Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Blaðsíða 47
HARPA, 19. – 20. SEPTEMBER
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Á WWW.BRANDING.ENERGY
Helstu sérfræðingar heims á sviði orku annars vegar og vörumerkjastjórnunar
hins vegar ræða þróun orku markaða og hvaða hlutverki vörumerki gegna í
breyttum heimi. Taktu þátt í umræðunni og kynntu þér í leiðinni stöðu Íslands
sem orkuvörumerkis.
UMSAGNIR UM CHARGE, FYRSTU RÁÐSTEFNU
SINNAR TEGUNDAR Í HEIMINUM:
KEVIN LANE KELLER
PRÓFESSOR Í VÖRUMERKJASTJÓRNUN
"The challenge in energy is to get people more involved
and more engaged and that is going to take some differ-
ent kind of marketing"
ÞÓRARINN ÆVARSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI IKEA
„Góð vörumerki standa með neytendum og einfalda líf
þeirra, enda er það grunnmarkmið IKEA að gera daglegt
líf þægilegra fyrir sem flesta. Þetta á ekki síst við um
orkunotkun, og IKEA er þegar brautryðjandi í LED lýsingu
og hleðslurafhlöðum á viðráðanlegu verði fyrir alla.
Straumar og stefnur í orku verða ræddar á CHARGE og
því tekur IKEA þátt í því samtali.“
SKÚLI MOGENSEN
FORSTJÓRI WOW AIR
„Gæta þarf að því að eyðileggja ekki ímynd Íslands með
skammtímahugsun. Hægt er að virkja hreina ímynd
Íslands og íslenskrar orku án þess að ganga frekar á
auðlindir landsins. Ein leið til þess er að hlúa að
vörumerkinu Íslandi og CHARGE er frábær vettvangur til
að hefja umræðuna.”
HÖRÐUR ARNARSON
FORSTJÓRI LANDSVIRKJUNAR
„Fyrirtæki hafa í vaxandi mæli hagsmuni af því að tengja
vörumerki sín við sjálfbæra nýtingu auðlinda – tenging við
hreina og endurnýjanlega íslenska orku getur styrkt fyrirtæki
í markaðssetningu og gefur ráðstefnan færi á að kynna sér
tækifæri í þessum efnum.“
BIRNA EINARSDÓTTIR
BANKASTJÓRI ÍSLANDSBANKA
„CHARGE er gríðarlega mikilvægur vettvangur í
orkuheiminn og frábært að Ísland sé gestgjafi
fyrir þennan merkilega viðburð.“
ORRI HAUKSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI SÍMANS
„Fimm milljónir nýrra tækja tengjast internetinu á hverjum
degi. Öll nýta þau orku. Vegir orku og fjarskipta liggja
æ víðar saman. Því er mikilvægt fyrir fjarskiptafélag eins
og Símann að vera virkur þátttakandi í orkutækni og
leggja CHARGE lið til að skilja þarfir neytenda í
framtíðinni.“