Læknablaðið - 01.06.2016, Blaðsíða 40
300 LÆKNAblaðið 2016/102
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
ástæður þessarar sýklalyfjameðferðar.
Læknirinn myndi sjálfsagt skýra frá því
en þetta eru vinnubrögð sem eiga að
heyra fortíðinni til. Ef læknir ákveður að
veita kollega sínum meðferð ber honum
að skrá það í sjúkraskrá sjúkrahúss eða á
læknastofu sinni eftir atvikum.“
Drukkinn maður ekur á brott
„Það reynir meðal annars á þagnar-
skylduna hjá ungum læknum, kandídötum
og læknanemum, er á bráðamóttöku þar
sem lögreglan er að leita eftir upplýsingum
um einstaklinga sem þangað hafa leitað
og hafa hugsanlega framið eitthvert afbrot
eða verið er að hjálpa þeim við að losa
fíkniefni úr iðrum sér,“ segir Engilbert.
„Þagnarskyldan er alveg skýr í slíkum til-
fellum en í seinna tilfellinu vaknar spurn-
ingin í kjölfarið hvað á gera við fíkniefnin
eftir að viðkomandi hefur verið hjálpað við
að losna við þau.“
Gunnar segir þessa spurningu oft
koma upp og hún sé áhugaverð því að
sjúklingurinn getur með réttu haldið því
fram að efnin séu hans eign og heilbrigðis-
starfsmönnunum beri að afhenda honum
þau. „En fíkniefni eru ólögleg á Íslandi svo
heilbrigðisstarfsfólkið á í rauninni að til-
kynna lögreglu um þau svo hún geti tekið
þau í sína vörslu. Það á hins vegar ekki að
skýra frá því hver var með þau innvortis.
Það er lögreglunnar að komast að því.“
Engilbert nefnir annað dæmi sem get-
ur komið til kasta heilbrigðisstarfsfólks
á bráðadeildum. „Drukkinn maður leitar
á bráðamóttöku til aðhlynningar. Starfs-
fólkið horfir síðan á eftir honum slaga út
um dyrnar, setjast upp í bíl sinn og aka á
brott. Þarna ber skilyrðislaust að tilkynna
lögreglu um atvikið þar sem maðurinn er
að fremja afbrot og er jafnframt ógn við
almannahagsmuni þannig að neyðarrétt-
arsjónarmið grípi inn í. Þarna á þagnar-
skyldan ekki við.“
Heimilisofbeldi og Barnaverndarlög
Þeir nefna ýmis álitamál sem komið geta
upp í starfi lækna og hjúkrunarfólks varð-
andi ofbeldi þar sem fórnarlambið leitar
aðhlynningar en vill ekki kæra ofbeldis-
manninn. „Heimilisofbeldi er sannarlega
einn þáttur í þessu en ef fórnarlambið vill
alls ekki kæra eða gefur hreinlega allt aðra
skýringu á áverkunum getur starfsmaður-
inn ekkert gert annað en virða trúnað við
sjúkling sinn. Það sem skiptir öllu máli er
að sjúklingurinn verður að geta treyst því
að heilbrigðisstarfsfólkið geri að sárum
og áverkum án þess að það hafi einhverj-
ar aðrar og jafnvel verri afleiðingar fyrir
sjúklinginn að hans mati,“ segir Gunnar.
„Hins vegar getur heilbrigðisstarfsmað-
urinn rætt þetta á almennum nótum við
sjúklinginn og bent á leiðir sem færar eru
fyrir þolendur heimilisofbeldis. En það
verður að vera á forsendum sjúklingsins,
það er hans að ákveða hvað gera skuli,“
segir Engilbert.
Gunnar bendir á að ákvæði í Barna-
verndarlögum skyldi heilbrigðisstarfólk
til að skýra frá því ef grunsemdir vakna
um illa meðferð barns. „Þar er búið að
ganga þannig frá að heilbrigðisstarfs-
manni ber skylda til að tilkynna til
Barnaverndarnefndar ef grunur vaknar.
Starfsmaðurinn á ekki að leggja mat á
sannleiksgildi grunsemdanna, grunurinn
einn nægir til að virkja tilkynningaskyldu
hans. Þarna gengur upplýsingaskyldan
lengra en þagnarskyldan. En sé um full-
orðna einstaklinga að ræða höfum við
sagt við læknanemana að ef þeir séu í vafa
um hvort þeir eigi að tilkynna eitthvert
tilvik skuli þeir ávallt láta vafann ráða,
þagnarskyldunni í vil. Við segjum; ef þú
ert í vafa tilkynnirðu ekkert fyrr en þú ert
búinn að afla þér nánari upplýsinga, leita
til reynslumeiri starfsmanns, Embættis
landlæknis eða lögmanns sjúkrastofnunar-
innar.“
„Það sem skiptir öllu máli er að sjúklingurinn verður að
geta treyst því að heilbrigðisstarfsfólkið geri að sárum og
áverkum án þess að það hafi einhverjar aðrar og jafnvel
verri afleiðingar fyrir sjúklinginn að hans mati,“ segir
Gunnar.
„Það reynir meðal annars á þagnarskylduna hjá ungum
læknum, kandídötum og læknanemum á bráðamóttöku
þar sem lögreglan er að leita eftir upplýsingum um
einstaklinga sem þangað hafa leitað og hafa hugsanlega
framið afbrot eða verið er að hjálpa þeim við að losa fíkni-
efni úr iðrum sér,“ segir Engilbert.
CP REYKJAVÍK er frísklegt og skapandi þjónustu-
fyrirtæki sem skipuleggur viðburði, ferðir og ráðstefnur
fyrir innlenda og erlenda viðskiptavini.
Hafðu samband og við gerum þér tilboð
í ógleymanlega upplifun
Suðurlandsbraut 6 - 108 Reykjavík - 510 3900 - www.cpreykjavik.is
VIÐ GERUM ATVINNULÍFIÐ
VIÐBURÐARÍKARA