Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Qupperneq 37
aðarorð forsetans ýti undir að kjósendur yfirgefi Pírata
til að forða stjórnarkreppu og halli sér að „hugsjóna-
lausu“ flokkunum, sem búa við vantraust, að mati for-
setans. Segja má, að ígildi stjórnarkreppu hafi ríkt síð-
an boðað var til kosninga til að þóknast tunnuslögurum
á Austurvelli.
Leiðtogar stjórnarandstöðu hafa lýst því yfir að eftir
að ríkisstjórnin nefndi kjördaginn hafi 38 manna þing-
meirihluti ekki lengur haft forræði mála á Alþingi. Það
er skrítin sýn á lýðræðið, en hefur gengið eftir.
En það er huggun þessum lýðræðisharmi gegn að
málið er ekki mikið betra annars staðar og sums staðar
verra. Þegar horft er til erlendra fjölmiðla mætti ætla
að helsta viðfangsefni stjórnmála snúist um salerni og
hvort þau skuli verða eins fyrir alla eða eitt fyrir hvert
kyn, sem hefur fjölgað úr tveimur í tuttugu og eitt,
samkvæmt viðurkenndum fræðum. Ef marka má um-
ræðurnar getur fjöldi kynja í þessu sambandi orðið
óendanlegur, því að einstaklingar eigi rétt á að nýta
það salerni sem „kynveruleiki þeirra“ segir til um.
Mörg ríkisþing í Bandaríkjunum engjast vegna þessa
álitamáls um þessar mundir.
Enn mikilfenglegri mál
En fleira nemur mikla athygli fjölmiðla. Tveimur dög-
um áður en Hillary Clinton féll í yfirlið 11. september
vegna lungnabólgu, eftir því sem best er vitað, hélt hún
ræðu yfir velmegandi fólki í New York. Fullyrti hún að
helmingur stuðningsmanna Donalds Trumps ætti
heima „í hryllingskörfu“ (basket of deplorables). Var
þessum orðum vel fagnað á samkundunni.
Utan hennar mæltist lýsingin ekki eins vel fyrir.
Sumir stuðningsmanna frú Hillary sögðu að Trump
sjálfur væri vissulega orðlagður fyrir stóryrði og skæt-
ing. Því væri sanngjarnt að víkja slíku að honum, en
taktísk mistök að hnjóða í kjósendur hans, jafnvel
milljónir þeirra eða fleiri.
Hillary dró í land og varla þó. Hún sagðist ekki hafa
átt að tala með svo almennum hætti og hún sæi eftir að
hafa notað orðið „helmingur“. Þar með stóð auðvitað
eftir að þótt frambjóðandinn léti sem hún bæðist afsök-
unar, þá var því haldið opnu að „hryllingurinn í körf-
unni“ kynni að ná til enn fleiri kjósenda Trumps.
Nú er svo komið að Donald Trump er jafn Hillary að
fylgi. En fyrir rúmri viku töldu fréttaskýrendur úr
báðum herbúðum að hún væri nánast búin að vinna.
Trump gætti sín vel fyrst eftir að Hillary féll saman
11. september. Það þótti ólíkt honum og vísbending
um að hann léti að stjórn ráðgjafa sinna. En nú gerir
hann út á það, að sýna hve vel hann sé á sig kominn og
birtir mælingar úr læknisskoðun til að sanna það.
Þannig heldur hann veiklunarmáli Hillary vakandi og
gefur sjónvarpsstöðvum tilefni til að endursýna slá-
andi myndbandið um kippi hennar og fall.
Trump fór í skemmtiþátt og leyfði þáttarstjórnanda
að læsa krumlu sinni í appelsínugult hárið til að sann-
reyna að það væri ekta. Fróðir menn segja að þetta
virki.
Auðvitað er æskilegt að fólk sem vill fá að gegna
valdaembætti á veraldarvísu hafi til þess burði. Mætti
þó ætla að andlegir kraftar og manngildi skiptu
nokkru máli. Vandinn er að auki sá, að læknisskoðanir,
sem geta sýnt að eitthvað bjáti á, sanna ekki að ekkert
bjáti á. Knattspyrnumenn eru keyptir fyrir ógnarfé.
