Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016
LESBÓK
Ásdísi Thoroddsen þekkjavísast flestir fyrir kvik-myndir hennar, leiknar
myndir og heimildamyndir, en hún
segist alltaf hafa verið bókaormur
og það sé því ekkert fjarri henni
að skrifa. Utan þjónustusvæðis er
fyrsta skáldsaga hennar, en hún
segist upphaflega hafa hugsað sér
að gera kvikmynd eftir söguefn-
inu, „en þetta er mjög viðamikið
efni fyrir kvikmynd, hefði eigin-
lega þurft að verða mini-sería. Svo
er formið líka þannig, þetta er
króníka frekar en drama, þó það
gerist dramatískir hlutir í bókinni.
Þess vegna fannst mér þetta eiga
betur við pappírinn en eina kvik-
mynd með upphafi og endi og úr-
lausn í lokin.“
Í bókinni koma hænur nokkuð
við sögu, landnámshænur sem
höfuðpersónan, Heiður Gyðudótt-
ir, er að smala söguna alla. Ásdís
segir og að hugmyndin hafi kvikn-
að útfrá hænum að vissu leyti:
„Þetta kviknaði þar sem ég sat
með ágætum konum og nefndi við
þær að ég hefði verið að hugsa um
hænurnar. Þá þurfti ég að að
segja þeim frá þessu og þær
hvöttu mig til þess að skrifa,“ seg-
ir Ásdís og bætir við að hún sé
þeim þakklát, það hafi verið gam-
an að spreyta sig á því að skrifa
bók þó það hafi tekið sinn tíma og
svo hafi vinnutíminn verið af
skornum skammti, hún hafi að-
allega unnið að bókinni þegar ann-
að fólk svaf á morgnana og
klukkutíma og klukkutíma í senn.
„Ég var lengi að vinna að sög-
unni vegna þess að þetta er form
sem er ekki beint í hverri bók. Í
sögunni er sjónarhorn margra
persóna og svo var ég að bögglast
með tímann líka, í hvaða tíð ég
ætti að segja söguna, en svo varð
þetta ein sveit, einn hringur, eitt
ár svo að segja; sveitin aflokuð
milli fjalla og líka í formi sög-
unnar. Þó að aðalsöguhetjan sé
þessi kona sem allt hverfist um þá
er það líka sveitin sjálf, ég er í
raun dálítið að segja sögu sveit-
arinnar um leið og hennar.“
- Fyrsta skáldsagan komin út,
ertu komin á bragðið?
„Já, ég er komin á bragðið,
þennan auðvelda aðgang að sköp-
uninni. Sköpunin er ánetjandi, það
að búa til kitlar mann undir
þindina og vekur svo mikla kæti
þó það sé erfitt líka. Það er voða-
lega gaman að gera kvikmyndir og
gaman að klippa kvikmyndir, en
það er samstarf margra og það að
þurfa ekki að skaffa milljónir til
að búa til er svo frelsandi.
Ég er samt ekkert viss um að
ég fari á sömu slóðir í efnisvali,
held það eiginlega síður. Það er
voða gaman að geta henst um
heimssöguna og það er gaman að
klippa og eiga við tækin þegar þau
hlýða manni og koma hugmyndum
í myndir en þetta er líka dálítil
verkfræði að búa til form og
strúktúr. Svo er draumurinn líka
sem er andinn og þetta óskilj-
anlega, einhversstaðar er það inni
í manni sem er miklu klárara en
maður sjálfur.“
- Þú nefnir það að þú sért að
segja sögu sveitarinnar ekki síður
en sögu Heiðar Gyðudóttur, en
þetta er líka saga breytinga og í
lokin er sveitin mikið breytt.
„Hún hefur mjög mikið breyst
og það var líka svo margt sem
mátti breytast í þessari sveit og
víða um sveitir og þá á ég við of-
beldið sem viðgengst of víða, of-
beldi gagnvart körlum, konum og
börnum. Það er of mikið af-
skiptaleysi gagnvart því, maður á
ekki að kássast upp á annað fólk,“
segir Ásdís og vitnar þar í atvik í
bókinni þegar yfirvöld bregðast
svo við barnaníði einnar sögu-
persónunnar og bera blak af ger-
andanum. „Það er þessi þegj-
andaháttur sem Heiður er að
glíma við og hún veður áfram eins
og fíll inn í postulínsbúð inn í
þessa þögn og það er einmitt eitt
af því sem gerir hana svo óþolandi
fyrir þetta samfélag.
