Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.2016, Page 31

Læknablaðið - 01.06.2016, Page 31
LÆKNAblaðið 2016/102 291 R A N N S Ó K N margar stúlkur og drengir neituðu að svara, eða 67. Af þeim 1527 stúlkum sem tóku afstöðu kváðust 17,6% einhvern tíma hafa orðið fyrir snertingu eða káfi gegn eigin vilja. Stúlkur voru um það bil fjórum sinnum líklegri en strákar til þess að hafa orðið fyrir snertingu eða káfi einu sinni eða nokkrum sinnum, en munurinn milli kynjanna var nær enginn meðal þeirra sem sögðust oft hafa lent í slíku. Til spurningarinnar „Hefur einhver annar látið þig snerta sig með kynferðislegum hætti gegn þínum vilja?“ tóku 1565 strákar og 1555 stelpur afstöðu, en 159 strákar svöruðu engu og 59 neituðu að svara. Sambærilegar tölur fyrir stelpur voru 135 og 41. Af þeim sem svöruðu sögðust 4,1% stráka en 8,5% stelpna hafa orðið fyrir slíku. Stúlkur voru um það bil þrisvar sinnum líklegri en strákar til að hafa upplifað slíkt einu sinni en munurinn milli kynjanna var minni meðal þeirra unglinga sem höfðu oftar lent í þessháttar aðstæðum. Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar „Hefur einhver reynt að hafa við þig samfarir eða munnmök gegn þínum vilja?“ sögðust 6,3% stráka og 12,7% stelpna hafa orðið fyrir slíku. Alls slepptu 161 strákur og 139 stelpa að svara og að auki neituðu 49 strákar og 52 stelpur að svara. Stúlkurnar voru mun líklegri en strákarnir til að greina frá slíkri reynslu nema meðal þeirra sem höfðu oftast orðið fyrir slíku en þar var nær enginn munur á kynj- unum. Þegar þátttakendur voru inntir eftir því hvort einhverjum hefði tekist að hafa við þá samfarir eða munnmök gegn vilja þeirra, slepptu 301 þeirra að svara (161 strákar og 140 stelpur) og auk þess neituðu 104 að svara (54 strákar og 50 stelpur). Af þeim sem tóku afstöðu reyndust 4,1% stráka og 6,7% stúlkna vera þolendur þess- háttar ofbeldis. Stúlkur voru mun líklegri en strákar til þess að hafa einu sinni orðið fyrir slíku en meðal þeirra sem höfðu oftar orðið fyrir slíku ofbeldi var enginn munur á kynjunum. Í töflu IIa sjást tengsl ýmissa neikvæðra mælinga við reynslu unglinganna af því að hafa orðið fyrir kynferðislegu káfi gegn eigin vilja. Í öllum mælingum nema einni (lögð/lagður í einelti oft í viku) sést að útkoman fyrir þá sem hafa einu sinni lent í slíku er um það bil tvöfalt líklegri til að vera neikvæð en fyrir þá sem aldrei hafa lent í þvílíku. Hópurinn sem oft hefur orðið fyrir kyn- ferðislegu káfi gegn sínum vilja sker sig hins vegar úr með mjög afgerandi hætti og ljóst að tengingin við ýmiskonar áhættuhegðun og vanlíðan er afar sterk meðal þeirra. Einnig er athyglisvert að sjá að þeir unglingar sem merktu sérstaklega við að þeir neituðu að svara hafa talsvert neikvæðari útkomu en þeir sem aldrei sögðust hafa orðið fyrir slíku. Daglegar reykingar voru mun algengari meðal þeirra unglinga sem höfðu orðið fyrir kynferðislegu káfi en þær virtust aukast enn meira meðal