Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.06.2016, Qupperneq 43

Læknablaðið - 01.06.2016, Qupperneq 43
LÆKNAblaðið 2016/102 303 stæður, minnkandi streitu í starfinu og styttri tíma sem fer í að læra verkið.“ Eykur öryggi sjúklinga Alma leggur áherslu á að allar rannsóknir á árangri af hermikennslu sýni fram á að slík þjálfun auki öryggi sjúklinga. „Það er auðvitað það sem þetta snýst um og okkar ábyrgð felst í því að tryggja öryggi sjúk- linganna okkar með öllum þeim aðferðum sem við höfum tiltækar. Hermisetrið er lykilþáttur í því. Það var því sett á oddinn að koma þessu á laggirnar og þegar hús- næðið hér losnaði vorum við eiginlega löngu tilbúin að hefja þetta verkefni og það hefur sýnt sig annars staðar að þegar svona er einu sinni komið af stað þá vind- ur það upp á sig því gagnsemin er svo fljót að skila sér og fólkinu finnst þetta líka skemmtileg aðferð við að þjálfa sig í starfi. Okkar markmið var því að komast ein- hvers staðar inn og byrja og síðan yrði eft- irleikurinn auðveldari. Við vorum reyndar svo lánsöm að örfáum dögum eftir að ákveðið var að nýta þetta húsnæði undir hermisetrið barst spítalanum vegleg pen- ingagjöf, 20 milljónir króna, sem ákveðið var að leggja í þetta verkefni. Það gerði okkur kleift að kaupa þann nauðsynlega búnað sem þurfti til að opna starfsemina.“ Alma segir samstarf Landspítala og læknadeildar Háskólans æskilegt og verið sé að ræða hvernig slíkri samvinnu verði háttað en báðar stofnanirnar hafa svo sannarlega áhuga á því. Fyrst um sinn er þó hermisetrið fyrst og fremst ætlað heilbrigðisstarfsfólki Landspítalans. Þetta er fyrst og fremst endur- og símenntunar- setur en læknanemar munu koma hingað þegar þeir hefja störf á Landspítala, jafnvel strax á 5. og 6. námsári. Umsjón með hermisetrinu er í höndum menntadeildar Landspítalans en að sögn Ölmu verða kennarar fengnir af ýmsum deildum spítalans, allt eftir því hvaða námskeið verður boðið uppá. „Við erum einnig að þjálfa kennara úr okkar röðum og njótum við það leiðsagnar norskra sér- fræðinga sem tengjast framleiðanda lækn- ingabrúðanna sem við höfum fest kaup á. Þetta eru námskeið sem kallast að þjálfa þjálfarana (train the trainer) og er mjög mikilvægt því kennslutækni hefur fleygt fram og við viljum geta boðið okkar fólki uppá það besta sem völ er á í því efni,“ segir Alma D. Möller að lokum. „Okkar ábyrgð felst í því að tryggja öryggi sjúkling- anna okkar með öllum þeim aðferðum sem við höfum tiltækar. Hermisetrið er lykilþáttur í því,“ segir Alma D. Möller fram- kvæmdastjóri aðgerðasviðs Landspítalans. U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.