Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Blaðsíða 54
Helgarblað 15.–18. maí 201554 Menning
Alhliða veisluþjónusta
Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is
Eingöngu fyrsta flokks hráefni
Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð
Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir
Gerðu daginn eftirminnilegan
Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming
Tíu áhugaverðir listviðburðir
DV tók saman viðburði á Listahátíð í Reykjavík en listinn er þó ekki tæmandi
L
istahátíð í Reykjavík var sett
formlega 13. maí en DV
hefur tekið saman nokkra
athyglisverða viðburði sem
óhætt er að mæla með. Hér
er auðvitað ekki um tæmandi lista
að ræða, heldur það sem menn-
ingarblaðamönnum DV þótti
markvert á hátíðinni og hefur vak-
ið athygli. Hátíðin stendur til 7. júní
næstkomandi. Sérstök áhersla eru
lögð á höfundarverk kvenna, rit-
skoðun og réttindabaráttu á lista-
hátíðinni.
Hægt er að nálgast allar upplýs-
ingar um hátíðina á heimasíðunni
listahatid.is. n
Valur Grettisson
valur@dv.is Górillustelpurnar
með fyrirlestur
Árum saman hafa Guerrilla Girls hrist
upp í áheyrendum með fyrirlestrum
sínum, í fullum frumskógarskrúða. Þær
hafa komið fram í skólum, söfnum og
hvers kyns stofnunum í flestum ríkjum
Bandaríkjanna og mörgum heimsálfum.
Fyrirlesturinn, sem er nokkurs konar
gjörningur, stendur í um það bil eina
og hálfa klukkustund og fylgja honum
spurningar og umræður. Í tengslum við
heimsókn hópsins var nýtt verk, sem var
unnið að beiðni Listahátíðar, afhjúpað 13.
maí síðastliðinn en þar beinir hópurinn
spjótum sínum að hinum karllæga kvik-
myndaheimi Íslands.
Hvar: Bíó Paradís Hvenær: 6. júní.
Nýr gjörningur eftir Rúrí
Gjörningurinn Lindur – Vocal VII er saminn sérstaklega til flutnings
í Norðurljósasal Hörpu á Listahátíð í Reykjavík í ár. Undanfarin ár
hefur Rúrí unnið listaverk þar sem fyrirbærið vatn og hinar marg-
breytilegu birtingarmyndir þess koma við sögu. Meðal þessara
verka, sem hafa verið sýnd víða um heim, er gjörningaröðin Vocal.
Verkið er stórt í sniðum og í því renna saman innsetning, fjölrása
myndband, frumsamið hljóðverk, hreyfing, texti og raddir. Mynd-
bandshluti verksins er unninn í samstarfi við Maríu Rún, hljóðhluti
verksins er unninn í samstarfi við Bjarka Jóhannsson.
Hvar: Harpa/Norðurljós Hvenær: 16. maí
Heimsfrægur djasspíanisti Sænski djasspíanistinn Jan
Lundgren spilar á Listahátíðinni en hann er heimsþekktur á sínu sviði. Jan hefur gefið út hátt
í 50 hljómdiska, en síðasti diskur hans, Flowers of Sendai, vann á síðasta ári verðlaun Jazz
Journal, sem besti djassdiskur ársins. Jan hóf feril sinn sem klassískur píanóleikari, en hefur
frá unglingsárum helgað sig djasstónlistinni. Hann hefur haldið tónleika um allan heim
með tríói sínu við frábærar undirtektir og er á samningi hjá hinu virta ACT-plötufyrirtæki, en
jafnframt hjá píanóframleiðandanum Steinway & Sons, einn fárra djasspíanista.
Hvar: Harpa, Silfurberg Hvenær: 4. júní.
Mannsröddin – Julia Migenes syngur
Þorleifur Örn Arnarsson er einn af okkar fremstu leikstjórum, en hann stýrir hinni heims-
frægu Juliu Migenes í verkinu La Voix Humaine, eða mannsröddin, eftir Francis Poulenc.
Sviðsetning Þorleifs Arnar Arnarssonar er byggð á nýlegri uppfærslu hans fyrir Hessisches
Staatstheater í Wiesbaden. Meðleikari á píanó er Árni Heiðar Karlsson. Julie Migenes á
einstakan feril að baki. Hún fæddist inn í sárfátæka grísk-írska-púertóríkanska fjölskyldu
á Lower East Side í New York. Þegar hún söng hlutverkið Salome í Genf í Sviss valdi ítalski
kvikmyndaleikstjórinn Francesco Rosi hana í hlutverk Carmen á móti Placido Domingo fyrir
samnefnda kvikmynd. Hlutverkið skaut henni upp á stjörnuhimininn, en kvikmyndin hlaut
fjölda verðlauna, m.a. Grammy-verðlaun.
Hvar: Harpa/Eldborg Hvenær: 7. júní
Vann með
Pinu Bausch
Shantala Shivalingappa er uppalin
í París en fædd í Madras-héraði á
Indlandi. Hún hóf ung að árum nám
í aldagömlum indverskum dansi.
Rætur hennar liggja því djúpt í hinum
tjáningarríka frásagnarstíl indverskrar
danshefðar en einstakir hæfileikar
hennar og tækni hafa hrifið þekktustu
danshöfunda heims, þar á meðal Pinu
Bausch og Sidi Larbi Cherkaoui, sem
hvort tveggja hafa starfað með henni
og samið fyrir hana verk. Þessi fjöl-
hæfa og óvenjulega listakona kemur
á Listahátíð með Kuchipudi-verkið
Akasha sem er samið í samstarfi
við Vempati Ravi Shankar. Verkið
samanstendur af fimm kuchipudi
solo-dönsum, þar sem túlkuð eru ljóð
úr hindí-kveðskap, við lifandi tónlist
indverskra tónlistarmanna.
Hvar: Borgarleikhúsið Hvenær: 2. júní.