. „Það var einstaklega
hjálplegt að notast við Pinterest þegar
kom að því að gera upp íbúðina. Það er
líka auðvelt að eyða heilu kvöldunum í
að skoða fallegar myndir á Instagram.“
Ester Bergmann er jafnframt dugleg að
birta fallegar myndir af heimili sínu á In-
stagram undir nafninu Esterbergmann88.
Falleg uppröðun á hvítum kommóðum í svefnherbergi parsins.
SKANDINAVÍSKUR STÍLL Á SELTJARNARNESI
Einfalt, bjart og
mínimalískt
Ester Bergmann Halldórsdóttir og Alexander Hjálmarsson hafa undanfarna
mánuði unnið hörðum höndum við að gera upp glæsilega íbúð sína á Sel-
tjarnarnesi. Þar hafa þau komið sér vel fyrir ásamt dætrum sínum þremur.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Á heimilinu fá skandinavískar hönnunarvörur að njóta sín.