Læknablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 15
LÆKNAblaðið 2016/102 487
R A N N S Ó K N
listanum. Þónokkrar rannsóknir hafa metið lífsgæði sjúklinga sem
hafa þurft að fara í ristilbrottnám vegna sáraristilbólgu.13,14,16,19,21,25-31
Mun fleiri rannsóknir fjalla um sjúklingahóp með innri garnapoka
en garnarauf. Rannsókn Camilleri-Brennan á meðal sjúklinga með
garnarauf sýndi fram á lífsgæði sambærileg og meðal almenn-
ings.13 Líkt og rannsókn okkar gátu tvær erlendar rannsóknir sem
báru saman lífsgæði sjúklinga með garnarauf og innri garnapoka
ekki sýnt fram á mun á milli hópa.16,25 Rannsókn Muir bar saman
lífsgæði sjúklingahóps fyrir og eftir aðgerð þar sem búinn var til
innri garnapoki og sýndi fram á meiri lífsgæði eftir aðgerð.28 Í yf-
irlitsgrein um lífsgæði sjúklinga eftir innri garnapokaaðgerð voru
skoðaðar 33 greinar þess efnis og komist að þeirri niðurstöðu að
lífsgæði þessa sjúklingahóps séu sambærileg og hjá heilbrigðum
einstaklingum.26 Aldurstengd lífsgæði voru svipuð og meðal al-
menns þýðis að undanskildum 45-54 ára aldurshópnum sem lá
einu staðalfráviki undir almennu þýði. EORTC-niðurstöður fyrir
þennan aldurshóp sýndi mild líkamleg einkenni líkt og hjá hinum
hópunum. Hins vegar hafði þessi hópur minnstan áhuga á kyn-
lífi og þegar litið var á niðurstöður starfræna listans var nokkuð
hátt hlutfall svarenda með neikvæða breytingu á kynlífi í þessum
aldurshópi (8 af 24 einstaklingum). Fáir einstaklingar voru í hverj-
um aldursflokki (8-17 einstaklingar) og vega niðurstöður hvers
sjúklings þungt. Fyrrgreindar rannsóknir hafa ekki sýnt fram á
kyn- eða aldursbundinn mun lífsgæða.
Samkvæmt EORTC-spurningalistanum höfðu þátttakendur
í rannsókn okkar ekki miklar áhyggjur af heilsu sinni, líkams-
ímynd eða þyngd. Í heildina höfðu sjúklingar lítil einkenni og
enginn marktækur munur milli þeirra sem höfðu garnarauf og
þeirra sem ekki höfðu garnarauf. Konur höfðu minni áhuga á
kynlífi en karlar. Hugsanlegt er að það geti endurspeglast í því
að ristilbrottnámsaðgerð geti haft neikvæð áhrif á kynlíf kvenna
í meira mæli en karla eins og kemur fram í okkar rannsókn að
konur höfðu meiri einkenni taugaskaða og verki við samfarir líkt
og ein rannsókn benti til.23 Sýnt var fram á aukin lífsgæði með-
al 83% þátttakenda í rannsókn þar sem sjúklingar undirgengust
innri garnapokaaðgerð (IPAA). Lífsgæði þeirra eftir aðgerð voru
nánast eðlileg og einkenni lítil. Þau einkenni sem jukust eftir að-
gerð voru aðallega tíðni hægðalosunar.32 Önnur rannsókn sýndi
engan marktækan mun lífsgæða og einkenna (að undanskilinni
tíðni hægðalosunar) milli sjúklinga sem farið höfðu í innri garna-
pokaaðgerð og sjúklinga á lyfjameðferð.19 Af þessu má draga þær
ályktanir að einkenni sjúklinga batna til muna eftir aðgerð en
Tafla III. EORTC-niðurstöður út frá aldurshópum.
Virkniskali 25-34 (n=11) 35-44 (n=14) 45-54 (n=17) 55-64 (n=15) 65-74 (n=15) 75- (n=8)
Líkamsímynd 67 (42-88) 88 (39-97) 88 (44-100) 88 (53-100) 88 (58-100) 100 (84-100)
Kvíði 67 (67-100) 67 (42-100) 67 (33-100) 67 (67-100) 100 (67-100) 83 (67-100)
Þyngd 100 (100) 100 (67-100) 67 (33-100) 67 (67-100) 100 (67-100) 100 (67-100)
Kynlíf kk 17 (0-33) 33 (0-33) 33 (33-67) 33 (0-67) 33 (33-50) 33 (33)
Kynlíf kvk 67 (0-33) 67 (67) 67 (50-100) 50 (33-67) 67 (58-75) 100 (100)
Einkennaskali
Tíðni þvagláta 17 (0-25) 25 (0-50) 0 (0-33) 17 (0-17) 8 (0-17) 25 (0-50)
Blóð og slím í hægðum 0 (0-25) 0 (0-13) 0 (0-21) 0 (0) 0 (0) 0 (0-21)
Tíðni hægðalosunar 33 (8-58) 50 (17-67) 33 (0-38) 0 (0-46) 0 (0-17) 33 (8-50)
Þvagleki 0 (0) 0 (0) 0 (0-33) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
Sársauki við þvaglát 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
Kviðverkur 0 (0-33) 33 (0-33) 0 (0-33) 0 (0) 0 (0-33) 0 (0-33)
Verkur í rasskinnum 33 (0-33) 33 (8-33) 0 (0-33) 0 (0) 0 (0) 17 (0-42)
Kviðþensla 33 (0-50) 33 (0-33) 17 (0-67) 0 (0) 0 (0-33) 33 (0-33)
Munnþurrkur 0 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-33) 17 (0-67) 0 (0-33) 33 (0-42)
Hárlos 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
Bragðskyn 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
Vindlosun 0 (0-33) 0 (0-33) 33 (0-33) 33 (0-67) 33 (0-67) 17 (0-33)
Hægðaleki 0 (0-33) 0 (0-25) 0 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-33) 33 (0-33)
Húðeymsli 33 (0-33) 33 (33-67) 33 (0-33) 33 (33-50) 33 (0-33) 33 (33-50)
Blygðun 33 (0-33) 17 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-67) 17 (0-33)
Umönnun garnaraufar 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 17 (0-33)
Risvandamál 0 (0-25) 0 (0-33) 0 (0-33) 50 (0-92) 33 (17-50) 0 (0)
Verkir við samfarir 0 (0) 17 (8-25) 33 (0-33) 17 (0-50) 17 (8-50) 0 (0)
KVK=kvenkyn; KK=karlkyn; EORTC = European Organization for Research and Treatment of Cancer. x = á ekki við.