Læknablaðið - 01.11.2016, Síða 45
LÆKNAblaðið 2016/102 517
Ö L D U N G A D E I L D
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) auglýsir 2 sérnámsstöður í heimilislækningum lausar til
umsóknar. Aðalstarfsstöð er á Egilsstöðum og yfirlæknir þar er næsti yfirmaður.
HSA hefur langa reynslu af kennslu læknanema, kandídata og sérfræðinema í heimilislækning-
um. Námið verður byggt á marklýsingu fyrir sérnámslækna í heimilislækningum. Við útfærslu
marklýsingarinnar verður lögð áhersla á þann fjölbreytileika sem héraðslækningar kalla eftir og
samtímis að tryggja aðgengi nemans að skipulagðri hópkennslu / námi fyrir sérfræðinemana.
Báðar stöður eru auglýstar til þriggja ára og á námstímanum er gert ráð fyrir námsdvöl á
heilsugæslu í Skotlandi og Norður-Noregi, eina viku á hvorum stað. Kennslustjóri HSA aðstoðar
nema við skipulag sjúkrahússhluta námsins með áherslur héraðslækningar (Rural Medicine) í
huga.
Frekari upplýsingar um stöður og umsókn
Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi, umsóknarfrestur er til 30.11. 2016 og stöðurnar
lausar frá 15.01. 2017 eða eftir samkomulagi. Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og
Læknafélags Íslands. Umsóknum skal skila á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis;
www.landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra, Lagarási 22, 700 Egilsstöðum. Umsókn fylgi stað-
festar upplýsingar um menntun, fyrri störf og starfsleyfi og ef við á um rannsóknir og greinarskrif.
Öllum umsóknum verður svarað. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
Nánari upplýsingar veita:
Hrönn Garðarsdóttir, heimilislæknir og kennslustjóri, S-. 470-3000 og 865-4710,
netf. hronn@hsa.is
Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 470-3050 og 860-6830,
netf. petur@hsa.is,
Emil Sigurjónsson, mannauðsstjóri, s. 470-3050 og 895-2488, netf. emils@hsa.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
● Almennar lækningar
● Heilsuvernd
● Vaktþjónusta
● Þátttaka í kennslu læknanema
og kandídata
Hæfnikröfur
● Almennt lækningaleyfi er skilyrði
● Hæfni í mannlegum samskiptum,
áreiðanleiki, jákvæðni og
sveigjanleiki
● Vilji til þverfaglegrar samvinnu
(teymisvinnu)
● Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og
faglegur metnaður
● Íslenskukunnátta áskilin.
SÉRNÁMSSTÖÐUR Í HEIMILISLÆKNINGUM
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðalög og stofnunin þjónar rúmlega
11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Heilsugæsla HSA hefur ellefu starfsstöðvar og Umdæmis-
sjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Ýmis konar sérfræðileg læknisþjónusta er reglulega í boði í HSA og húðsjúkdómalæknir er þar í föstu starfi, á
aðalkennslustöðinni Egilsstöðum
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Prince Charlie, beið ósigur fyrir her
Englendinga árið 1745, er stjórnað var af
hertoganum af Cumberland, bróður Ge-
orgs III Englandskonungs. Varð mannfall
Skota gríðarlegt og leiddi ósigur þessi
til frekari hreinsunar og niðurlægingar
Hálendinga. Safnið í Culloden, sem byggt
hefur verið til minningar um orustu þessa,
skoðað og farið þar yfir gang hennar. Er
safn þetta mjög viðamikið og aðgengilegt.
Síðasta daginn var ekið frá Inverness til
Edinborgar, heimsóttur kastali í Inverness,
þar sem stytta af Floru MacDonald stend-
ur. Á leiðinni rifjaði Magnús fararstjóri
upp sjálfstæðisbaráttu Skota.
Þakka ber ferðafélögum öllum og þá
ekki síst Magnúsi Jónssyni sagnfræðingi
fyrir frábæra fræðslu og fararstjórn, er ger-
ir ferð þessa ógleymanlega. Án hans hefði
ferð þessi aldrei verið farin.
Í ferðinni komumst við nær uppruna
okkar því að Rögnvaldur á Mæri og Ketill
flatnefur voru ekki aðeins ættfeður Orkn-
eyjajarla heldur líka stórs hluta núlifandi
Íslendinga. Til gamans má geta að undir-
ritaður hefur skoðað ættir 6 ferðafélaga í
Íslendingabók og eru þeir allir frá þeim
komnir í 30. eða 31. lið.
HEILBRIGÐISSTOFNUN AUSTURLANDS
LÆKNASTÖÐUR Á HEILBRIGÐISSTOFNUN AUSTURLANDS
FJÓRAR STÖÐUR LÆKNA
Í HEILSUGÆSLU HSA
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir fjórum læknum
til starfa sem hér segir: Yfirlæknir í Fjarðabyggð og yfirlæknir á
Egilsstöðum. Tveir heilsugæslulæknar, annar með aðalstarfsstöð
í Fjarðabyggð og hinn á Egilsstöðum. Stöðurnar veitast frá 01.09.
2016 og eru 100%, nema um annað sé samið.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Yfirlæk ir samkvæmt starfslýsingu.
• Almennar lækningar.
• Heilsuvernd.
• Vaktþjónusta.
• Kennsla nema.
• Þátttaka í vísindastarfi, gæða-
og umbótaverkefnum.
Hæfnikröfur
• Sérfræðimenntun í heimilis-
lækningum er krafa varðandi
yfirlæk isstarfið og æskileg en
ekki skilyrt fyrir hinar stöðurnar.
• Sjálfstæði í st rfi, skipuleg og öguð
vinnubrögð og faglegur metnaður.
• Reynsla af og vilji til þverfaglegrar
samvinnu (teymisvinnu).
• Hæfni í mannlegum samskiptum,
áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki.
• Áskilinn er réttur til að hafna
umsóknum frá einstaklingum sem ekki
teljast uppfylla framangreind skilyrði.
• Íslenskukunnátta áskilin.
Austurland er stórt og dreifbýlt með um 11 þúsund íbúa, þar sem HSA sinnir
allri heilsugæslu á mörgum stöðvum, rekur Umdæmissjúkrahús Austurlands/
FSN og þrjár hjúkrunardeildir. Auk lækna í heilsugæslu, skurðlæknis og
svæfingalæknis á sjúkrahúsinu starfar húðsjúkdómalæknir hjá HSA og þar er
reglulega veitt ýmiss konar önnur sérfræðiþjónusta. HSA hefur langa reynslu
af kennslu læknanema, kandídata og sérfræðinema í heimilislækningum. Lögð
er áhersla á þverfaglega samvinnu lækna með öðru fagfólki, þ.á.m. hjúkrunar-
fræðingum, ljósmæðrum, sjúkraþjálfurum og iðjuþjálfum.
Umsóknarfrestur er til 0.júní 2016.
Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands, en
áhugasamir eru hvattir til að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um kjör.
Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis;
www.landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra, Lagarási 22, 700 Egilsstöðum.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við
ráðningar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám, starfsreynslu, ken-
nslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa
birt eða skrifað. Mat HSA byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl
verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið
einnig á þeim. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
Nánari upplýsingar veita
Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga
s. 470-3052 og 860-6830, netf. petur@hsa.i
Emil Sigurjónsson, mannauðsstjóri
s. 470-3053 og 895-2488, netf. emils@hsa.is
Kristín B. Albertsdóttir forstjóri HSA
s. 470-3051 og 866-8696, netf. kba@hsa.is.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá
Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm
heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.