Læknablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 40
512 LÆKNAblaðið 2016/102
hefur ekkert tekið frá mér heldur frekar
þroskað mig enn frekar og ég er sannfærð
um að það sé mikilvægt að hafa eitthvað
annað áhugamál en læknisfræðina, svona
einhvers konar búffer. Ég fæ reyndar
reglulega að heyra að ég sé eitthvað
klikkuð en málið er að ég er svo heppin
að ég virka best milli klukkan 22 og 2 á
kvöldin og nóttunni. Þá er ég að læra.“
Hvenær sefurðu þá?
„Já, ég þarf ekki að sofa mjög mikið
svo ef ég þarf fleiri klukkustundir í sólar-
hringinn bý ég þær bara til,” segir Anna
Kristín og hlær. „Mín skoðun er sú að það
er alltaf tími fyrir það sem maður hefur
áhuga á að gera, maður lætur það bara
ganga upp.“
Hún segir dansinn gefa sér orku og
vera gríðarlega góða þjálfun í að temja sér
sjálfsaga og að gefast ekki upp. „Síðustu ár
hef farið erlendis rúman mánuð á hverju
sumri og ég er ekki að ýkja þegar ég segi
að þær vikur eru miklu erfiðari en nokkuð
sem ég hef fengist við í læknisfræðinni.
Þetta er gjörólíkt en á sama tíma svo
margt sem er líkt, eins og bara það að geta
tekið gagnrýni með þakklæti til að geta
tekið framförum. Í sumar sótti ég meðal
annars námskeið í Ísrael hja Ohad Naharin
og Batsheva-flokknum sem hefur þróað
tækni sem hefur haft mikil áhrif á dans-
senuna og voru það vikur sem ég á eftir
að láta mig dreyma um úr ruggustólnum,
þrátt fyrir að hafa nánast sofnað standandi
eftir daginn.“
Loks verður að nefna að þessi kraft-
mikla unga kona hefur ekki látið sér nægja
að dansa og stunda nám í læknisfræði
heldur hefur hún verið atkvæðamikil
í félagslífi læknanema og setið í stjórn
og gegnt formennsku í Lýðheilsufélagi
læknanema.
„Lýðheilsufélagið hefur vaxið og dafn-
að á undanförnum árum og nú sér það
um þrjá stóra viðburði. Það er fyrst að
nefna Bangsaspítalann sem er orðinn að
tveggja daga viðburði í október sem hefur
yfirleitt gengið mjög vel. Þó má segja að
Bangsaspítalinn hafi sprungið í ár og er
þá vægt til orða tekið. Fyrsta árs nemarn-
ir stóðu sig vel og sýndu að þau munu
tækla álagið á Landspítala með prýði í
framtíðinni. Það er virkilega ánægjulegt
hvað þetta er vinsælt en það er augljóst að
það þarf að leggja höfuðið í bleyti varð-
andi skipulagið á næsta ári til að tryggja
öryggi á Barnaspítalanum og geðheilsu
foreldranna. En síðan skipuleggjum við
Blóðgjafamánuð Háskóla Íslands til að
hvetja nemendur að gefa blóð og þriðji
fasti viðburðurinn er blóðtökunámskeið
fyrir læknanema. Fyrir tveimur árum
stækkuðum við þann viðburð og fáum
nú fagfólk til að vera með fræðslu um
handþvott, blóðgös, blóðræktun, blóðtökur
og uppsetningu æðaleggja. Til viðbótar
reynum við að halda 1-2 málþing á ári. Ég
var formaður á 4. ári og veit hreinlega ekki
á hverju ég gekk þann vetur en þetta var
mjög þroskandi og skemmtilegt þökk sé
meðlimum félagsins en við erum dugleg
að skipta með okkur verkum og hjálpast
að. Ég byrjaði svo núna í sumar að taka
þátt í skaðaminnkunarverk efni Rauða
krossins, Frú Ragnheiði, sem hefur verið
mjög lærdómsríkt og gefandi. Það hafa
svo verið forréttindi að fá að taka þátt
í gerð fræðsluefnisins fyrir nýstofnaða
geðfræðslufélagið Hugrúnu ásamt hópi
læknanema, hjúkrunarnema og sálfræði-
nema. Stjórn félagsins hefur unnið að-
dáunarvert starf og eiga þau mikið hrós
skilið fyrir að hafa komið þessu mikilvæga
verkefni á koppinn.
