Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 47
Heimildir 1 Pratley R, Nauck M, Bailey T. et al; for the 1860-LIRA-DPP-4 Study Group. One year of liraglutide treatment offers sustained and more effective glycaemic control and weight reduction compared with sitagliptin, both in combination with metformin, in patients with type 2 diabetes: a randomised, parallel-group, open-label trial. Int J Clin Pract. 2011;65(4):397-407. 2 EMA, http://www.ema.europa.eu/ema/index.jsp?curl=pages/medicines/human/medicines/001026/human_med_001137.jsp&mid=WC0b01ac058001d124. Sótt 20. september 2016. Gríptu í taumana á sykursýki af tegund 2 Fyrir sykursýki af tegund 2 Meira en 5 ára klínísk reynsla2 Victoza minnkar auk þess líkamsþyngd um allt að 3,7 kg1 VICTOZA® Victoza sem viðbót við metformín lækkar HbA1c um allt að 16 mmól/mól (1,5%)1 Umboðsaðili á Íslandi: Vi ct oz a er s kr ás et t v ör um er ki í ei gu N ov o N or di sk A /S . I S/ VT /0 51 6/ 02 74 . Árangur í íþróttum byggir ekki aðeins á líkamlegri getu. Gott hugarfar og góður liðsandi geta einnig skipt höfuðmáli. Með markvissri þjálfun andlegra þátta styrkjum við börn og unglinga fyrir lífið og þátttöku í samfélaginu um leið og við aukum möguleika þeirra á að blómstra á íþróttavellinum. Þetta er stefnuyfirlýsing nýs átaks í íþróttaþjálfun sem sálfræðingurinn Hafrún Kristjánsdóttir tekur þátt í undir yfirskriftinni Sýnum karakter. Hafrún er ásamt Viðari Halldórssyni höfundur efnis á nýrri vefsíðu synumkarakter.is þar sem finna má ýmsan fróðleik og praktískar ráðleggingar til þjálfara og leiðbeinenda sem sinna íþróttaþjálfun, sérstaklega yngri flokka. „Grunnhugmyndin að verk- efninu kemur frá Viðari sem er félags- fræðingur við Háskóla Íslands, og Valdi- mar Gunnarssyni hjá UMSK og það eru UMSK og ÍSÍ sem standa að þessu verkefni í samstarfi við okkur. Á undanförnum misserum hefur verkefnið verið prófað og þróað innan UMSK og er nú svo komið að stærstu íþróttahreyfingar Íslands, Ungmennafélag Íslands og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, hafa tekið höndum saman um það að koma verkefninu á framfæri út í íþróttahreyfinguna.“ Hafrún bendir á þá gleðilegu staðreynd að í kringum 80% allra barna á aldrinum 6-12 ára stunda íþróttaþjálfun utan skóla um lengri eða skemmri tíma. „Uppeldis- þáttur þjálfunar barnanna hefur löngum verið vanmetinn, öll áhersla er lögð á líkamlega færni og tæknilega þætti, en hitt hefur í rauninni orðið útundan,“ segir Hafrún. Lykilþættir í andlegri þjálfun Hafrún lauk doktorsprófi í sálfræði fyrir ári síðan og er sviðsstjóri íþróttafræðisviðs Háskólans í Reykjavík. Hún segir þjálfun þjálfara vera að mörgu leyti á betra stigi hér heima en víða erlendis en þó megi margt gera betur. „Markhópur verkefnisins er öðru fremur þjálfarar barna og ungmenna í íþróttum. Þjálfun yngri flokkanna lendir oftast í höndum þeirra sem yngstir eru í hópi þjálfara og með minnsta reynslu og eiga síðan að vinna sig upp í að þjálfa eldri flokka og enda síðan í því að þjálfa meistaraflokk eða landslið eða eitthvað sambærilegt. Það er auðvitað ekki hægt að hafa algjör endaskipti á þessu en yngstu flokkarnir ættu í rauninni að njóta þjálf- unar og handleiðslu reynslumikilla þjálf- ara því það getur algjörlega skipt sköpum hvernig til tekst í upphafi. Ég var sjálf svo heppin að lenda strax í upphafi hjá frábærum þjálfurum og margir hafa sömu sögu að segja en þeir eru líka ansi margir sem upplifað hafa hið gagnstæða og hættu jafnvel íþróttaiðkun af þeim sökum.“ Á vefsíðunni synumkarakter.is má finna greinar um nokkra þætti hugarfars og liðsanda. Þættirnir eru áhugi, mark- miðasetning, félagsfærni, sjálfstraust, leið- togahæfni og einbeiting og gefin góð ráð um hvernig þjálfa megi þessi atriði með ýmsum æfingum. Vel menntaðir íþróttafræðingar en fáir íþróttakennarar Hafrún segir markmiðið með vefsíðunni einmitt vera að svipta hulunni af þjálfun andlegra þátta og gera þjálfara óhræddari við að nálgast þennan mikilvæga þátt í allri íþróttaþjálfun. „Þjálfunarmál hinna einstöku íþróttasambanda eru í mjög góðu horfi á flestum sviðum en þennan þátt mætti bæta verulega. Þjálfarar eru mik- ilvægar fyrirmyndir í sínu starfi og geta haft mikil og góð áhrif á börn og unglinga. Það er því mikilvægt að þeir geri sér fulla grein fyrir þessu hlutverki sínu og séu meðvitaðir um hvernig þeir eigi að gegna því sem best. Menntun í íþróttafræðum beinist ekki hvað síst að þessum þætti og við erum að fá mjög vel menntaða kynslóð af íþróttafræðingum sem eru vel að sér um þetta. Það er reyndar dapurleg stað- reynd að fæstir þeirra stefna á að starfa við íþróttakennslu innan skólakerfisins en þar ráða aðrir þættir ferðinni sem eru einfaldlega þeir að námið er of langt miðað við þau laun sem eru í boði hjá ríki og sveitarfélögum. Langflestir nemendur mínir stefna á þjálfun innan íþróttahreyf- ingarinnar eða á vegum einkaaðila, til dæmis einkaþjálfun í líkamsræktarstöðv- um. Þetta þarf að laga ef ekki á að verða algjört hrun í stétt íþróttakennara innan nokkurra ára. Vefsíðan er viðbót við stefnu og annað fræðsluefni íþróttahreyfingar- innar og byggir á því að nokkru leyti. Þar er bætt við hagnýtum upplýsingum og aðferðum sem þjálfarar geta nýtt sér í þjálfun barna og ungmenna með einföld- um hætti. Verkefnið er þó hvorki altækt né endanlegt. Því er ætlað að þróast og dafna með framlagi þjálfara – og annarra sem áhuga hafa – sem hafa tækifæri til að koma með ábendingar og frekari fræðslu- punkta inn í verkefnið og það er hugsað sem upphaf að faglegri vinnu í þjálfun karakters en ekki sem endapunktur.“ „Andlegir þættir íþrótta- þjálfunar skipta öllu máli“ segir Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur „Yngstu flokkarnir ættu í rauninni að njóta þjálfunar og handleiðslu reynslumikilla þjálfara því það getur algjörlega skipt sköpum hvernig til tekst í upphafi,“ segir Hafrún Kristjánsdóttir íþróttasálfræðingur. ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.