Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Qupperneq 21
Helgarblað 15.–18. maí 2015 Fréttir 21
Opið virka daga 10 - 18,
laugard. 11 - 16,
sunnud. 14 - 16
Rauðarárstígur 12 - 14
sími 551-0400
www.myndlist.is
Sýningar
í Gallerí
Fold
Jarðnesk ljóð
Tryggvi Ólafsson
1. - 17. maí
Síðasta sýningarhelgi
Geirfuglar
Guðlaug Dröfn
Gunnarsdóttir
9. - 24. maí
Tinni
Ole Ahlberg
9. - 24. maí
Allir vitA lAun AllrA
leggur áherslu á orð sín. Þetta getur
líka leitt til athyglisverðrar þróunar.
Hann bætir við: „Um daginn ýttu
aðrir starfsmenn á það að samstarfs
maður þeirra yrði hækkaður í laun
um þar sem vinnuframlag hans var
svo gott. Hann átti einfaldlega skilið
að vera launahærri.“
Sjálfræði, frelsi til eigin ákvarðana
Annað sem einkennir fyrirtækið
er það að starfsmenn hafa frelsi til
eigin ákvarðana sem birtist meðal
annars í því að innkaupareglur eru
frjálslegar. „Þú getur keypt hvað sem
þú vilt svo lengi sem að það gagnast
Kolibri. Við erum hugbúnaðarfyrir
tæki og þurfum að hafa bestu tölv
urnar og bestu símana, annars erum
við ekki með puttana á púlsinum.
Við erum með reglu sem segir: nýr
sími á tveggja ára fresti og ný tölva á
þriggja ára fresti. Þá fara starfsmenn
einfaldlega sjálfir og kaupa.“
Annað dæmi er að starfsmenn
höfðu frumkvæði að því að endur
bætur voru gerðar á lýsingu í skrif
stofurýminu. „Birtustigið fór í
taugarnar á mörgum og fimm starfs
menn tóku sig saman, ræddu málið
og komu því í farveg að úr því yrði
bætt. Eitthvað sem er í eðli sínu fjár
hagsleg ákvörðun,“ segir Pétur Orri.
Samskiptakerfi þar sem
starfsmenn deila líðan sinni
Fyrirtækið heldur vikulega til
finningafundi. Á fundinum deilir
hver og einn líðan sinni með sam
starfsmönnunum. „Þetta er 90 pró
sent tengt vinnunni en auðvitað
slæðist ýmislegt persónulegt með.
Þú ert búinn að vinna lengi með
fólki og eðlilega ferðu að treysta
vinnufélögunum fyrir ýmsum hjart
ans málum, hlutum sem geta haft
áhrif á störf þín og þá er mönnum
veitt svigrúm. Ég hef til dæmis sagt
vinnufélögum frá því að ég sé leiður
af því að ég var að rífast við konuna,“
segir Pétur Orri.
„Þetta verður eiginlega að vana.
Ég er á fjórum stöðufundum í hverri
viku þar sem við hefjum fundina
með þessum hætti og þetta er líka
orðið að reglu heima hjá mér. Ég á
þrjú börn á aldrinum 6 til 12 ára og
í þrjú ár hafa allir fjölskyldumeðlim
ir haft þennan hátt á, að deila líðan
sinni við kvöldverðarborðið og hvað
valdi henni í daglegu amstri.“
Að sögn Péturs Orra er þetta hluti
af samskiptakerfi sem Kolibri vinnur
eftir og fyrirtækið hefur mikla trú á.
„Grunnhugmyndin í samskiptakerf
inu er sú að varan eða afurð teymis
ins mun líkja eftir eiginleikum teym
isins. Ef teymið er leiðinlegt verður
varan leiðinleg og að sama skapi ef
teymið er áhugavert verður varan
áhugaverð.“
Holocracy – deildir
fyrirtækisins sjálfstæðar
Fyrirtækið starfar einnig sam
kvæmt óhefðbundnu stjórn
skipulagi. Í hefðbundnu skipuriti þá
flæðir valdið frá forstjóranum, nið
ur til framkvæmdastjóra til deildar
stjóra og þaðan til starfsmanna. Í
þannig skipulagi getur sá sem er
ofar í valdastiganum alltaf yfirskrif
að þær ákvarðanir sem teknar eru
neðar í valdaþrepinu. Hjá Kolbri er
notast við stjórnskipulag sem heit
ir Holocracy sem byggist á því að
deildir fyrirtækisins eru sjálfstæðar.
„Við erum til dæmis með „Dictator
of fun“ sem sér um árshátíðir og
skemmtanir starfsmanna og sá
starfsmaður er með fullt vald yfir því.
Það er enginn forstjóri sem ákveður
hvað sé í matinn á árshátíðinni eins
og þekkist hjá sumum fyrirtækjum.
Þessi nálgun hefur verið að ryðja sér
til rúms síðustu ár og hefur reynst
okkur afar vel.“ n
n Kolibri hefur vakið athygli fyrir framúrstefnulega stjórnunarhætti n Starfsmenn deila líðan sinni á tilfinningafundum
„Um daginn ýttu
aðrir starfsmenn
á það að samstarfs-
maður þeirra yrði hækk-
aður í launum þar sem
vinnuframlag hans var
svo gott.
Framkvæmdastjórinn
Pétur Orri Sæmundsen er
framkvæmdarstjóri Kolibri.