Fyrirvari er settur um að þeir standist stranga læknis-
skoðun. Þetta eru íþróttamenn í blóma lífsins. Það
breytir þó ekki því, að fyrir hefur komið að þessir ungu
menn hafa orðið bráðkvaddir á leikvangi.
Winston Churchill var kannski sá eini sem fær var
um að snúa Bretum á sigurbraut í seinni heimsstyrj-
öld. En er víst að hann hefði staðist nútíma læknis-
skoðun? Myndi hann þykja kjörtækur nú, ef birt væri
greinargerð um áfengismagn sem hann sötraði á
hverjum degi og vindlarnir sem hann reykti?
Í vikunni kom fram að Trump hvorki reykti né
drykki. Varasamt er að nefna Hitler illmennið til sögu,
sem örugglega á heima í hryllingskörfu. Hann var
grænmetisæta og bindindismaður. En varla jafnaði
það stjórnmálalega annmarka hans.
Gagnsæi og mælikvarðar nútíma stjórnmála eru
álíka gagnleg tæki og siðareglur sem hinir og aðrir sið-
leysingjar setja sér.
Svo eru það hugsjónirnar
Forsetinn okkar telur að Píratar skeri sig frá öðrum,
því þar fari „hugsjónafólk.“ Forsetinn telur einnig að
þær hugsjónir geti orðið vandamál. Og vissulega eru
dæmi um slíkt. En hvað sem því líður væri æskilegt að
fá upplýst í tæka tíð fyrir kjördag hverjar helstu hug-
sjónir Pírata séu. Þeir hafa átt fulltrúa á Alþingi í rúm
3 ár, og farið með hugsjónir flokksins sem ríkisleynd-
armál. Flokkur sem sagði það hlutverk sitt að upplýsa
um ríkisleyndarmál.
Þessi umræða kemur á óvart. Menn héldu að hug-
sjónaleysi væri helsta einkenni nútíma stjórnmála.
Jafnvel hættumerki. Horfum á fyrirheitna ríki sumra,
ESB. Forsvarsmenn 28 ríkja mæta reglubundið til
sameiginlegra leiðtogafunda. Þeir koma úr „ólíkum“
flokkum beggja vegna miðjunnar. En á þessum fund-
um verður aldrei vart við ágreining af hugsjóna-
ástæðum. Sífellt er verið að kjósa í einstökum ríkjum.
Framgangan á leiðtogafundum er alltaf jafneinsleit og
fyrr. Kosningar breyta engu. Það er sérkennilegt og
áhyggjuefni.
Kunnuglegt
Forseti Íslands hefur nú upplýst umheiminn um það,
skömmu fyrir kosningar, að það ríki vantraust á gömlu
flokkunum „þar uppi.“ Sama má sjálfsagt segja um
stóru löndin í Evrópu. Flokkar þeirra Merkel og Hol-
lande eru í andbyr. Þeir eru raunar ekki sömu megin
miðlínu stjórnmála. Annar hægra megin og hinn
vinstra megin. En það breytir engu. Ekki er vitað um
neinn skoðanamun leiðtoganna í Evrópumálum, inn-
flytjendamálum, skattamálum eða öðrum málum.
Ekki frekar en hér uppi, þar sem Sjálfstæðisflokk-
urinn treystir Bjartri framtíð betur fyrir innflytj-
endalöggjöf en sjálfum sér.
Nýir flokkar eins og AfD, (Önnur leið fyrir Þýska-
land) og Þjóðfylking Marine Le Pen sækja að „gömlu
flokkunum“, valdaflokkum í Evrópu.
Þessir tveir flokkar eru örugglega meiri „hugsjóna-
flokkar“ en Píratar, þótt þær hugsjónir falli ekki endi-
lega í kram fréttaskýrenda. Í þessum tveimur löndum
ríkir líka mikið „vantraust á gömlu flokkunum.“
Samkvæmt því mætti ætla að víðar sé von á stjórn-
málalegri upplausn en hér á norðurhjara.
Kannski hafa þeir orð á því þar.
Hver veit?
Morgunblaðið/RAX
Fjallsárlón
í Öræfum.
18.9. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37