Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Síða 26
Getty Images/iStockphoto
Vertu hagsýn(n) og sniðug(ur) í matarinnkaupum. Til að ná því er
snjallt að ákveða máltíðir fyrir vikuna. Gera matarinnkaupalista og
fara eftir honum til fulls. Forðastu að grípa hitt og þetta sem er ekki á
listanum í einhverri hvatvísi eða græðgi. Með þessu móti eru minni
líkur á að eitthvað sé gripið sem er ekki nauðsynlegt í ísskápinn.
Kauptu grænmeti eða ávexti sem eru ekki í sínu staðlaða formi og
líta jafnvel undarlega út. Smakkast nákvæmlega eins og annað græn-
meti eða ávextir en er síður aðlaðandi fyrir kaupandann. Sýndu ráðdeild
og kauptu það sem fer annars í ruslið.
Kauptu akkúrat það sem þig vantar. Ef þú ætlar að elda eftir uppskrift sem segir
tvær gulrætur, reyndu að komast hjá því að kaupa heilan poka og reyndu frekar að
kaupa þær í stykkjatali. Þannig kemstu hjá því að sitja uppi með heilan poka af gulrót-
um sem gætu mögulega farið til spillis.
Getty Images/iStockphoto
Á veit-
ingastaðnum:
Ekki leifa
matnum á
disknum.
Fáðu frekar
box og taktu
matinn með
þér heim. Það eru
góðar líkur á því að þú
nartir í hann seinna um
kvöldið eða daginn eftir.
Í vinnunni: Slepptu því
að taka bakka. Nældu þér í
disk og fáðu þér lítið í einu.
Ef þig langar í meira skaltu
fá þér ábót í stað þess að
henda matnum ef það
verður afgangur. Hefurðu
annars ekki heyrt um að
þú átt ekki að borða meira
en þú getur borið?
Á meðal vina: Fræddu
vini þína og vandamenn
um matarsóun. Það þarf
ekkert að vera langur
fyrirlestur, bara pota því
inn á góðan hátt. Um leið
og örlítil meðvitund um
matarsóun er komin inn
fyrir varirnar fer fólk frek-
ar að velta því fyrir sér.
Mat-
máls-
tími
MATUR Besta leiðin við að afþíða mat er að setja hann í kalt vatn og láta liggjaþar. Maturinn þarf að vera í poka og má vatnið ekki komast að matn-um. Þetta er mun betri leið en að afþíða matinn inni í ísskáp og alls
ekki gott að afþíða mat í örbylgjuofni. Hér ræður þolinmæði ríkjum.
Listin við að afþíða
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016
Matarsóun er víðtækt vandamál, þá sérstaklega hjá vestrænum þjóðum. Í dag fer um einn
þriðji af framleiddum mat í heiminum til spillis á ári hverju, eða um það bil 1,3 milljón tonn af
mat. Þetta er svo mikið magn af mat að hægt væri að fæða allan heiminn og rúmlega það
með sóuninni einni og sér. Í rauninni væri hægt að fæða allt sveltandi fólk í heiminum
með aðeins ¼ hluta af þessu magni. En því miður er heimurinn ekki á þeim bux-
unum, ekki enn að minnsta kosti. Hins vegar getum við gert ýmislegt til að laga
vandamálið og í því felst að byrja á okkur sjálfum. Svolítið hefur verið
rætt um matarsóun hér á landi en góð vísa er aldrei of oft kveðin og
mikilvægt að minna á reglulega. Hér koma nokkrir góðir
punktar sem geta hjálpað okkur að stíga í rétta átt
og vera meðvituð um matarsóun.
Matarsóun
er mikil sóun
Hvernig getum við komið í veg fyrir að henda eins miklum mat og
við gerum í raun og veru? Alls konar ráð eru á hverju strái, málið
er bara að tileinka sér þau og auðvitað byrjum við á okkur sjálfum.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Mundu bara eitt, FIFÚ
eða fyrst inn, fyrst út. Það
skiptir miklu máli eftir innkaup
að raða rétt í ísskápinn og aðra
skápa. Sú vara sem var keypt
fyrir lengri tíma síðan fer
fremst í röðina en hinar fara
aftast í röðina. Þannig er kom-
ið í veg fyrir að vörur renni út.
Notaðu allt saman. Ekki af-
hýða gúrkuna, ekki taka kart-
öfluhýðið af og brokkólístöngl-
arnir eru mjög bragðgóðir
líka! Snjallt að skera þá bara í
þunnar sneiðar. Þá fer matur
síður til spillis, auk þess eru
hýði og stilkar eru stútfull af
næringarefnum.
Haltu
bókhald
utan um
vörur sem þú hendir í ruslið.
Ertu að henda banana í
hverri viku? Eða alltaf smá
brauði? Þá er spurning um
að endurhugsa innkaupalist-
ann eða læra að frysta mat.
Morgunblaðið/Kristinn
Heim-
ilið
Mat-
vöru-
búðin