stúlkna. Þannig sögðust 0,7% stúlkna sem aldrei hafði verið káfað á kynferðislega reykja daglega, en 34,4% þeirra sem oft höfðu orðið fyrir slíku. Það sama átti við um 1,6% og 19,4% strák- anna. Að hafa orðið fyrir kynferðislegu káfi jók einnig líkurnar á því að unglingarnir hefðu orðið drukknir 10 sinnum eða oftar og voru áhrifin meiri meðal stúlkna en drengja. Meðal þeirra stúlkna sem aldrei höfðu orðið fyrir slíku höfðu 0,6% orðið drukknar svo oft um ævina en það sama átti við um 34,4% þeirra sem sögðust oft hafa orðið fyrir kynferðislegu káfi. Sambærilegar tölur fyrir stráka voru 1,2% og 25,8%. Ekki sást munur milli kynja í öðrum mælingum á breytum í töflu IIa. Í töflu IIb eru sýnd tengsl þess að unglingar hafi verið látn- ir snerta einhvern annan með kynferðislegum hætti gegn sínum vilja, við sömu neikvæðu mælingarnar og í töflu IIa. Í stuttu máli má segja að sama mynstrið komi fram með enn sterkari neikvæð- um hætti. Þolendur voru líklegri til að hafa verið lagðir í einelti nokkrum sinnum í viku, með enn sterkari hætti hjá strákum en stelpum. Meðal strákanna voru 0,3% þeirra sem aldrei höfðu verið látnir snerta annan með kynferðislegum hætti gegn vilja sínum lagðir í einelti svo oft, en það sama átti við um 40,0% þeirra sem oft höfðu upplifað slíkt kynferðisofbeldi. Sambærilegar tölur fyr- ir stúlkurnar voru 0,6% og 23,5%. Þetta virtist einnig hafa meiri áhrif á líðan stráka í skóla en stúlkna. Af þeim strákum sem aldrei höfðu lent í slíku sögðust 2,5% að sér liði alls ekki vel í skólanum en 40,0% þeirra sem oft höfðu gert það. Það sama átti við um 1,7% og 17,6% stúlkna. Annar kynjamunur greindist ekki í mælingum sem birtar eru í töflu II. Í töflu IIc þar sem áhrif þess að einhver hafi reynt að hafa við unglingana samfarir eða munnmök gegn þeirra vilja eru skoðuð eru tengslin við neikvæða þætti jafn afgerandi og í töflu IIb. Ekki Tafla I. Algengi kynferðislegrar áreitni og ofbeldis gegn unglingum í 10. bekk, n (%). Strákar Stelpur Hefur einhver snert þig eða káfað á þér með kynferðislegum hætti gegn þínum vilja? Neita að svara 64 (3,9) 67 (4,2) Aldrei 1460 (89,8) 1258 (78,9) Einu sinni 39 (2,4) 150 (9,4) Nokkrum sinnum 31 (1,9) 86 (5,4) Oft 31 (1,9) 33 (2,1) Hefur einhver annar látið þig snerta sig með kynferðislegum hætti gegn þínum vilja? Neita að svara 59 (3,6) 41 (2,6) Aldrei 1501 (92,4) 1423 (89,2) Einu sinni 30 (1,8) 84 (5,3) Nokkrum sinnum 19 (1,2) 31 (1,9) Oft 15 (0,9) 17 (1,1) Hefur einhver reynt að hafa við þig samfarir eða munnmök gegn þínum vilja? Neita að svara 49 (3,0) 52 (3,3) Aldrei 1474 (90,9) 1345 (84,5) Einu sinni 43 (2,7) 114 (7,2) Nokkrum sinnum 32 (2,0) 60 (3,8) Oft 24 (1,5) 21 (1,3) Hefur einhverjum tekist að hafa við þig samfarir eða munnmök gegn þínum vilja? Neita að svara 54 (3,3) 50 (3,1) Aldrei 1504 (92,7) 1437 (90,3) Einu sinni 24 (1,5) 63 (4,0) Nokkrum sinnum 21 (1,3) 22 (1,4) Oft 19 (1,2) 19 (1,2)

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.