Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Side 60

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Side 60
60 Fólk Tara Reid Hún var ansi vinsæl um árabil, en hefur að miklu leyti tapað þeim kynþokka sem sóst var eftir frá henni. En þrátt fyrir að Reid hafi ekki leikið stórum kvikmyndum síðustu ár þá hefur hún verið að hasla sér völl í B-myndum. Geena Davis Það hefur ekki sést mikið af Davis síðustu ár, fyrir utan hlutverk í læknadramaþáttunum Grey's Anatomy. Hún hefur ekki fengið stórt hlutverk í kvikmynd síðan snemma á tíunda áratugnum. Helgarblað 15.–18. maí 2015 Espresso t ime bo l la l í nan fæst í s tærr i Hagkaups vers lunum Espresso time bollalínan er björt, litaglöð lína fyrir kaffi elskendur. Bollarnir eru 100ml postulíns- bollar sem eru uppþvottavéla- og örbylgjuvænir. Einfaldir og þægilegir. Kaupauki Gjafapoki fylgir við kaup á tveimur bollum Stjörnur sem eru hættar að skína n Það er ekki endilega ævistarf að vera Hollywood- stjarna n Frægðin getur verið fallvölt H lutirnir gerast oft ansi hratt í Hollywood. Frægðarsól einstaklinga getur risið á skömmum tíma en frægð- in er fallvölt, sérstaklega þegar hlutverkin hætta að koma upp í hendurnar á stjörnunum. Í kvikmynda- bransanum er oft leitað eftir ákveðnu útliti eða ein- kennum sem eru í tísku hverju sinni, og á meðan ákveðinn einstaklingur hentar, þá fær hann hlutverk. Auðvitað hefur það svo líka eitthvað með hæfileika að gera hverjir fá hlutverk og hverjir ekki. Sumir draga sig svo einfaldlega í hlé í brans- anum, að eigin ósk. Hér eru dæmi um nokkrar Hollywood- stjörnur sem skinu skært um tíma, en hafa dofnað á síðustu árum. Og jafnvel alveg horfið af sjónarsviðinu. Liv Tyler Þessi gullfallega leikkona hefur ekki leikið burðarhlutverk í kvikmynd í yfir sex ár. Hún hefur leikið lítil hlutverk í nokkrum myndum, en ekkert þeirra hefur haft sérstök áhrif á feril hennar. Freddie Prinze Jr. Hann hefur alveg skipt yfir í talsetn- ingu og hefur ljáð ýmsum persónum í leikjum, sjónvarpi og kvikmyndum rödd sína. Freddie hefur ekki sést á almennilega á hvíta tjaldinu síðan hann lék í Scooby-Doo myndunum. Demi Moore Hún er klassískt dæmi um leikkonu sem náði hápunkti ferilsins á tíunda áratugnum. Moore hefur ekki slegið almennilega í gegn í kvikmynd síðan hún lék í A Few Good Men árið 1992. Hún ríghélt í æskuljóma sinn á með- an sambandið við Ashton Kutcher varði, en nú þegar því er lokið er kannski málið að eldast með reisn. Jonathan Taylor Thomas Það eru eflaust margir sem muna eftir þessum náunga úr þáttunum Handlaginn heimilisfaðir og sem rödd Simba í Konungi ljónanna. Hann er orðinn fullorðinn en hefur lítið verið viðloðandi kvikmyndabransann síðustu ár. Alicia Silverstone Hún sló heldur betur í gegn í kvik- myndinni Clueless sem frumsýnd var árið 1995. En aðeins tveimur árum síðar fékk hún hræðilega dóma fyrir hlutverk sitt sem Bat Girl í kvikmyndinni Batman og Robin. Skellurinn var það mikill að hún hefur varla náð sér á strik síðan. Jodie Foster Það eru ekki mörg ár síðan hin 52 ára Foster var ein heitasta og eftirsóttasta leikkonan í Hollywood. En frægðarsól hennar hefur sigið og það er óhætt að segja að Foster megi muna sinn fífil fegri. Eddie Murphy Murphy var um árabil vinsælasti gamanleikarinn í Hollywood. Allar myndirnar hans slógu í gegn og hann var eftirsóttur. En áherslurnar hafa breyst og grínið hans hefur ekki átt upp á pallborðið síðustu ár. Hann hefur að mestu leyti snúið sér að tónlist en vonir eru bundnar við nýjustu mynd hans, Beverly Hills Cop 4, sem kemur í kvikmyndahús á næsta ári. Frankie Muniz Það muna allir eftir Malcom úr þáttunum Malcom in the middle sem sýndir voru á Skjá Einum. Leikarinn hefur hins vegar ekki sést síðan framleiðslu þáttanna var hætt árið 2006. Hann ákvað að láta sig hverfa úr kvikmyndabransanum og finna sér nýjan starfsvettvang. David Schwimmer Í hugum flestra er hann bara Ross úr Friends. Hann var góður í því hlutverki en að sama skapi hefur hlutverkið ásótt feril hans í Hollywood. Schwimmer hefur ekki náð sér á strik síðan framleiðslu þáttanna var hætt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.