Læknablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 32
504 LÆKNAblaðið 2016/102
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Ný viðhorf til streitu hafa verið talsvert
til umræðu eftir fjölmennt málþing sem
haldið var í september á vegum Forvarna
og Streituskólans á Hótel Reykjavík
Natura. Þar var Ólafur Þór Ævarsson
geðlæknir í stóru hlutverki og í síðasta
Læknablaði skrifaði hann ritstjórnargrein
þar sem hann gerði grein fyrir því að nú
er búið að setja fram nýja sjúkdómsgrein-
ingu á alvarlegasta formi þessa útbreidda
sjúkdóms, sjúklegri streitu sem á ensku
nefnist exhaustion disorder og hefur leyst
af hólmi hugtök á borð við kulnun og út-
bruna.
Meðal fyrirlesara á málþinginu var
sænski læknirinn Kristina Glise sem er
forstöðulæknir á Institutet för stressmed-
icin í Gautaborg. Hún sagði að sænsk
stjórnvöld hefðu haft áhyggjur af aukn-
um geðrænum sjúkdómum sem rekja
mætti til streitu en sú aukning hefur
verið merkjanleg um allan heim frá því
á 10. áratug síðustu aldar. Í ljósi þessa
var „Stressklíníkin“ eins og stofnunin er
gjarnan kölluð sett á fót í Gautaborg árið
2004. Þangað er sjúklingum með einkenni
sjúklegrar streitu vísað úr heilsugæslunni
eða frá vinnuverndinni. Þar er þeim veitt
meðhöndlun og/eða þeim vísað áfram til
meðferðar hjá sérfræðingum.
Vanmat á einkennum torveldar bata
Í fyrirlestri sínum sagði Kristina að
streituvaldar væru af ýmsum toga en þeir
algengustu væru þó vanlíðan á vinnustað,
fjárhagsáhyggjur og aðrir erfiðleikar í
starfi eða einkalífi. Oft fer þetta allt saman
og vindur upp á sig. Fyrstu einkenni
streitu eru truflanir á blóðflæði sem valda
verkjum hér og þar í líkama fólks. Því
fylgir pirringur og skapstyggð og þegar
þetta fer að endurtaka sig leynir streitan
sér ekki.
Það auðveldar oft ekki sjúkdómsgrein-
inguna að líkamleg einkenni geta verið
af ýmsum toga en þau algengustu eru
höfuðverkir, brjóstverkir, ógleði og svimi.
Geðræn einkenni á borð við kvíða, depurð
og svefntruflanir eru einnig algeng sem
og hugræn einkenni, svo sem minnis-
truflanir og skortur á einbeitingu. Sé ekki
gripið strax inn eykst vanlíðanin og þróast
oftar en ekki yfir í síþreytu. Algengt er að
sjúklingur fái kvíðakast og þurfi jafnvel að
leggjast inn á sjúkrahús.
Þegar sjúklingur hefur verið greindur
með sjúklega streitu hefst meðferð og hún
skilar yfirleitt góðum bata. Hins vegar eru
tengsl milli þess hversu lengi sjúkdómur-
inn hefur verið að gerjast áður en meðferð
hófst og þess tíma sem tekur að ná bata.
Því lengur sem sjúkdómseinkennin hafa
varað áður en meðferð hefst, þeim mun
lengri tíma tekur það viðkomandi að ná
bata. Batinn felst í því að endurheimta
jafnvægi í lífinu, gera sjúklingnum kleift
að losna við einkennin og endurheimta
fulla starfsgetu, lifa venjulegu lífi og koma
sér upp rútínu.
Sagan af Elsu
Í fyrirlestri sínum fléttaði Kristina Glise
inn sögu af Elsu, 46 ára gömlum hjúkr-
unarfræðingi sem hafði fundið fyrir ein-
kennum sjúklegrar streitu um alllangan
tíma áður en þreytan og kvíðinn yfirbug-
uðu hana og hún var send í sjúkraleyfi.
Hún kom á Stressklíníkina og þar kom í
ljós að ástandið var farið að hamla henni
verulega. Þannig lýsti Kristina ástandi
hennar:
„Hún var illa haldin af síþreytu og
þótt hún stundaði ekki vinnu átti hún
erfitt með heimilisstörf og hreyfingu. Hún
Sjúkleg streita breiðist ört út
– segir Kristina Glise forstöðulæknir Institutet för
stressmedicin í Gautaborg sem miðlar íslenskum
læknum af þekkingu sinni á streitu á Læknadögum í janúar
■ ■ ■ Þröstur Haraldsson
LÍFSREGLUR UM STREITU
Kristina Glise lauk máli sínu með eftirfarandi lífsreglum:
Fyrir þá sem taka ákvarðanir:
Langvarandi streita er hættuleg
Geðræna fylgikvilla streitu verður að taka alvarlega
Batavonin er góð en tekur sinn tíma
Snemmgreining verndar heilsuna og sparar fé
Til atvinnurekenda:
Langvarandi streituálag er hættulegt
Fylgist vel með líðan starfsmanna ykkar
Snemmgreining verndar heilsuna og sparar fé
Batavonin er góð, jafnvel þegar röskunin er orðin sjúkleg
Til lækna:
Langvarandi streituálag er hættulegt
Streita getur sýnt sig í mörgum ólíkum myndum
Snemmgreining er áríðandi
Íhlutun er einföld en henni verður að fylgja eftir