Samfélagið breytist, því hnignar
að því leyti að fólkinu fækkar, en
þetta er ekki bara neikvætt, því í
bókinni er ein persóna, Guð-
mundur gamli á Felli, sem er
mjög gefandi maður fyrir sam-
félagið, maður sem vill gera svo
margt og gerði í ungmennafélags-
anda. Mér finnst að það sé margt
Andinn og þetta
óskiljanlega
Ásdís Thoroddsen sendir frá sér sína fyrstu skáldsögu og segir að formið sé
frelsandi að vissu leyti, en hún hefur hingað til fengist við kvikmyndagerð.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Henry Alexander Henrysson, aðjúnkt og sér-
fræðingur hjá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands,
hefur ritað nokkrar bækur um heimspeki og
ritað fjölda greina um heimspekileg málefni í
innlend og erlend tímarit, en sendir nú frá sér
sína fyrstu ljóðabók sem ber heitið Smá eyríki.
Henry skiptir bókinni upp í fjóra hluta,
Siglu, Lissabon frá hafi, Glerblásarann og
Spegla.
Bókaútgáfan Sæmundur gefur bókina út,
sem er innbundin í litlu broti.
Eyríki Henrys Henryssonar
Í bókinni Lög á bók fer Sigríður Logadóttir,
aðallögfræðingur Seðlabankans, yfir flest það
sem gera má ráð fyrir að hver maður glími við
á lífsleiðinni þegar lög og regla eru annars
vegar. Þannig fjallar Sigríður um lagalega
hlið á húsaleigusamningum, sifjamálum,
eignakaupum, atvinnumálum, sjúkratrygg-
ingum, sakamálum, neytendalánum og höf-
undarrétti svo dæmi séu tekin.
Þetta er endurskoðuð og mjög aukin útgáfa
bókarinnar, en hún kom fyrst út 2003.
Bók um lög á bók
Bandarísku bók-
menntaverðlaunin,
The National Book
Award, verða af-
hent eftir rétt
rúma tvo mánuði,
16. nóvember
næstkomandi. Svo-
nefndur langlisti
verðlaunanna var
kynntur í vikunni.
Veitt eru verðlaun
fyrir skáldsögur,
ljóð, ungmenna-
bækur og fræði-
bækur.
Skáldsögurnar
tíu á listanum eru
The Throwback
Special eftir Chris
Bachelder, What
Belongs to You eft-
ir Garth Green-
well, Imagine Me
Gone eftir Adam
Haslett, News of
the World eftir
Paulette Jiles, The
Association of
Small Bombs eftir
Karan Mahajan,
The Portable Vebl-
en eftir Elizabeth
McKenzie, Sweet
Lamb of Heaven
eftir Lydia Millet,
Miss Jane eftir
Brad Watson, The
Underground Rail-
road eftir Colson
Whitehead og
Another Brooklyn
eftir Jacqueline
Woodson.
Fræðibækurnar
eru America’s War
for the Greater
Middle East eftir
Andrew J. Bace-
vich, The Fire-
brand and the First
Lady eftir Patricia
Bell-Scott, Imbeci-
les eftir Adam Co-
hen, Strangers in
Their Own Land
BANDARÍSKU BÓK-
MENNTAVERÐLAUNIN
Bókmennta-
verðlaunalisti
Þjóðin sat límd við viðtækin þegar ís-
lenska karlalandsliðið í knattspyrnu tók
þátt í úrslitakeppni Evrópumótsins í
Frakklandi 2016 og stór hluti hennar
hélt til Frakklands að upplifa ævintýrið.
Víðir Sigurðsson var að störfum í Frakk-
landi fyrir Morgunbalðið og mbl.is á
meðan íslenska liðið var með í keppn-
inni, hélt til í sömu borg og landsliðið,
Annecy, og fór þaðan í leikina fimm í St.
Étienne, Marseille, París og Nice.
Samhliða því sem Víðir skrifaði fyrir blað og net skrifaði hann bók-
ina Húh! frá degi til dags og lýsir í henni gangi mála hjá íslenska lið-
inu frá óvenjulegu sjónarhorni. Í bókinni segir Víðir ítarlega frá leikj-
um liðsins, samskiptum við leikmenn og þjálfara á fréttamanna-
fundum og æfingum, fyrir og eftir leiki, ferðalögum liðsins, borg-
unum þar sem leikirnir fóru fram, og rekur jafnframt gang mála í
keppninni í heild.
Bókin er prýdd fjölda mynda Hafliða Breiðfjörð og Skapta Hall-
grímssonar. Bókaútgáfan Tindur gefur bókina út.
Húh! á EM
Skemmtilegir og lifandi þættir um fólk sem
gegnir fjölbreyttum störfum í iðnaði og
hefur skapað sér gott líf með forvitnilegum
áhugamálum utan vinnu.
Mbl.is stendur að þáttunum
í samstarfi við Samtök iðnaðarins.
mbl.is/fagfolkid
Fjölbreytt störf og
forvitnileg áhugamál