Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 54

Læknablaðið - 01.11.2016, Blaðsíða 54
526 LÆKNAblaðið 2016/102 Tíðni munnþurrks sambærileg við lyfleysu1,2 Er munnþurrkur umkvörtunarefni sjúklinga með ofvirka þvagblöðru? Fyrsti ß3-örvinn við ofvirkri þvagblöðru1,2 Hefur áhrif á öll aðaleinkenni ofvirkrar þvagblöðru1,2 Tíðni munnþurrks sambærileg við lyfleysu1,2 Opnaðu umræðu um ofvirka þvagblöðru við þína sjúklinga  BET-165760-IC 09.2016 Heimildir: 1. Khullar et al. European Urology 63;(2013):283–295. 2. Nitti et al. J Urol 2013;189:1388–1395 L Æ K N A F É L A G Í S L A N D S Margrét Aðalsteinsdóttir Fræðslustofnun lækna Sólveig Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri LÍ Læknafélag Íslands tekur þátt í margvís- legu erlendu samstarfi í gegnum aðild að alþjóðasamtökum lækna, auk evrópskra og norrænna samtaka. Þannig getur LÍ staðið vörð um hagsmuni lækna, réttindi og öryggi sjúklinga og stuðlað að bættri og öruggari heilbrigðisþjónustu. Fyrsti vísirinn að alþjóðasamtökum lækna varð til árið 1926 með samtökum sem 23 þjóðir stóðu að. Þessi samtök lögð- ust af þegar síðari heimsstyrjöldin braust út en voru endurvakin árið 1947 með þátttöku 27 þjóða, þar á meðal Íslendinga (Læknafélagið). Í dag eiga 112 þjóðir aðild að Alþjóðasamtökum lækna (World Med- ical Association, WMA). Hlutverk samtak- anna er fyrst og fremst að fjalla um sið- fræðileg málefni, um siðareglur í starfi og rannsóknum og um mannréttindi. Lækna- félagið hefur verið virkur aðili að WMA frá síðustu aldamótum þegar Jón Snædal öldrunarlæknir tók sæti í stjórn samtak- anna. Hann átti sæti í stjórninni frá 2001 til 2005, var forseti samtakanna árið 2007 og stjórnarmaður aftur árin 2011-2015. WMA hefur haft mikla þýðingu fyrir siðfræðileg viðmið lækna og víða mótað stefnu löggjafa. Helsinki-yfirlýsingin er eitt dæmi um vinnu samtakanna á sviði vísindasiðfræði og gætir hennar til að mynda í lögum og reglum fjölmargra þjóða. Aðsetur WMA var upphaflega í New York. Sú staðsetning þótti henta afskap- lega vel þar sem skrifstofur Sameinuðu þjóðanna eru þar í borg og stofnendum WMA þótti mikilvægt að halda nánu sambandi við þá stofnun. Árið 1975 fluttist skrifstofa WMA til Ferney-Voltaire í Frakk- landi. Ástæður flutninganna voru meðal annars efnahagslegar en einnig þótti heppilegt að vera í nábýli við alþjóðastofn- anir sem staðsettar eru í Genf og má þar meðal annars telja Alþjóðaheilbrigðis- stofnunina (WHO) og Alþjóðavinnumála- stofnunina (ILO). Læknafélag Íslands varð aðili að fastanefnd lækna í Brussel (Comité Permanent des Médecins Européens, CPME) um miðjan 10. áratug síðustu aldar. CPME eru í raun Evrópusamtök lækna- félaga og að CPME eiga aðild stéttarfélög lækna í aðildarríkjum Evrópusambands- ins. Stofnun CPME má rekja allt aftur til ársins 1959 um það leyti sem Rómarsátt- málinn, stofnsáttmáli Evrópusambands- ins, var gerður. Skrifstofa CPME hefur ver- ið í Brussel frá árinu 1992 en áður flakkaði hún á milli Evrópulandanna, allt eftir því frá hvaða landi forseti samtakanna var. Það er mál manna að mun betur hafi gengið að ná eyrum ráðamanna ESB eftir að skrifstofan var flutt til Brussel. CPME er helsti þrýstihópur lækna gagnvart framkvæmdastjórninni í Brussel. Samtökin móta sér pólitíska stefnu í mál- efnum lækna í Evrópu svo sem varðandi lagaumhverfi og vinnumarkaðsmál. CPME hefur áhrif á stefnumótun í heilbrigðis- málum innan ESB en slíkar ákvarðanir teygja anga sína til Íslands vegna EES- samningsins. Katrín Fjeldsted heimilislæknir hefur verið ötull fulltrúi LÍ í samtökunum allt frá frá árinu 1999. Hún var innri endur- skoðandi samtakanna árin 2005-2006, einn af fjórum varaformönnum 2006-2009, gjaldkeri árin 2010-2012 og loks formaður samtakanna 2013-2015. Katrín var fyrsta konan til að gegna formennsku í CPME. Norræna læknaráðið er samstarfsvett- vangur læknafélaga á Norðurlöndum. Þetta samstarf hófst á sjötta áratugnum en Ísland kom inn í samstarfið nokkru síðar eða á áttunda áratugnum. Til að byrja með funduðu stjórnir læknafélaganna annað hvert ár. Auk þeirra funda sem voru all- stórir hittust fulltrúar stjórna félaganna einu sinni eða tvisvar á ári á minni og óformlegri fundum. Hugmyndir höfðu verið uppi um að færa þetta samstarf í formlegri búning og var tillaga þess efnis samþykkt á fundi Norræna læknaráðsins í Tromsø árið 1992. Fyrsti formlegi fundur stjórnar Norræna læknaráðsins var síðan haldinn í Reykjavík 8. september 1992 og var Sveinn Magnússon kjörinn fyrsti formaður ráðsins. Norrænu læknafélög- in hafa síðan skipst á þessu embætti á tveggja ára fresti. Fundir stjórnar Norræna læknaráðsins eru haldnir tvisvar á ári og þar hittast formenn læknafélaganna. Á fundunum er farið yfir skipulag og stefnumörkun heilbrigðismála, það sem er helst er að gerast í þróun heilbrigðismála í hverju landi fyrir sig, kjaramál lækna og gjarnan er sammælst um samstarf á vettvangi WMA og CPME svo eitthvað sé nefnt. Nokkrir hópar starfa undir Norræna læknaráðinu og hittast þeir reglulega. Norrænu siðfræðiráðin hittast annað hvert ár og fjalla þá um og ræða sameiginleg álitaefni. Vinnuhópur sem ber heitið Sam- nordisk Arbetsgrupp för Prognos- och Specialistutbildningsfrågor (SNAPS) hittist einu sinni á ári. Sá hópur hefur í mörg ár tekið saman upplýsingar um fjölda lækna, gert mannaflaspár og tekið saman upp- lýsingar um framhaldsmenntun lækna á Norðurlöndunum. Norrænu samn- inganefndirnar hittast einnig einu sinni á ári. Á þá fundi mæta fulltrúar úr samn- inganefndum læknafélaganna og fara yfir stöðuna í samningamálum lækna. Þessi vettvangur er ómetanlegur fyrir Lækna- félag Íslands. Í áranna rás hefur safnast í gagnabrunn þekkingar sem reyndist vel í síðustu kjarabaráttu lækna árin 2014-2015. Erlend samskipti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.