Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2016, Síða 49

Læknablaðið - 01.06.2016, Síða 49
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R LÆKNAblaðið 2016/102 309 sjúkdómum sem um ræðir og þeim búnaði sem nota þarf, og síðast en ekki síst þekki þá aðstöðu sem nota á. Birgðir: Í tengslum við fuglaflensu- undirbúninginn árið 2005 var keypt nokkuð af hlífðarbúnaði í farsóttalager Sóttvarnarlæknis. Sá búnaður hefur nýst vel við ýmsar uppákomur eins og eld- gos, heimsfaraldur inflúensu og fleira. Hins vegar er hluti búnaðarins byrjaður að skemmast vegna aldurs. Sá sérhæfði viðbótarhlífðarbúnaður sem þurfti vegna ebólu-faraldursins seldist fljótt upp hjá framleiðendum og mjög erfitt var að koma að pöntunum. Þannig tók það nær 6 mánuði að fá heilgalla afhenta. Nauðsyn- legt er að Ísland og Landspítali eigi skil- greindan grunnbúnað sem er viðhaldið sem veltulager. Með því að skipuleggja og leysa þessi þrjú atriði drögum við úr óvissu og ótta og tryggjum skilvirkari viðbrögð við næsta faraldri sem kallar á sérstök við- brögð. Heimildir 1. Dewan PK, Fry AM, Laserson K, Tierney BC, Quinn CP, Hayslett JA, et al. Inhalational anthrax outbreak among postal workers, Washington, D.C., 2001. Emerg Infect Dis 2002; 8: 1066-72. 2. Low DE, McGeer A. SARS--one year later. N Engl J Med 2003; 349: 2381-2. 3. Beigel JH, Farrar J, Han AM, Hayden FG, Hyer R, de Jong MD, et al. Avian influenza A (H5N1) infection in humans. N Engl J Med 2005; 353: 1374-85. 4. Writing Committee of the WHO Consultation on Clinical Aspects of Pandemic (H1N1) 2009 Influenza, Bautista E, Chotpitayasunondh T, Gao Z, Harper SA, Shaw M, et al. Clinical aspects of pandemic 2009 influenza A (H1N1) virus infection. N Engl J Med 2010; 362: 1708-19. 5. Petersen LR, Powers AM. Chikungunya: epidemiology. F1000Res 2016: 5. 6. Oboho IK, Tomczyk SM, Al-Asmari AM, Banjar AA, Al-Mugti H, Aloraini MS, et al.,2014 MERS-CoV out- break in Jeddah--a link to health care facilities. N Engl J Med 2015; 372: 846-54. 7. Fauci AS, Morens DM. Zika Virus in the Americas--Yet Another Arbovirus Threat. N Engl J Med 2016; 374: 601-4. 8. Marston HD, Folkers GK, Morens DM, Fauci AS. Emerging viral diseases: confronting threats with new technologies. Sci Transl Med 2014; 6: 253ps10. 9. WHO. Ebole home page. who.int/csr/disease/ebola/en/ - apríl 2016. 10. Carroll MW, Matthews DA, Hiscox JA, Elmore MJ, Pollakis G, Rambaut A, et al. Temporal and spatial analysis of the 2014-2015 Ebola virus outbreak in West Africa. Nature 2015; 524: 97-101. 11. Baize S, Pannetier D, Oestereich L, Rieger T, Koivogui L, Magassouba N, et al. Emergence of Zaire Ebola virus disease in Guinea. N Engl J Med 2014; 371: 1418-25. 12. WHO. Health worker Ebola infections in Guinea, Liberia and Sierra Leone: a preliminary report - 21 May 2015. apps.who.int/iris/bitstream/10665/171823/1/WHO_EVD_ SDS_REPORT_2015.1_eng.pdf?ua= 18. apríl 2016. 13. ecdc.europa.eu/en/publications/_layouts/forms/ Publication_DispForm.aspx?List=4f55ad51-4aed-4d32-b- 960-af70113dbb90&ID=1243 Kynningarfundur um kandídatsár á Íslandi fyrir læknanema í Debrecen Nýlega fóru fjórir fulltrúar úr nefnd vel- ferðarráðuneytis um skipulag námsblokka læknakandídata og kynntu sér læknanám í Ungverjalandi og héldu kynningar- fund um kandídatsárið á Íslandi fyrir læknanema í Debrecen. Fulltrúarnir voru styrktir af velferðarráðuneytinu, Landspít- ala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sjúkrahúss Akureyrar. Þetta voru: Alma Eir Svavarsdóttir (kennslustjóri kandídata við Heilsugæsluna), Bjartur Sæmundsson (deildarlæknir á skurðdeild Landspítala), Gróa Björk Jóhannesdóttir (Akureyri) og Inga Sif Ólafsdóttir (kennslustjóri kandídata á Landspítala). Dagskrá fundarins var: 1. Kynning á kandídatsári á Íslandi, nýja reglugerðin, nýja marklýsingin, reglu- legt fræðsluprógram og uppbygging spítalahluta kandídatsársins og að lokum um móttökudaga í júní. 2. Kynning á umsóknarferlinu. 3. Kynning á heilsugæsluhluta kandídatsárs og sérnámi í heimilis- lækningum á Íslandi. 4. Kynning á sérnámi í lyflækningum og öðrum sérgreinum við Landspítala. Læknanemarnir voru spenntir, spurðu mikið og voru jákvæðir í garð kandídatsárs á Íslandi. Fundurinn átti að standa í tvo tíma en varð að fjögurra tíma fundi sem var vel sóttur. Læknanemarn- ir lýstu endurtekið ánægju og þakklæti yfir komu fulltrúanna og voru ánægð með kynninguna. Þau höfðu mörg verið á kynningu annarra Norðurlandaþjóða um kandídatsár þar og gátum við leiðrétt margan misskilning og bent á þá fjöl- mörgu kosti sem kandídatsár á Íslandi hefur fram að bjóða. Þau sýndu bæði kandídatsárinu sem og sérnámi á Íslandi mikinn áhuga. Við teljum heimsóknina hafa verið ómetanlega, margir sögðu að fundurinn hefði breytt skoðun þeirra á kandídatsári á Íslandi og sáum við glögglega hvers virði þessi heimsókn var. Það var einnig mikilvægt fyrir nefndarmenn að koma til Debrecen og kynnast uppbyggingu læknanámsins þar, fá að skoða aðstöðuna og fræðast um námið í Ungverjalandi. Við teljum að rétt sé að stefna á að fara í svona kynningu annað hvert ár og fara til bæði Ungverjalands og Slóvakíu 2018, þaðan sem fyrstu læknanemarnir útskrifast 2019. Inga Sif Ólafsdóttir, formaður nefnd- ar um kandídatablokkir og kennslustjóri kandídata á Landspítala. Á myndinni eru Inga Sif Ólafsdóttir, Bjartur Sæmundsson, Gróa Björk Jóhannesdóttir og Alma Eir Svavarsdóttir.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.