Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Side 28
Guðrún Óla Jónsdóttir, Hrafn-
hildur Jóhannesdóttir, Jónína Sif
Eyþórsdóttir, María Lea Ævars-
dóttir, Kristín Björk Jónsdóttir,
María Skúladóttir, Guðný Hrönn,
Edda Sif Pálsdóttir, Jón Heiðar
Gunnarsson, Stefán Drengsson
og Oddur Freyr Þorsteinsson
voru ánægð með matinn, sem
var frá framandi löndum.
Hópurinn, sem stundaðinámið við Háskóla Ís-lands frá 2012 til
2014, gerði sér glaðan dag. „Við
erum lítill og náinn hópur sem
nær vel saman og höfum náð að
halda hópinn. Við hittumst
reglulega en það má segja að
þetta hafi verið árshátíðin okk-
ar,“ segir María. Umræðuefnin
voru lífleg og var farið um víð-
an völl. „Það eru náttúrulega
bara þrír karlmenn í þessum
hópi þannig að það fór í að vera
dálítið kvennaklósettsumræða,
sem var bara spennandi fyrir
þá,“ segir María og hlær.
Fjölbreytt, einfalt og spennandi
Á borðinu mátti finna spennandi rétti frá nokkrum fjarlægum og framandi lönd-
um. Djúpsteikt egg voru frá Nígeríu, Nasi Goreng frá Indónesíu, baunaréttur
frá Pakistan og Kofta frá Mið-Austurlöndum ásamt flatbrauði og tzatzikisósu. Í
eftirmat var klassísk frönsk súkkulaðikaka. „Við vildum hafa þetta fjölbreytt,
einfalt og spennandi. Við leituðum að uppskriftum sem innihéldu frekar ódýrt
hráefni; hrísgrjón, baunir og egg til að draga niður kostnaðinn fyrir svona stóran
hóp. Við skiptum þessu með okkur, ég bjó til tvo rétti og Hrafnhildur tvo og
þriðja bakaði kökuna. Hrafnhildur á vinkonur frá Nígeríu og Pakistan en sú frá
Nígeríu heldur úti matarbloggi. Eggin voru þaðan en linsubaunarétturinn frá
Pakistan,“ segir María. „Kofta-rétturinn var frá gulur, rauður, grænn og salt og
Nasi Goreng-rétturinn er frá Indónesíu, en það þýðir í raun bara steikt hrís-
grjón. Þetta er ákveðin útfærsla á honum. Mér fannst þetta vera mjög spennandi
og skemmtilegt og við vorum mjög ánægðar með útkomuna, en þrjá af þessum
fjórum réttum vorum við að gera í fyrsta sinn. Þetta hvetur mann til að fara út
fyrir þægindarammann og prófa eitthvað nýtt.“
María og Hrafnhildur báru fram meistaralega
rétti frá öllum heimshornum.
Heimsreisa
á borði
Fagnaðarfundir urðu þegar skólafélagar úr meist-
aranámi í Blaða- og fréttamennsku hittust yfir góð-
um mat um síðustu helgi. Þær María Skúladóttir og
Hrafnhildur Jóhannesdóttir tóku sig til og elduðu
dýrindis rétti frá öllum heimshornum.
Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016
MATUR
4,5 cl Tanqueray eða Tanqueray nr. 10 gin
3 cl ferskur sítrónusafi
3 cl sykursíróp (aðferð fyrir neðan)
4-5 basilíkulauf
ísmolar
Allt hráefni er sett í hristara eða stóra krukku.
Drykknum er hellt yfir rocks-glas eða viskýglas
sem er fullt af klaka. Skreytið með basillaufi.
SYKURSÍRÓP
Sykursíróp er gert úr jöfnum hlutföllum af vatni
og sykri. Vatnið hitað nánast að suðu og sykr-
inum þá bætt út í. Hrært í þar til sykurinn leysist
upp. Hægt að gera fyrirfram eða daginn áður, en
það geymist í lokaðri krukku í nokkrar vikur.
Tanqueray Basil
Smash
150 g sykur
275 g suðusúkkulaði, skorið í litla
bita
175 g ósaltað smjör
2 tsk. vanilludropar
5 egg (aðskilja rauður frá hvítum)
40 g hveiti
salt á hnífsoddi
flórsykur til skrauts
nokkur jarðarber til skrauts
Hitið ofn í 160°C. Smyrjið 24 cm
form með smjöri. Takið frá 3 msk.
af sykri og geymið til hliðar. Takið
restina af sykrinum og setjið það í
pott með smjörinu og súkku-
laðinu. Bræðið yfir miðlungshita
þar til bráðið. Takið af hitanum og
bætið út í vanilludropunum og lát-
ið kólna aðeins. Aðskiljið rauður
frá hvítum. Hrærið rauðunum út í
súkkulaðið einni í einu. Hrærið því
næst hveitinu saman við.
Þeytið eggjahvíturnar með smá
salti þar til stífar. Bætið þá út í 3
msk. af sykri sem þið tókuð frá og
þeytið áfram.
Í nokkrum skömmtum, hellið
þeyttu hvítunum út í pottinn með
súkkulaðinu og hrærið saman þar
til þær leysast alveg upp.
Hellið þessu í formið og hristið
aðeins loftbólur úr deiginu með
því að banka forminu létt í borðið.
Bakið í 35-45 mínútur (mæli
með 40-45 mín.). Takið út og látið
kólna á borði áður en kökunni er
varlega hvolft úr forminu og á
kökudisk. Þegar kakan er köld,
stráið flórsykri yfir með sigti.
Skerið jarðarber og skreytið. Ber-
ið fram með þeyttum rjóma.
Frönsk
súkku-
laðikaka