Læknablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 4
476 LÆKNAblaðið 2016/102
F R Æ Ð I G R E I N A R
11. tölublað, 102. árgangur, 2016
479
Jón Atli Benediktsson
Fjármögnun
Háskóla Íslands
Ef ekki verða breytingar á
fjármögnun háskólanna þarf
að endurskoða starfsemi
þeirra og því fylgja miklar
neikvæðar afleiðingar fyrir
allt háskólanám, vísindastarf,
framþróun í atvinnusköpun
og samkeppnisstöðu Ís-
lands.
482
Katrín Guðlaugsdóttir, Elsa B. Valsdóttir, Tryggvi B. Stefánsson
Lífsgæði eftir ristilbrottnám vegna sáraristilbólgu
Nýgengi þarmabólgusjúkdóma í vestrænum löndum hefur verið að aukast frá því
um miðja 20. öld og aukningin virðist tengjast umhverfisþáttum. Þó liggja ekki fyrir
nákvæmlega hvaða þættir í umhverfinu (lífsstíll, mataræði, aukið hreinlæti eða annað)
tengjast þróun sjúkdómanna. Miklar framfarir hafi orðið í lyfjameðferð þarmabólgu-
sjúkdóma undanfarin ár en þó er alltaf stór hluti sjúklinga sem á endanum þarf á
aðgerð að halda. Lífsgæði sjúklinga með alvarlega sáraristilbólgu batna talsvert eftir
brottnám á ristli og eru jafnvel á við lífsgæði almenns þýðis í erlendum rannsóknum.
491
Eyrún Arna Kristinsdóttir, Sigrún Knútsdóttir, Kristinn Sigvaldason,
Páll E. Ingvarsson, Halldór Jónsson jr
Mænuskaði af völdum slysa á Íslandi á árunum 1975-2014
Á rannsóknartímabilinu hlutu 233 manns mænuskaða af völdum áverka. Karlmenn
voru 73% og meðalaldurinn 39 ár. Umferðarslys voru algengasta orsök mænuskaða,
oftast bílveltur í dreifbýli og í að minnsta kosti helmingi tilfella höfðu bílbeltin ekki ver-
ið notuð. Fall var næst algengasta orsök mænuskaða en þar var meðalaldur hæstur.
Reiðmennsku- og vetraríþróttaslys voru algengust af íþróttaslysum. Í um þriðjungi
mænuskaðatilfella var um að ræða alskaða á mænu. Við útskrift höfðu 9% náð fullum
bata. Mikilvægt er að efla enn forvarnir og fræðslu um bílbeltanotkun og öryggi á
vegum landsins.
497
Linda Ó. Árnadóttir, Svanur Sigurbjörnsson, Tómas Guðbjartsson
Beriberi áratug eftir magahjáveituaðgerð – sjúkratilfelli
Tilfellið sýnir hversu mikilvægt er að fylgjast vel með þeim sem hafa farið í maga-
hjáveituaðgerð og sjá til þess að þeir taki til viðbótar fæðubótarefni sem frásogast
í mjógirni. Einnig ber að hafa í huga aðra þættir eins og misnotkun áfengis sem
hafði sitt að segja í þróun sjúkdómsins hjá sjúklingnum. Magahjáveituaðgerðir eru
algengar aðgerðir og læknar þurfa því að kannast við helstu fylgikvilla en einnig þá
sjaldgæfari eins og beriberi, sérstaklega þegar sjúklingar hafa einkenni fjöltaugakvilla
eftir aðgerð.
481
Margrét Helga
Ögmundsdóttir
Nóbelsverðlaunin í
læknavísindum í ár
endurspegla mikil-
vægi sorphirðu og
endurvinnslu
Verðlaunin sýna mikilvægi
grunnrannsókna. Japaninn
Ohsumi hóf rannsóknir á
sjálfsáti fyrir tæpum aldar-
fjórðungi þegar lítið sem
ekkert var vitað um ferlið
sem gegnir lykilhlutverki í
niðurbroti í frumum.
L E I Ð A R A R
Læknadagar í Hörpu
16. janúar til 20. janúar