Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.06.2016, Qupperneq 26

Læknablaðið - 01.06.2016, Qupperneq 26
286 LÆKNAblaðið 2016/102 R A N N S Ó K N Umræður Rannsókn þessi er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og gefur glögga mynd af því hversu lengi sjúklingar á stærsta sjúkrahúsi landsins fasta fyrir skurðaðgerð og hvaða fræðslu þeir fengu um föstuna. Þetta eru mikilvægar upplýsingar sem nýta má til samanburðar við önnur lönd og til umbóta á verklagi innan sjúkrahússins. Það kom skýrt fram að nær allir sjúklingar fasta mun lengur en leiðbeiningar kveða á um og sá munur er sláandi þegar bornir eru saman morgunsjúklingar og eftirmiðdagssjúklingar sem fara í valaðgerðir. Flestir sjúklingar fasta tvöfalt lengur en ráðleggingar kveða á um og nær 50% fasta fimmfalt lengur á drykki, sem hlýtur að teljast óásættanlegt. Þessar niðurstöður eru sambærilegar við úttekt Roberts8 sem sýndi að 51% sjúklinga föstuðu 7-12 klukku- stundir umfram ráðleggingar á mat og 57% allt að 5 klukkustund- um umfram ráðleggingar á drykki. Hins vegar var umframfasta algengari og lengri hjá morgunsjúklingum en eftirmiðdagssjúk- lingum í úttekt Roberts, sem er skýrt þannig að eftirmiðdagssjúk- lingar hafi í meira mæli borðað morgunverð fyrir komu á sjúkra- húsið. Þessi rannsókn sýndi einnig að bráðasjúklingar föstuðu lengur en valaðgerðasjúklingar, svipað og kom fram í rannsókn Falconer og félaga.7 Ástæður þessa kunna að liggja í sjúkdóms- ástandi sjúklings, þar sem bráðasjúklingar eru oft hafðir fastandi frá komu á sjúkrahúsið eða við upphaf veikinda og ferlið frá þeirri ákvörðun þar til ákveðið hefur verið að gera skurðaðgerð og koma sjúklingi að á skurðstofu getur verið mjög langt. Þrátt fyrir þessar niðurstöður voru þó vísbendingar um breytingar á verklagi varðandi leiðbeiningar um föstu því nokkuð margir sjúklingar drukku tæra vökva þar til tveir tímar voru til aðgerðar. Mynd 1. Lengd föstu á mat umfram gildandi leiðbeiningar hjá valaðgerðasjúklingum, flokkað eftir tímasetningu aðgerðar. Mynd 2. Lengd föstu á tæra drykki umfram gildandi leiðbeiningar hjá valaðgerðasjúk- lingum, flokkað eftir tímasetningu aðgerðar. Tafla II. Valaðgerðir: Tengsl tímalengdar föstu við bakgrunnsbreytur og fræðslu. Matur Drykkur n1) meðaltími föstu í klst. (staðalfrávik) p-gildi2) n1) meðaltími föstu í klst. (staðalfrávik) p-gildi2) Kyn karlar konur 56 72 13,2 (2,5) 13,5 (2,8) 0,545 52 67 8,7 (4,3) 8,4 (4,0) 0,691 Tími aðgerðar fyrir hádegi eftir hádegi 99 29 12,7 (2,5) 15,5 (1,9) <0,001 93 26 8,1 (3,8) 10,1 (4,9) 0,033 Ráðleggingar um lengd föstu samkvæmt gildandi leiðbeiningum ekki samkvæmt leiðbeiningum 33 84 12,5 (2,7) 13,7 (2,6) 0,025 44 65 8,2 (4,4) 9,0 (3,9) 0,330 Form upplýsinga munnlegar og skriflegar munnlegar eða skriflegar 60 52 13,1 (2,6) 13,8 (2,7) 0,149 57 47 7,3 (3,5) 10,6 (4,1) <0,001 Upplýsingar um mikilvægi föstu já nei 56 44 13,4 (2,6) 13,5 (2,9) 0,848 52 41 9,1 (4,5) 8,6 (4,0) 0,592 1n – sýnir fjölda þeirra sjúklinga sem höfðu skráðar upplýsingar í sjúkraskrá um komutíma á skurðstofu og hvenær fasta hófst. 2p-gildi fyrir tvíhliða t-próf.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.