Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2016, Blaðsíða 3

Læknablaðið - 01.06.2016, Blaðsíða 3
NÝJUNG PRADAXA® - EINA NÝJA SEGAVARNARLYFIÐ TIL INNTÖKU (NOAC)* MEÐ SÉRTÆKT VIÐSNÚNINGSEFNI, PRAXBIND®1-3 Pradaxa® ábenging: Fyrirbyggjandi meðferð gegn heilaslagi og segareki í slagæðum hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif sem ekki tengist hjartalokum, ásamt einum eða fleiri áhættuþáttum, til að mynda að hafa áður fengið heilaslag eða tímabundna blóðþurrð í heila; aldur ≥ 75 ára; hjartabilun (NYHA flokkur ≥ II); sykursýki; háþrýstingur. Meðferð hjá fullorðnum við segamyndun í djúplægum bláæðum og lungnasegareki og til fyrirbyggjandi meðferðar við endurtekinni segamyndun í djúplægum bláæðum og endurteknu lungnasegareki. Praxbind® ábenging: Praxbind er sértækt viðsnúningslyf fyrir dabigatran og er ætlað fullorðnum sjúklingum sem eru á meðferð með Pradaxa (dabigatran etexílat) þegar nødvendigt hurtigt at modvirke dabigatrans antikoagulerende virkning: 1) Vegna neyðarskurðaðgerðar/áríðandi aðgerða, 2) Vegna lífshættulegrar blæðingar eða blæðingar sem ekki næst stjórn á. Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Praxbind. 2. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Eliquis (apixaban). 3. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto (rivaroxaban). *Í flokknum ný segavarnarlyf til inntöku (novel oral anticoagulation, NOAC) eru lyfin Pradaxa® (dabigatran), Xarelto (rivaroxaban) og Eliquis (apixaban). IS P R A 1 6 -0 3 2 0 1 6 Í málverkinu sem mynd er af á forsíðu Læknablaðsins blandast prófíll manns ólíkum fuglum. Kunnuglegir fuglar eru settir saman í þyrpingu, hver yfir annan, uns þeir fylla upp í vangasvip nokkurs konar sjálfsmyndar listamanns- ins, Helga Þorgils Friðjónssonar (f. 1953). Verkið Íslenskir fuglar og fiskar (2009-11) er hluti af seríu 6 áþekkra verka. Á lárétt- um borða undir manns-/fuglamyndunum er málaður stakur fiskur ásamt öðrum sjávarlífverum. Verkin endurspegla þá tilhneigingu að manngera náttúruna og líta á hana í sinni eigin mynd. Um leið kalla þau fram áráttuna að raða lífríkinu og flokka eftir eigin höfði. Eins og oft í verk- um sínum skírskotar Helgi Þorgils hér til listasögunnar og dregur fram kunnugleg minni sem eins konar opnun til að nálgast verkin. Málverkaröðin vísar til hins ítalska 16. aldar málara, Giuseppe Arcimboldo, og til hins svissnesk-þýska Paul Klee sem átti fylgi að fagna í upphafi 20. aldar. Hinn fyrrnefndi var þekktur fyrir að raða saman hlutum sömu gerðar í mannsandlit. Hann sýndi hugmyndaauðgi og glæsilega tækni þar sem hann mótaði fyrirmyndir með blómum, ávöxtum og sveppum, svo dæmi séu tekin. Hinn síðarnefndi málaði verk á mörkum hins fígúratífa og óhlutbundna, oft á tíðum með barnslegri línuteikningu og sérstæðri litasamsetningu. Verk Klees frá 1925, Gullfiskurinn, sýnir glóandi fisk fyrir miðju á dökkum fleti þar sem önnur dýr sjávarins eru sýnd smærri í jaðri myndflatarins. Helgi Þorgils stundaði listnám á 8. áratugnum. Hann lærði í Myndlista- og handíðaskóla Íslands áður en hann fór til Hollands í fram- haldsnám við De Vrije Akademie í Haag og síðar við Jan van Eyck Academie í Maastricht. Hann sneri aftur til Íslands árið 1979. Helgi Þor- gils var fulltrúi Íslands á Feneyjatví- æringnum árið 1990. Málverkaröð hans, Íslenska fugla og fiska, má sjá á sýningu í Listasafni Reykjavíkur í allt sumar. Magnús Þór Andrésson LÆKNAblaðið 2016/102 263 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL www.laeknabladid.is Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Engilbert Sigurðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Magnús Gottfreðsson Sigurbergur Kárason Tómas Guðbjartsson Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður og ljósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Sigdís Þóra Sigþórsdóttir sigdis@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1800 Prentun, bókband og pökkun Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi Áskrift 12.900,- m. vsk. Lausasala 1290,- m. vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráð- ar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Cita- tion Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abst- racted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 L I S T A M A Ð U R M Á N A Ð A R I N S Lj ós m yn d: P ét ur T ho m se n Læknafélag Reykjavíkur hélt sinn árlega aðalfund þann 24. maí. Arna Guðmundsdóttir formaður setti fundinn og flutti skýrslu stjórnar fyrir starfs- árið 2015. Sjálfkjörið var í öll embætti stjórnar sem kjósa þurfti í og gáfu allir stjórnarmenn kost á sér til endurkjörs. Kjöri þeirra var fagnað með lófa- taki. Allnokkrar umræður urðu á fundinum um frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingar á greiðsluþátttöku sjúklinga og upptöku tilvísana- kerfis til sérfræðinga. Sagði Arna í tölu sinni að yrði frumvarpið að lögum væri komin lagaheim- ild til að taka upp tilvísanakerfi á alla sjálfstætt starfandi sérfræðinga. Voru fundarmenn ekki ánægðir með það. Einnig kom fram að greiðslu- þátttaka sjúklinga til vissra hópa sérfræðinga myndi hækka verulega. Var á það bent að þetta kæmi til dæmis sérlega illa niður á öryrkjum sem sækja þurfa geðlæknisþjónustu. Þá urðu snarpar umræður um nýbirtan pistil Birgis Jakobssonar landlæknis á heimasíðu emb- ættisins þar sem hann leggur fram tillögur að breytingum á heilbrigðiskerfinu í 5 liðum. Þótti fundarmönnum tillögurnar lýsa vanþekkingu á íslenska heilbrigðiskerfinu og að spjótum væri að ósekju beint að sérfræðingum í hlutastöðum á Landspítala. Í lok fundarins var samþykkt ályktun þar sem viðraðar eru áhyggjur Læknafélags Reykjavíkur af fyrrnefndu frumvarpi heilbrigðisráðherra. Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkur Áhyggjur af frumvarpi um greiðsluþátttöku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.