Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Side 43
18.9. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
mjög fallegt í sveitum landsins,
hjálpsemi og alúð. Utan þjón-
ustusvæðis er að vissu leyti gagn-
rýni, en það er svo misjafn andi
eftir sveitum.“
- Heiður er alltaf aðkomukonan,
sama hvað hún hefur búið í sveit-
inni í mörg ár, og verður aldrei
hluti af samfélaginu og þá að-
allega fyrir það að hún tekur ekki
þátt í þögguninni, eins og þú nefn-
ir. Í raun er hennar eina von að
komast í burtu.
„Hún brýtur ósagðar reglur í
samfélaginu í sveitinni og verður
því aldrei hluti af því og það er
ekki fyrr en hún flytur suður að
hún nær að sjá lífið í sveitinni úr
fjarska, nær sjónarhorni fuglsins,
nær að aftengja tilfinningar sínar
og reiðina og sjá þetta í fjarska og
getur þá lært og metið. Það er
reiði í henni líka og offors, hún er
enginn engill, en hún er að reyna
að vera góð, sem er voða erfitt,
það er meiri áskorun að gera þær
kröfur til sín að breyta rétt.“
Ásdís Thoroddsen,
kvikmyndagerðarmaður
og rithöfundur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
eftir Arlie Russell
Hochschild, Stam-
ped from the Beg-
inning eftir Ibram
X. Kendi, Nothing
Ever Dies eftir
Viet Thanh Ngu-
yen, Weapons of
Math Destruction
eftir Cathy O’Neil,
The Other Slavery
eftir Andrés Res-
éndez, The Slave’s
Cause eftir Man-
isha Sinha og Blood
in the Water eftir
Heather Ann
Thompson.
Ég er búin að vera að flytja og man
voða lítið hvað ég var að gera í fyrra
lífi, en svo rifjast það smám saman
upp. Síðasta bókin sem ég las, sem
ég man eftir vegna þess hvað það
var ánægjulegt að lesa hana, var
Extremely Loud and
Incredibly Close eftir
Jonathan Safran Foer.
Salka dóttir mín gaf
mér þessa bók fyrir
löngu. Ég var svo ham-
ingjusöm þegar ég las þessa bók og
talandinn í henni vakti hjá mér von.
Mér finnst nefnilega stundum eins
og ég sé alltaf að lesa sömu bókina,
að fólk skrifi voða mikið eins, en
röddin í bókinni, talandinn í drengn-
um, er svo sannfærandi. Hún setti
mig í eitthvert tilfinningalegt
ástand, mér leið ekki eins og ég væri
að lesa bók.
Nú er ég að byrja á ævisögu Ast-
rid Lindgren, Denna dagen, ett liv,
eftir Jens Andersen. Ég get svosem
ekkert sagt frá henni,
ég er rétt að byrja, árið
er 1920 í Smálönd-
unum, en ég er Astrid
Lindgren-aðdáandi.
Það þyrfti nú að senda
þá til læknis sem ekki eru aðdá-
endur Astrid Lindgren. Ég er ekki
bara aðdáandi bókanna hennar,
heldur líka hennar sjálfrar og þeirr-
ar persónu sem hún var, allt sem ég
heyri um hana hringir einhverjum
bjöllum hjá mér. Það er kannski
sænska blóðið sem í mér rennur.
Margrét Krist-
ín Blöndal
Margrét Kristín Blöndal er
tónlistarmaður.
BÓKSALA 7.-13. SEPT.
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 HættuspilViveca Sten
2 Harry Potter & theCursed Child
J. K. Rowling
3 Á meðan ég lokaðiaugunum
Linda Green
4 Independent PeopleHalldór Laxness
5 NæturgalinnKristin Hannah
6 Vefur LúsífersKristina Ohlsson
7 HetjubókinJónaValborg Árnadóttir/
Elsa Nielsen
8 MensaIngibjörg Ásta Pétursdóttir
9 Almenn líffræði 103Ólafur Halldórsson
10 Iceland Small World-lítilSigurgeir Sigurjónsson
1
Hetjubókin
JónaValborg Árnadóttir/
Elsa Nielsen
2 Óvættaför 24 - LeynirAdam Blade
3 Sagan af bláa hnettinumAndri Snær Magnason
4
Doktor proktor og
heimsendir
Jo Nesbø
5
Norn
Kim Fupz Aakeson/
Rasmus Bregnhöi
6 Litli prinsinnAntoine de Saint-Exupéry
7
Feimnispúkar
Sigurlaug H.S.Traustadóttir/
Lára Garðarsdóttir
8
Amma óþekka og
huldufólkið í hamrinum
J.K. Kolsöe
9
Letipúkar
Sigurlaug H.S.Traustadóttir/
Lára Garðarsdóttir
10 Binna B -Næst bestu vinirSally Rippin
Allar bækur
Barnabækur
ÉG ER AÐ LESA
SKÚLI MOGENSEN
FORSTJÓRI WOW AIR
„Gæta þarf að því að eyðileggja ekki
ímynd Íslands með skammtímahugsun.
Hægt er að virkja hreina ímynd Íslands
og íslenskrar orku án þess að ganga
frekar á auðlindir landsins. Ein leið til
þess er að hlúa að vörumerkinu Íslandi
og CHARGE er frábær vettvangur til
að hefja umræðuna.”
HÖRÐUR ARNARSON
FORSTJÓRI LANDSVIRKJUNAR
„Fyrirtæki hafa í vaxandi mæli
hagsmuni af því að tengja vörumerki
sín við sjálfbæra nýtingu auðlinda –
tenging við hreina og endurnýjan-
lega íslenska orku getur styrkt
fyrirtæki í markaðssetningu og gefur
ráðstefnan færi á að kynna sér
tækifæri í þessum efnum.“
UMSAGNIR UM CHARGE, FYRSTU RÁÐSTEFNU
SINNAR TEGUNDAR Í HEIMINUM:
HARPA, 19. – 20. SEPTEMBER
Stuttlisti Booker-
verðlaunanna,
helstu bókmennta-
verðlauna Breta,
var birtur síðast-
liðinn þriðjudag,
en verðlaunin
verða afhent eftir
rúman mánuð. Við skoðun á bóka-
listanum höfðu ýmsir orð á því að
bækurnar væru styttri en hefði
tíðkast hingað til,
en einnig vakti
athygli að ýmsar
af helstu stjörn-
um enskra bók-
mennta hlutu
ekki náð fyrir
augum dómara,
en reyfari eftir
óþekktan skoskan
höfund sem smá-
fyrirtæki gefur út
komst í náðina.
Bækurnar á
listanum eru The
Sellout eftir Paul
Beatty, Hot Milk
eftir Deborah
Levy, His Bloody
Project eftir
Graeme Macrae
Burnet, Eileen
eftir Ottessa Mos-
hfegh, All That
Man Is eftir David
Szalay og Do Not
Say We Have Not-
hing eftir Made-
leine Thien.
Stuttur listi,
styttri bækur
BRESK BÓKMENNTA-
VERÐLAUN