Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 29

Læknablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 29
LÆKNAblaðið 2016/102 501 Á síðasta aðalfundi Læknafélags Íslands var samþykkt breytingartillaga stjórnar á lögum félagsins varðandi stjórnar- kosningar. Framvegis mun öllum fullgildum félagsmönnum í Læknafélagi Íslands, meira en 1100 læknum, gefast kostur á taka þátt í rafrænni atkvæðagreiðslu við val á formanni og öðrum stjórnarmönnum. Kosið verður í fyrsta skipti samkvæmt þessum nýju reglum haustið 2017. Þá verða kosnir formaður félagsins, gjaldkeri og fjórir meðstjórnendur. Með þessari breytingu er horfið frá því sem verið hefur við lýði undanfarna áratugi, að einungis tilnefndir aðalfundarfulltrúar, 70-80 læknar samtals, kjósi stjórnarmenn félagsins. Aðdragandi þessara breytinga er alllangur. Á aðalfundi Læknafélags Íslands haustið 2014 var eftirfarandi ályktunartillaga samþykkt: Aðalfundur Læknafélags Íslands, haldinn 25. og 26. september 2014 að Hlíðasmára í Kópavogi, felur stjórn félagsins að skipa fimm manna nefnd til að gera tillögur um hvernig heildarskipulagi læknasamtak­ anna verði best fyrir komið til framtíðar. Sérstaklega verði hugað að aðildarfélögunum og stöðu þeirra, fyrirkomulagi aðalfundar og kosn­ ingum til æðstu embætta félagsins. Nefndin skal leggja tillögur sínar fyrir stjórn félagsins eigi síðar en 1. febrúar 2016. Snemma árs 2015 skipaði stjórn Læknafélags Íslands 5 manna starfshóp, undir forystu Magnúsar Páls Albertssonar bæklunar- læknis, sem vinna átti að tillögugerð í anda ofangreindrar álykt- unar. Nefndin skilaði áliti í ágúst 2016 og voru tillögurnar kynnt- ar fyrir læknum á sérstöku málþingi sem haldið var í tengslum við aðalfundinn 2016. Ekki voru að þessu sinni lagðar fyrir aðalfundinn heildstæðar tillögur um breytingar á Læknafélagi Íslands. Var það bæði vegna tímaskorts og þess að talin var þörf á víðtækri umræðu um málið. Þess vegna var það mat stjórnar að eðlilegast væri að hún beitti sér fyrir breytingum á kosninga- reglum félagsins, það væri gott upphafsskref. Stjórn Læknafélags Íslands telur að nýju reglurnar um stjórnarkjör séu lýðræðislegri en eldri reglur og að þær séu í góðu samræmi við óskir lækna. Að auki eru þær í takti við það sem önnur stéttarfélög gera varðandi stjórnarkjör. Rafræn kosning á að fara fram með góðum fyrirvara fyrir aðalfund og niðurstaðan skal tilkynnt á aðalfundi, í fyrsta sinn haustið 2017. Meðal nýmæla sem af þessum breytingum leiða má nefna að stjórn Læknafélags Íslands hættir að stilla upp „lista stjórnar“ eins og gert hefur verið hingað til. Á þeim lista hafa verið þeir læknar sem sitjandi stjórn leggur til að stýri félaginu á komandi kjörtímabili. Þess í stað mun stjórn félagsins skipa þriggja manna kjörnefnd sem hefur það hlutverk með höndum að auglýsa eftir framboðum og halda utan um framkvæmd kosning- anna. Eins og fram kemur í aðalfundarályktuninni frá 2014 er nýtt kosningafyrirkomulag einungis ein af þeim breytingum sem stefna skal að á næstunni. Annað sem huga þarf að er breytt fyr- irkomulag aðalfundar. Á að hverfa frá fulltrúafyrirkomulaginu og hafa í staðinn opinn aðalfund þar sem allir félagsmenn sem mæta hafa jafnan tillögu- og atkvæðisrétt? Eða er ástæða til að ganga alla leið og gera öllum læknum kleift að taka þátt í aðalfundar- störfum með rafrænum hætti og jafnframt að greiða atkvæði um framkomnar tillögur? Slíkt fyrirkomulag væri nýstárlegt því hingað til hefur hin almenna regla verið talin sú að félagsmenn eða fulltrúar þeirra þurfi að vera á aðalfundi til að taka