Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.06.2016, Qupperneq 32

Læknablaðið - 01.06.2016, Qupperneq 32
292 LÆKNAblaðið 2016/102 R A N N S Ó K N var hægt að sjá merkjanlegan mun á áhrifum slíkra tilrauna eftir kyni þolenda. Í töflu IId sést útkoman fyrir þá sem orðið hafa fyrir nauðgun. Eins og vænta mátti voru áhrif ofbeldisins sterkust á þennan hóp og þau voru að minnsta kosti tífalt líklegri til að falla innan nei- kvæðra mælinga en þeir sem aldrei hafa lent í viðlíka. Um helm- ingur þeirra sem hafa orðið fyrir nauðgun höfðu þannig orðið drukkin oftar en 10 sinnum og sama hlutfall hafði prófað kanna- bis. Munurinn á reynslu þessara unglinga og annarra af mjög tíðu einelti var einnig mjög afdráttarlaus – þau voru líklegri til þess að vera bæði gerendur og þolendur eineltis. Enginn munur sást á milli kynja í þeim breytum sem skoðaðar voru í töflu IId. Umræða Alls hafa 14,6% íslenskra unglinga í 10. bekk orðið fyrir einhvers konar kynferðislegu ofbeldi eða áreitni, sem er svipað algengi og í flestum rannsóknum sem styðjast við svipaðar skilgreiningar. Um þriðjungur þeirra kvaðst hafa upplifað slíkt einu sinni. Athygli vekur að tveir þriðju hlutar sögðust hafa ítrekað orðið fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi eða áreitni. Mun algengara var að stúlkur hefðu orðið fyrir öllum gerðum ofbeldisins, en kynjahlutfallið var reynd- ar frekar jafnt í þeim hóp sem oftast hafði orðið oft fyrir barðinu á slíku. Um 1% þátttakenda sagðist mjög oft hafa orðið fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi eða áreitni og upplifað allar tegundir slíks. Þó umfang kynferðislegrar áreitni og ofbeldis gegn unglingum sé álíka mikið hér á landi og annars staðar á Vesturlöndum er vert að taka fram að það er talsvert hærra nú en í svipaðri íslenskri rannsókn frá árinu 2004,26 þar sem það mældist 11,5% fyrir sama aldurshóp. Þessi aukning verður í fljótu bragði ekki skýrð með mismunandi aðferðafræði og hlýtur að kalla á frekari greiningu. Þrátt fyrir að þessi rannsókn leiði í ljós að kynferðisleg áreitni og ofbeldi gagnvart unglingum í 10. bekk sé algengt, er mikilvægt að benda á að rannsóknir frá Bandaríkjunum27 sýna að mjög fjölgar í hópi þolenda á síðari hluta unglingsára, og þá sérstaklega meðal stúlkna. Þannig kom í ljós í umræddri rannsókn að fjöldi stúlkna sem hafði orðið fyrir slíku jókst úr 17% meðal 15 ára upp í 27% meðal 17 ára. Samsvarandi tölur fyrir drengi á sama aldri voru 4% sem jókst upp í 5%. Þetta kann að skýra muninn á niðurstöðum þessarar greinar og og rannsóknar á eldri íslenskum unglingum sem sýndu hærri tíðni.8 Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna skýr tengsl milli kyn- ferðislegrar áreitni og ofbeldis annars vegar og neikvæðra þátta í lífi unglinganna hins vegar. Margfalt algengara er að þeir sem hafa orðið fyrir slíku hafi oft orðið drukknir, reyki tóbak og hafi prófað kannabis. Þeir eru einnig mun líklegri til þess að þjást af verkjum, eiga í svefnörðugleikum, vera pirraðir og taugaóstyrk- ir. Mun fleiri þeirra tengjast líka einelti – bæði sem þolendur og gerendur. Upplifun þeirra af skólastarfi er sömuleiðis mun nei- kvæðari. Þó að þeir unglingar sem oftast hafa orðið fyrir kynferð- islegu ofbeldi eða áreitni hafi augljóslega neikvæðustu útkomuna á þessum þáttum, er ljóst að jafnvel þeir sem aðeins hafa orðið einu sinni fyrir slíku koma mun verr út en hinir sem aldrei hafa upplifað þvíumlíkt. Þessi tengsl milli kynferðislegrar áreitni og ofbeldis annars vegar og vanlíðunar og áhættuhegðunar hins vegar hafa ítrekað komið fram í fyrri rannsóknum. Safngreiningar hafa sýnt fram á fylgni milli kynferðislegs ofbeldis eða áreitni í æsku og auk- innar hættu á sálrænum einkennum almennt en þó sérstaklega á áfallastreituröskun, þunglyndi og sjálfsvígshættu. Þá hefur einnig verið sýnt fram á í fjölmörgum rannsóknum að slík reynsla eykur líkurnar á vímuefnavanda meðal fórnarlamba. Fræðimenn á sviðinu hafa varað við þeim vítahring sem þessir einstaklingar geta lent í þegar þeir nota vímuefni til að vinna gegn vanlíðan í kjölfar ofbeldisins en verða um leið útsettari fyrir frekari misnotk- un.28 Í grein eftir Kristman-Valente og félaga29 kom fram að það hvort ungmenni hefðu reynslu af slíku eða ekki spáði fyrir um það hvort þeir reyktu oft eða ekki. Það spáði hins vegar ekki fyrir um það hvort þeir hefðu prófað að reykja einhvern tíma um ævina. Þetta er í samræmi við okkar niðurstöður. Tafla II. Tengsl ólíkra gerða kynferðislegrar áreitni og ofbeldis við vanlíðan og áhættuhegðun. N (%). IIa Hefur einhver snert þig eða káfað á þér með kynferðislegum hætti gegn þínum vilja? Aldrei Einu sinni Nokkrum sinnum Oft Neitar að svara Reykir daglega 35 (1,3) 11 (5,8) 8 (6,8) 22 (31,4) 13 (9,3) Orðið drukkin/n oftar en 10 sinnum 26 (0,9) 11 (5,8) 8 (6,7) 22 (31,9) 10 (7,1) Prófað kannabis 138 (5,0) 32 (16,8) 18 (15,1) 29 (42,6) 16 (11,3) Höfuðverkur nær daglega 120 (4,3) 22 (11,5) 21 (17,5) 25 (36,2) 16 (11,2) Magaverkur nær daglega 95 (3,4) 14 (7,4) 7 (5,8) 18 (25,7) 10 (7,1) Bakverkur nær daglega 238 (8,6) 36 (18,8) 22 (18,3) 20 (28,6) 25 (17,7) Depurð nær daglega 173 (6,3) 45 (23,7) 37 (31,1) 24 (33,8) 28 (20,0) Pirringur eða vont skap nær daglega 214 (7,8) 40 (20,9) 35 (29,2) 25 (35,7) 20 (14,2) Taugaóstyrk/ur nær daglega 188 (6,8) 34 (18,0) 36 (30,0) 25 (36,8) 28 (20,0) Svefnörðugleikar nær allar nætur 240 (8,7) 43 (22,5) 29 (24,2) 24 (34,8) 29 (20,6) Leggur í einelti oft í viku 13 (0,5) 2 (1,1) 3 (2,5) 13 (18,8) 8 (5,8) Lögð/lagður í einelti oft í viku 6 (0,2) 0 (0,0) 0 (0,0) 11 (16,2) 3 (2,2) Líður alls ekki vel í skóla 54 (1,9) 10 (5,2) 9 (7,5) 114 (20,0) 14 (9,9)

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.