Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2016, Síða 45

Læknablaðið - 01.06.2016, Síða 45
LÆKNAblaðið 2016/102 305 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R meiðsli, almenn veikindi eða bráðaupp- komur í hópnum eða hjá starfsfólki KSÍ á staðnum. Vera hluti af heilbrigðisteyminu þar sem vandamálin eru rædd og komist að sameiginlegri niðurstöðu sem svo er kynnt þjálfurunum á starfsmannafundum sem eru á hverjum degi meðan við verð- um í Frakklandi. Þetta gerir þjálfurunum kleift að undirbúa æfingarnar betur og fækka óvæntum uppákomum. Fylgjum leikmönnum í lyfjaprófin og höfum einnig vakandi auga með andlegri heilsu leik- manna, því þó að það sé mjög gaman að fara á svona stórmót er þetta langur tími sem við erum saman og klárt að sum- ir leikmenn munu ekki spila neitt. Það reynir oft á í samskiptum og það eru ekki endilega allir alltaf bestu vinir. Komi upp alvarlegri meiðsli erum við í sambandi við læknateymi félagsliða leikmanna og send- um þeim skýrslu með okkar greiningum og meðferð,“ segir Sveinbjörn. „Þá þurfum við að halda utan um skráningu álags, meiðsla og þátttöku leikmanna á æfingum og leikjum og sem hluta af UEFA-meiðslarannsókn (UEFA Injury Study) sem er leidd er af Svían- um og bæklunarskurðlækninum Dr. Jan Ekstrand. Öll ný meiðsl eru skráð eins nákvæmlega og hægt er á hverjum tíma á þar til gert eyðublað. Á hverjum föstudegi meðan á keppninni stendur sendum við skýrslu til hans. Séu menn enn meiddir þegar Ísland lýkur keppni, höldum við áfram að senda skýrslur þar til viðkom- andi hefur náð sér. Breytist greiningar, til dæmis í kjölfar myndgreininga, er búið til nýtt meiðslaeyðublað,“ segir Reynir Björn. Áhersla lögð á góð samskipti læknanna „Á leikdegi mætum við á fund með lækni mótherjanna og vallarlækni, förum yfir aðstöðu á vellinum og hvernig við getum kallað eftir frekari aðstoð komi eitthvað alvarlegt uppá. UEFA hefur síðustu árin lagt mikla áherslu á góð samskipti milli lækna landsliðanna innbyrðis og einnig samskipti þeirra við lækna liða leikmannanna. Við þetta hafa myndast tengsl og jafnvel vinskapur sem gerir öll samskipti miklu betri. Menn vinna saman. Einnig hefur UEFA sett reglur um lágmarksbúnað á völlunum ásamt þeim búnaði sem við höfum með okkur hvert sem við förum. Við vitum því nákvæm- lega hvað er til staðar og einnig eru mörg liðanna með sömu bráðatöskur sem auð- veldar mjög að veita aðstoð komi eitthvað alvarlegt uppá. Þetta er svona það helsta varðandi okkar vinnu við Evrópumótið í knattspyrnu í Frakklandi í sumar,“ segja þeir Reynir Björn og Sveinbjörn og af því er ljóst að þetta verður ekkert sumarfrí fyrir þá þó báðir séu sammála um að gam- an sé að taka þátt í þessu ævintýri. Starf landsliðslæknanna Sveinbjörns Brandssonar og Reynis Björns Björnssonar er flókið en þeir segjast þó ekki vildu missa af þessu fyrir nokkurn mun. ÁFRAM ÍSLAND!

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.