En málið er að mér finnst svo ótrúlega
mikilvægt að átta sig á því snemma að
læknisfræðin er svo miklu meira en að
læra námsefnið utanbókar þó að sjálf-
sögðu sé mikilvægt að vera á tánum og
vel lesinn. Ég hef að minnsta kosti eignast
vini fyrir lífstíð í tengslum við félags-
störfin og dansinn sem hafa kennt mér
svo margt og víkkað sjóndeildarhringinn.
Þegar ég hitti læknanema á fyrsta ári nota
ég alltaf tækifærið og hvet þau til að fest-
ast ekki með nefið í skruddunum, læknis-
fræði er svo miklu meira en bara bókin.“
Það er ljóst að verkefnaskortur mun
ekki valda Önnu Kristínu Gunnarsdóttur
vandræðum á næstunni og Læknablaðið
óskar henni alls hins besta í framtíðinni.
Moyo vinkona fyrir framan Radcliffe Camera, bókasafn og lesaðstöðu hennar og nemenda í Oxford.
sildenafil 50 mg og 100 mg
sildenafil 50 mg og 100 mg
Notkunarsvið: Ristruflanir hjá karlmönnum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Samhliðanotkun efna sem gefa frá sér köfnunarefnisoxíð (s.s. amýlnítrít) og hvers konar
nítrata. Karlmönnum sem ráðið er frá því að stunda kynlíf skal ekki gefa lyfið. Sjúklingar sem tapað hafa sjón á öðru auga vegna framlægs sjóntaugarkvilla vegna blóðþurrðar án slagæðabólgu eiga ekki að nota
lyfið. Sjúklingar með alvarlega skerta lifrarstarfsemi, lágþrýsting, sjúklingar sem nýlega hafa fengið heilablóðfall eða kransæðastíflu eða hafa þekktan arfgengan hrörnunarsjúkdóm í sjónhimnu mega ekki nota lyfið.
Skammtar: Ráðlagður skammtur er 50 mg sem tekinn er eftir þörfum um það bil 1 klst. fyrir samfarir. Með hliðsjón af verkun og þoli má auka skammtinn í 100 mg eða minnka hann í 25 mg. Hámarksskammtur er 100 mg.
Hámarksskammtatíðni er einu sinni á sólarhring. Skert nýrnastarfssemi: Hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi er mælt með notkun 25 mg skammts. Með hliðsjón af verkun og þoli má auka skammtinn
í 50 mg eða 100 mg. Skert lifrarstarfsemi: Mælt er með notkun 25 mg skammts. Með hliðsjón af verkun og þoli má auka skammtinn í 50 mg eða 100 mg. Lyfið
er ekki ætlað einstaklingum yngri en 18 ára. Önnur lyf: Mælt er með að gefa sjúklingum sem eru samtímis meðhöndlaðir með CYP3A4 hemlum, öðrum en
ritonaviri, 25 mg upphafsskammt. Ritonavir á ekki að nota samtímis sildenafili. Til að draga úr líkum á réttstöðuþrýstingsfalli eiga sjúklingar sem nota alfa-blokka
að vera í stöðugu ástandi áður en meðferð með sildenafili hefst. Einnig ætti að hugleiða að hefja meðferð með 25 mg skammti af sildenafili. Upplýsingar um
aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi er LYFIS ehf.
Sími: 534-3500, netfang: lyfis@lyfis.is. Lyfið er lyfseðilsskylt (R) og er ekki með almenna greiðsluþátttöku. Hámarksverð: Sjá verð í lyfjaverðskrá. SmPC: Janúar 2015.
50 mg
með deilistriki
9 mm
100 mg
12 mm
töflur í pakka
24
NÝJUSTU
FRÉTTIR
Nú er hver tafla
af sildenafili
enn ódýrari
Sildenafil LYFIS
markaðssett í
24 stk. pakkningu