Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Blaðsíða 45
18.9. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
ÚTVARP Þættirnir Í ljósi sögunnar í
umsjón Veru Illugadóttur njóta vin-
sælda í útvarpi en ekki síður á hlaðvarpi
RÚV eða Sarpinum. Í þáttunum skoðar
Vera samtímann í ljósi sögunnar og kaf-
ar ofan í alþjóðleg málefni nútímans,
eins og uppgang öfgasamtakanna Ísl-
amska ríkisins með því að skoða sögu
þeirra og rætur. Þá hefur hún skoðað Is-
lam Karimov og valdatíð hans í Úsbek-
istan. Þættirnir eru á dagskrá Rásar 1 á
föstudagsmorgnum kl. 9.05 og laug-
ardagskvöldum kl. 18.10 og svo að-
gengilegir í nokkra mánuði á Sarpinum.
Nútíminn skoðaður í ljósi sögunnar
Ljósmynd/RÚV
Þættirnir Næturvaktin eru sýndir á Stöð
2 um þessar mundir en þeir gerast á
spítala í San Antonio í Texas. Eins og
nafnið gefur til kynna gerast þættirnir að
næturlagi og fjalla um uppákomur sem
verða á næturvakt á bráðadeild.
Eins og sæmir góðu læknadrama verða
læknar og annað starfsfólk ástfangið
hvert af öðru, stunda kynlíf á vinnutíma
þegar færi gefst og eiga í dramatískum
samskiptum við sjúklinga og starfsfólk.
Margt í þáttunum minnir á Bráðavakt-
ina sálugu, eða ER, en þeir þættir eru
meðal vinsælustu læknaþátta allra tíma
og voru sýndir sleitulaust í fimmtán ár,
frá 1994 til 2009. Það ætti því kannski
ekki að koma á óvart að einn af leik-
stjórum Næturvaktarinnar er einmitt
enginn annar en Eriq La Salle sem fór
með hlutverk hins metnaðarfulla en
stundum hrokafulla dr. Peter Benton.
Þar er sannarlega ekki komið að tómum
kofunum því La Salle lék samfellt í átta
ár í Bráðavaktinni og átti svo end-
urkomu í lokaseríunni nokkrum árum
eftir að hann hætti.
Margir leikstjórar koma að svona þátt-
um og framleiðendur Næturvaktarinnar
leita því í viskubrunn fleiri en La Salle.
Sjálfur Jason Priestly er einnig meðal
leikstjóra, en hans frægðarsól reis hæst
þegar hann túlkaði Brandon Walsh í Be-
verly Hills 90210.
Eriq La Salle sem Peter Benton. Hann hefur einnig
leikstýrt þáttum á borð við Law & Order: Special
Victims Unit, CSI: NY og Madam Secretary.
GAMLAR HETJUR LEIKSTÝRA
Bráðavaktarstjarna leik-
stýrir Næturvaktinni
Jason Priestley sem Brandon Walsh í Beverly
Hills 90210 bræddi ófá hjörtu. Hann hefur leik-
stýrt meira í seinni tíð samhliða því að leika.
NÝR VIÐBURÐAVEFUR
Allt það helsta á einum stað
- vinsælasti vefur landsins
KVIKMYNDIR
FUNDIR OG RÁÐSTEFNUR
TÓNLIST
LEIKHÚS
MYNDLIST
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
AÐRIR VIÐBURÐIR
Emmy-verðlaunin
verða afhent í 68.
sinn á sunnudag, 18.
september. Aðal-
kynnir á þessari
uppskeruhátíð sjón-
varpsfólks er grínist-
inn og þáttastjórn-
andinn Jimmy
Kimmel. Hann er í
þeirri sérstöku
stöðu að vera bæði
kynnir og á meðal til-
nefndra. Þáttur hans, Jimmy Kimmel Live!, er til-
nefndur í flokki spjallþátta. Þar etur hann kappi við
ekki minni kempur en John Oliver og James Corden.
EMMY Á SUNNUDAG
Jimmy Kimmel
klár í slaginn
Kimmel knúsar Emmy-styttuna.
Rauða dreglinum rúllað út fyrir
framan Microsoft-leikhúsið í LA.