Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.2016, Page 39

Læknablaðið - 01.06.2016, Page 39
LÆKNAblaðið 2016/102 299 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R sérhverjum manni friðhelgi um einkalíf sitt að þessu leyti. Til að tryggja þá friðhelgi verður löggjafinn meðal annars að gæta að því að lög leiði ekki af sér raunhæfa hættu á að upplýs- ingar sem þessar um einkahagi tiltekins manns komist í hendur annarra sem eiga ekki réttmætt tilkall til aðgangs að þeim hvort sem um er að ræða aðra einstaklinga eða handhafa ríkisvalds. Brot á stjórnarskrárvörðum réttindum „Hvernig í ósköpunum er hægt að sjá það fyrir sér að skattyfirvöld geti átt rétt á því að fá þessar persónulegu upplýsingar í hendurnar þar sem búið er að koma því á framfæri að tiltekinn einstaklingur leitar til heilbrigðisstarfsmanns eftir tiltekinni þjónustu sem hann vill að ríki leynd yfir. Með öðrum orðum: margar þeirra kvenna sem í hlut áttu treystu því algjörlega að enginn óviðkomandi fengi upplýsingar um að þær hefðu farið í brjóstapúðaað- gerð. Þarna finnst mér að Hæstiréttur sé í mótsögn við sjálfan sig í tveimur dómum sem felldir voru með nokkurra ára milli- bili. Ef seinni niðurstaða Hæstaréttar telst vera í samræmi við gildandi lög verður að álíta að löggjafinn hafi gengið of langt og höggvið afar nærri stjórnarskrárvörðum réttindum þegnanna um friðhelgi einka- lífs,“ segir Gunnar og bætir því við að þessi dómur pirri hann í hvert sinn sem hann fari yfir hann með læknanemunum í kennslu þeirra Engilberts. Engilbert leggur hér orð í belg og segir að jafnvel þó konurnar hefðu laga- legan grundvöll til að sækja mál um að á þeim hafi verið brotin stjórnarskrárvarin réttindi sé málið þess eðlis að þær vilji að öllum líkindum alls ekki stíga fram undir nafni. „Það á reyndar við um fleiri tilfelli þar sem þagnarskylda hefur verið brotin á sjúklingum en af ýmsum ástæðum telja þeir sig ekki geta lögsótt viðkomandi. Þeir treysta sér hreinlega ekki til að koma fram og gera öllum heyrinkunnugt um sjúkdóm sinn.“ Sjúkraskrá og gangalækningar Umræðan snýst í kjölfar þessa um öryggi upplýsinga í rafrænni sjúkraskrá en fyrir nokkrum árum komu upp tilfelli þar sem sýnt þótti að upplýsingar um tiltekna þekkta einstaklinga hefðu spurst út. „Ég held reyndar að þau mál hafi orðið til þess að fyrir þetta var byggt og enginn heil- brigðisstarfsmaður getur leitað upplýsinga um sjúkling í rafrænni sjúkraskrá án þess að skilja eftir sig rafræn spor. Það er alltaf hægt að sjá hver fletti upplýsingunum upp,“ segir Engilbert. Gangalækningar er hugtak sem læknar þekkja og tekur til þess er læknar leita til hvers annars eftir lyfseðlum eða meðferð sem hvergi er skráð í sjúkraskrá viðkom- andi. „Það er mikill misskilningur að læknar þurfi ekki að vera með jafn ítar- lega sjúkraskrá og aðrir,“ segir Engilbert. „Dæmigert tilfelli er læknir sem hittir kollega sinn á gangi spítala og biður hann að skrifa upp á sýklalyf fyrir sig því að hann sé búinn að vera með svo þráláta loftvegasýkingu. Kolleginn gerir þetta orðalaust og þetta er hvergi skráð. Síðan dugar þessi lyfjakúr ekki og læknirinn biður annan kollega að skrifa upp á annað og sterkara lyf. Sá veit ekki endilega af þeim fyrri og hvorugt er skráð í sjúkra- skrá viðkomandi. Þetta er kannski ekki spurning um líf og dauða en ef þetta til- felli myndi nú leiða af sér einhverjar verri sýkingar sem læknirinn þyrfti að leggjast inn útaf er ekki að finna upplýsingar um „Heilbrigðisstarfsfólki ber fyrst og síðast að sinna sjúklingum sínum, gera að sárum eða sinna veikindum þeirra. Sjúklingurinn verður að geta treyst því að heilbrigðisstarfsmaðurinn virði trúnaðarskyldu sína,“ segja þeir Gunnar Ármannsson lögfræðingur og Engilbert Sigurðsson geðlæknir sem kenna læknanemum um þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.