Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Blaðsíða 14

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Blaðsíða 14
kcnum, sem hafa eignazt mörg börn, verður húðin oft slök. Kviðvöðvar verða slappir og gliðna sundur í miðlínu. Allt eykur þetta á fyrirferðaraukn- inguna á kviðnum, einkum þeg- ar konur eldast og fitna. Hjá sumum konum jafnar húðin sig vel eftir barnsburð, en flestar bera þó einhver merki um þanið á húðinni, og hjá sumum leggst húðin í fellingar og slitnar þeg- ar við fyrsta barnsburð, og þetta eykst síðan við endur- tekna barnsburði. Aðgerðir við þessu eru margvíslegar, en und- anfari flestra þeirra verður að vera megrun, ef þær eiga að ná tilgangi sínum. Algeng- asta og einfaldasta aðgerðin við húðfellingu á kvið er að skera fellinguna burt þversum ofan við lífbein, og er sú að- gerð oftast fullnægjandi, þegar um fullorðið fólk er að ræða og útlitið er ekki aðalatriði. En ef góður og varanlegur árang- ur á að fást, nægir ekki að skera aðeins burt fituna og húðina, heldur þarf einnig að laga bilið milli kviðvöðvanna. Þá er teygt á húðinni, eins og hægt er. Henni er flett frá í miðlínu og naflinn færður til á stilk og bilið milli kviðvöðvanna saum- að saman, líkt og gert er við kviðslit. Oft ganga fitufelling- arnar út á mjaðmirnar og jafn- vel aftur á bakið, og þá kemur til greina að gera svokallaða „beltislipectomiu“, sem er fram- kvæmd þannig, að belti er tekið úr húðinni í einni aðgerð. Við þetta vinnst það, að fita og húð af kviðnum næst í burtu og jafn- framt er hægt að teygja húð- ina niður á mjöðmunum og aft- ur á bakinu. Þessar aðgerðir er hægt að framkvæma í tvennu lagi, en bezt er þó að geta gert aðgerðina í einu, en til þess að það sé unnt, þarf helzt að vera fyrir hendi samæfður hópur skurðlækna, því að aðgerðin er mjög seinleg. Sé fyrst og fremst um að ræða húðslit eftir barnsburð, næst oftast betri árangur með því að teygja húðina bæði þversum og langsum. Afleiðingin verður að vísu langt miðlínuör, en slík ör eru oftast meira áberandi en ör, sem liggja þversum á kviðn- um. AlllpKllftllt VK«XA FITIISÖFX- l’.VVII Á ÍTLIMITM: Húðin missir teygjanleik sinn með aldrinum, og auk þess virð- ist teygjanleiki húðarinnar vera nokkuð einstaklingsbundinn. Hjá fullorðnum konum er ekki óalgengt, að húðin hangi í fell- ingum á upphandleggjum og lærum, og einstaka sinnum sést þetta hjá yngri konum, hafi þær verið mjög feitar um tíma og síðar megrazt. Þessar fellingar geta verið mjög til lýta og í verstu tilfellum valdið hreyfing- arhindrunum. Fellingarnar má nema burt með skurðaðgerðum, og á upphandleggjum er skurð- línan látin liggja innanvert og aftanvert á handleggnum og húðin síðan strengd utan um handlegginn. Örin eftir þessar aðgerðir geta á stundum orðið nokkuð áberandi, einkum ef þau ná upp í holhönd eða niður fyr- ir olnboga, en getur verið nauð- synlegt til að viðunandi árang- ur fáist. Fitueyðandi aðgerðir á lær- um eru mismunandi eftir því, hvernig fitusöfnuninni er háttað. Stundum eru lærin eins og skálmar á reiðbuxum, og eru þá fitukeppir utan á lær- unum, byrja á móts við mjaðm- arliðina og dregur úr þeim, þeg- ar kemur lengra niður á lærin. Fitusöfnun getur verið þarna, án þess að viðkomandi sé feit- lagin að öðru leyti. Við svona fitusöfnun er gerð- ur skurður utan til á lærinu, sem nær alla leið frá hné og upp á mjaðmarkamb. Skurðurinn er hafður framan við fituhnúðinn og húðin losuð aftur á við, fit- an tekin burt og húðin síðan strengd, aðallega upp á við, þannig að þríhyrningur er tek- inn úr, uppi undir mjaðmar- kambinum. Sé fitan hins vegar aðallega innan á lærunum, en það er algengara hjá þeim, sem almennt eru feitlagnar, er skurð- urinn hafður innanlærs og húð- in dregin upp í nárann og skor- ið af henni þar. ör eftir þess- ar aðgerðir eru alltaf sýnileg, en þó mismunandi, því að ör- myndun er einstaklingsbundin. Mjög er algengt, að konur leiti til skurðlækna vegna þess, að þær hafa of svera kálfa. Skurðaðgerðir við þessu lýti bera oftast heldur lélegan ár- angur. Það magn, sem unnt er að taka af fitu og húð af fót- leggjunum, er mjög takmarkað, vegna þess að blóðrás í húð á fótum er lélegri en ann- ars staðar á líkamanum og oft er hún sérstaklega léleg hjá þeim, sem hafa svera fæt- ur. Sárin hafa því tilhneigingu til þess að rifna upp og örin að verða ljót, án þess að veruleg mjókkun verði á leggjunum. Sá, sem þetta ritar, hefur því yfirleitt ráðið frá þessum að- gerðum, nema um mjög veruleg lýti væri að ræða, en í stað þess ráðlagt nudd og böð, sem oft bera nokkurn árangur. Hér verður ekki minnzt á skurðaðgerðir vegna stíflu í sog- æðakerfi fótanna, „elephantias- is“, en við slíka stíflu geta neðri útlimir, annar hvor eða báðir, orðið ótrúlega sverir. Fylgikvillar eftir fitueyðandi aðgerðir á kvið og útlimum eru í aðalatriðum svipaðir og við brjóstaaðgerðir. Blæðingar- hætta, myndun blóðsafns eða ígerð í skurði með drepi í húð eru allt fylgikvillar, sem geta komið eftir þessar aðgerðir. SAMAXTEKT: Gerð hefur verið stuttlega grein fyrir skurðaðgerðum, sem helzt koma til greina í sambandi 8 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.