þátt í at- kvæðagreiðslu. Hver sem niðurstaðan verður þarf að meta af yfir- vegun kosti og galla ólíkra aðferða áður en ákvörðun er tekin. Að mínu mati er það nauðsynlegt næsta skref að skoða grunn- uppbyggingu Læknafélags Íslands. Núverandi skipulag byggir á svæðafélögum. Þetta fyrirkomulag hefur í stórum dráttum verið óbreytt frá þeim tíma þegar læknar á Íslandi voru tiltölulega fáir og búsetudreifing þeirra önnur en hún hefur orðið á seinni árum. Nú eru flestir læknar búsettir á höfuðborgarsvæðinu og starfa þar og eru þess vegna í Læknafélagi Reykjavíkur. Læknar gerast ekki beint félagar í Læknafélags Íslands heldur verða þeir það í gegnum sitt svæðafélag (til dæmis í gegnum aðild að Læknafélagi Reykjavíkur, Læknafélagi Vesturlands og svo framvegis). Ég tel að skoða megi að læknar verði beint félagsmenn í Læknafélagi Ís- lands og þeir velji sér síðan sérgreinafélag og/eða hagsmunahóp, allt eftir því sem hverjum og einum hentar best. Dæmi um slíka hagsmunahópa lækna gætu verið sjúkrahúslæknar, stofulæknar, heimilislæknar, almennir læknar, læknar í dreifbýli og svo fram- vegis. Á síðasta aðalfundi samþykktum við læknar tímamóta- breytingar á fyrirkomulagi stjórnarkosninga í félaginu. Á næstu árum þurfum við að huga að frekari breytingum með það fyrir augum að styrkja Læknafélagið. Tryggja þarf að allar breytingar sem gerðar eru á skipulagi Læknafélags Íslands styrki og efli samtakamátt lækna sem stéttar. Kjarabarátta lækna veturinn 2014-2015 sýndi hversu mikilvæg samstaða lækna er og hversu miklu hún getur áorkað. Þorbjörn Jónsson formaður Orri Þór Ormarsson varaformaður Björn Gunnarsson gjaldkeri Magdalena Ásgeirsdóttir ritari Agnar H. Andrésson Arna Guðmundsdóttir Hjalti Már Þórisson Jóhanna Ósk Jensdóttir Þórarinn Ingólfsson Stjórn LÍ Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í Lýðræðislegra Læknafélag Íslands Þorbjörn Jónsson sérfræðingur í ónæmisfræði og blóðgjafarfræði Formaður Læknafélags Íslands thorbjor@landspitali.is Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. * Eliquis : Hemill með beina verkun á storkuþátt Xa, sem er ætlaður til: - Forvarnar gegn heilablóðfalli og segareki í slagæð hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif sem ekki tengist hjartalokusjúkdómum (non-valvular atrial fibrillation, NVAF) ásamt einum eða fleiri áhættuþáttum, svo sem sögu um heilablóðfall eða tímabundna blóðþurrð í heila (transient ischaemic attack, TIA), aldur ≥ 75 ára, háþrýstingi, sykursýki eða hjartabilun með einkennum (NYHA flokkur ≥ II). 1 - Meðferðar við segamyndun í djúplægum bláæðum (DVT) og lungnasegareki (PE) og forvarnar gegn endurtekinni segamyndun í djúplægum bláæðum og lungnasegareki hjá fullorðnum (báðir styrkleikar). 1 - Forvarnar gegn bláæðasegareki (VTE) hjá fullorðnum sjúklingum sem hafa gengist undir valfrjáls mjaðmarliðskipti eða hnéliðskipti (eingöngu fyrir Eliquis 2,5 mg). 1 Heimild: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Eliquis. Maí 2016 Forvörn gegn endurtekinni segamyndun í djúplægum bláæðum og lungnasegareki Meðferð við lungnasegareki Eliquis® er örugg og Meðferð við segamyndun í djúplægum bláæðum Nú geta enn fleiri sjúklingar haft gagn af meðferð með Eliquis ® Forvörn gegn heilablóðfalli og segareki í slagæð hjá sjúklingum með gáttatif sem ekki tengist hjartalokusjúkdómum Forvörn gegn bláæðasegareki eftir valfrjáls mjaðmarliðskipti Forvörn gegn bláæðasegareki eftir valfrjáls hnéliðskipti árangursrík meðferð með nokkrar ábendingar *1 ® ® ® PFI-16-10-01 EUAPI759
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.