Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Qupperneq 3
UöM
Mji
• • I
LOG
HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
1. gr.
Nafn félagsins er Hjúkrunarfélag ís-
iands.
2. gr.
Heimili félagsins og varnarþing er í
Reykjavík.
3. gr.
Tilgangur félagsins er:
1. Að auka menntun og starfshæfni hjúkr-
unarstéttarinnar.
2. Að vinna að umbótum á heilbrigðismál-
um þjóðarinnar.
3. Að glæða félagslegan áhuga félaga sinna,
bæta kjör þeirra og gæta hagsmuna og
sóma stéttarinnar í hvívetna.
4. gr.
Félagar geta orðið allir þeir, er fengið
hafa réttindi hér á landi skv. 1. gr. hjúkr-
unarlaga.
Aukafélagar geta orðið hjúkrunarnemar
í Hjúkrunarskóla fslands eða öðrum sam-
svarandi hjúkrunarskóla, sem lokið hafa
reynslutíma sínum. Þeir hafa tillögurétt og
málfrelsi á félagsfundum, en ekki atkvæðis-
rétt.
Heimilt er félögunum að stofna deildir
innan félagsins, er annað tveggja taki til
sérgreina stéttarinnar eða bindi starfssvæði
við ákveðna landshluta. Stjórn HFÍ skal
staðfesta samþykktir deildarinnar og við-
urkenna stofnun hennar, starfssvið og
starfssvæði. Deildirnar starfa undir eftir-
liti félagsstjórnar og skulu senda henni ár-
lega skýrslu um starfssvið, fjármál og
félagatal.
Heiðursfélaga getur stjórnin gert hvern
þann karl eða konu, er hún álítur að félag-
mu beri að sýna sérstaka viðurkenningu,
en atkvæðisrétt hafa eingöngu þeir heiðurs-
félagar, er áður hafa verið í Hjúkrunar-
félagi íslands.
5. gr.
Rétt til aðildar að félaginu eiga allir, er
uppfylla skilyrði skv. 1. málsgr. 4. greinar.
Inntaka nýrra félaga skal úrskurðuð á
stjórnarfundi. Ákveður meiri hluti, hvort
veita skuli strax, fresta um óákveðinn tíma
eða neita um inntöku.
6. gr.
011 þau störf, sem félögum HFÍ eru veitt
vegna aðildar þeirra að HFÍ, er þeim skylt
að inna af hendi með trúmennsku og skyldu-
rækni. Verði alvarlegir misbrestir á þessu
eða ef félagi brýtur í bága við almennt vel-
sæmi eða misnotar nafn félagsins til
eigin hagsmuna, er heimilt að víkja honum
úr félaginu. Allar slíkar kærur á hendur
félögunum skal stjórnin taka til rækilegrar
athugunar. Sé stjórnin sammála um úr-
lausn málsins, getur hún ráðið því ein til
lykta, en verði ágreiningur innan stjórnar-
innar um úrlausn kæruatriðis, skal stjórn-
inni skylt að kveðja trúnaðarráð til fundar
um málið. Hefur sá fundur endanlegt úr-
skurðarvald um málið skv. 13. gr. Leiti
félagi aðstoðar félagsins vegna óréttar, er
hann telur sig hafa verið beittan í starfi,
skal fara með málið á sama hátt og að ofan
greinir.
7. gr.
Merki félagsins er afhent jafnframt upp-
töku í félagið. Er það eign félagsins, en
ákveðin upphæð greiðist í eitt skipti fyrir
öll fyrir heimild til að nota það. Við frá-
fall, úrsögn eða brottvikningu ber að end-
ursenda merkið stjórn félagsins.
1