Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Page 30
HEILSA ...að jógameistarinn B.S.K. Iyengar er talinn einn fremsti nútíma jóga-kennari í heiminum. Hann stundaði jóga fram á síðasta dag en hann
lést árið 2014, 96 ára að aldri.
Vissir þú...
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016
Francois Raoult ætlar að vera með vinnu-stofur í Iyengar-jógahefðinni í jógasalLjósheima nú yfir helgina 16.-18. sept-
ember en einnig er hægt að skrá sig í staka
tíma. Formaður Ljósheima, Sólbjört Guð-
mundsdóttir, segir það mikinn feng að fá Rao-
ult til landsins. „Iyengar-jóga er iðkað af fáum
ef einhverjum á Íslandi og hvergi er boðið upp
á slíkt jóga hérlendis. Við erum því afar heppin
að fá Francois Raoult til okkar. Í mars á næsta
ári mun hann síðan koma aftur og þá hefst
kennaranám sem byggir á Iyengar-jógahefð-
inni. Mikið og gott tækifæri fyrir áhugafólk,“
segir Sólbjört.
Heppni, gott karma og góð kennsla
Hinn franski og magnaði jógakennari Francois
Raoult var ungur að aldri þegar hann fann fyrir
köllun í jóga. Nítján ára fór hann í pílagríms-
ferð til Indlands og heimsótti ýmsa helgistaði.
Þar heillaðist hann af jóga. „Ég var afar hepp-
inn að hitta alla kennarana mína í gegnum tíð-
ina áður en þeir urðu frægir. Það er nefnilega
þannig að þegar frægðin tekur yfir er oft erfitt
að ná sambandi. Ég fékk
því að njóta góðs af
því,“ segir Raoult.
„Þetta var mitt góða
karma og ég fékk góða
kennslu.“
Raoult ferðaðist mikið til
Indlands á þessum tíma og hefur
gert alla tíð síðan. „Indland er landið mitt, í
raun jafnvel meira en föðurlandið, Frakkland,“
segir hann. Hann heldur áfram að útskýra fyrir
blaðamanni hvernig jógaævintýri hans hófst.
Fyrsti kennarinn hans var Jean Claude, sem í
dag er vinsæll ashtanga-kennari í Belgíu. Rao-
ult var ekki lengi að verða aðstoðarkennari
hans en stuttu síðar ákvað Jean Claude að
hverfa aftur í landbúnað, en hann var með
geitabú í Suður-Frakklandi. „Hann sagði við
mig, ég ætla að hverfa á brott. Gjörðu svo vel,
þú tekur við öllum nemendum mínum,“ segir
Raoult og hlær. Allt í einu var hann með um 120
nemendur í sinni umsjón. Honum var ætlað að
stunda og kenna jóga.
Sérhæfir sig í Iyengar-hefðinni
Nú mörgum árum seinna er Raoult afar þekktur
innan jógaheimsins og sérhæfir sig í
Iyengar-hefðinni. Hann er með diplómu frá Al-
þjóðlega jógaskólanum í París og einnig er hann
meðlimur Iyengar-stofnunarinnar í París en þar
hitti hann jógameistarann B.K.S. Iyengar sem
hann lærði hjá. Iyengar er tegund af jóga sem er
lítið þekkt hér á Íslandi og er þróuð af B.K.S.
Iyengar og nefnd eftir honum. Iyengar er útgáfa
af Hatha-jóga sem leggur ríka áherslu á smáat-
riði og nákvæmni í stellingum og einnig öndun
og mikilvægi þess að ná góðri stjórn á henni.
Styrk, hreyfanleika og stöðugleika er náð í
gegnum líkamsstöðurnar eða asanas.
Francois Raoult flutti til Bandaríkjanna
árið 1985 og hefur búið og starfað í Rochester
í New York í 22 ár. Þar stofnaði hann Open
Sky Yoga-miðstöðina og kennir hann vinnu-
stofur og heldur jóganámskeið víða um heim.
Hann flutti aftur til heimalands síns í fyrra en
stjórnar miðstöðinni úr fjarlægð.
Þegar jóga varð vinsælt
„Í dag eru allir að stunda jóga og það ríkir
ákveðið stjórnleysi. Hér áður fyrr þótti jóga
bara svolítið plebbalegt og fólk hélt að það
væru bara hippar sem stunduðu jóga en svo
náði það vinsældum í Bandaríkjunum. Þá
breyttist jóga og Ameríkaninn gerði það svolít-
ið að sínu,“ segir Raoult. „Fyrir vikið missti
jóga ákveðinn sjarma vegna þess að það var
beygt til, pakkað inn og skorið af því til að
henta betur breiðari hópi fólks. Því miður varð
jóga að einhvers konar nýrri íþrótt fyrir fólk
sem vill æfa líkamsrækt stíft og missa einhver
aukakíló hratt. Allt í einu þurftu allir að klæðast
sérstökum jógafatnaði og eiga hitt og þetta til
að stunda jóga, sem er svolítið heimskulegt, því
í Indlandi stunda margir jóga á adamsklæð-
unum einum saman,“ segir hann og hlær. „Það
sem er mikilvægt í þessu öllu saman er að hlúa
að rótinni í jóga og kenna vel grunninn.“
Francois Raoult er afar þekktur innan jógaheimsins og sérhæfir sig í Iyengar-hefðinni.
Morgunblaðið/Ófeigur
Kennir Iyengar-jóga á Íslandi
Jóga hefur verið til í hundruð
ára en í raun er stutt síðan það
varð að ákveðnu tískufyrir-
bæri. Jógakennarinn Francois
Raoult er af gamla skólanum
og einn af þeim sem hófu að
iðka og kenna jóga löngu áður
en það varð vinsælt.
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Sólbjört Guðmundsdóttir, Francois Raoult og Unnur Einarsdóttir. Þau kynntist þegar Sólbjört og Unnur heimsóttu miðstöð Raoults í New York. Þær
fundu það alveg um leið og þær hittu hann að hér væri magnaður Iyengar-jógakennari á ferð og voru staðráðnar í að fá hann hingað til lands.
Morgunblaðið/Ófeigur
Iyengar er útgáfa af
Hatha-jóga sem
leggur ríka áherslu
á smáatriði og ná-
kvæmni í stell-
ingum.
’
Hann sagði
við mig, ég
ætla að hverfa á
brott. Gjörðu svo
vel, þú tekur
við öllum
nemendum
mínum.