Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Síða 4

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Síða 4
Félögum er skylt að bera félagsmerkið, á meðan þeir gegna hjúkrunarstörfum. Þó séu hjúlcrunarkonur á geðsjúkrahúsum undan- þegnar þeirri skyldu. Breytingar á heimilisfangi skal tilkynna stjórn félagsins, að öðrum kosti verður póstur sendur á þann stað, er síðast var til- kynntur sem heimilisfang. Úrsögn úr félaginu skal tilkynna stjórn- inni skriflega, og skal félagi þá vera skuld- laus við félagið. 9. gr. Ársgjöld skulu ákveðin á aðalfundi og skulu greidd fyrirfram ár hvert fyrir lok marzmánaðar. Heimilt er þó að greiða ársgjöld í tvennu lagi, og skulu þau þá vera greidd að fullu fyrir 1. október. Stjórnin tekur ákvörðun um, hvort fella megi niður félagsgjöld um tíma vegna erf- iðra fjárhagsástæðna. 10. gr. Hafi félagi eigi greitt gjöld sín til félags- ins í 2 ár, her stjórninni að taka ákvörðun um innheimtu. Sinni félagi því ekki, missir viðkomandi kosningarétt og kjörgengi, þar til skuldin er greidd. 11. gr. Reikningsár félagsins skal miðað við ára- mót. Á aðalfundi skal leggja fram nákvæma skýrslu yfir tekjur og gjöld félagsins og gera grein fyrir fjárhag þess. Stjórnir sjóða, sem eru í eigu félagsins, skulu senda gjaldkera yfirlit yfir fjárhag sjóðanna árlega, og skulu þeir reikningar fylgja með aðalreikningi til endurskoðunar. Reikningana ber að endurskoða af lög- giltum endurskoðanda og tveimur félögum Hjúkrunarfélags fslands. Skulu þeir kosn- ir á aðalfundi til tveggja ára í senn. 12. gr. Hjúkrunarfélag íslands skal gefa út tímarit, og greiðir félagið útgáfukostnað þess. Öllum félögum skal sent tímaritið, og er greiðsla þess innifalin í félagsgjaldi þeirra. Ritstjóri tímaritsins skal vera ábyrgðar- maður þess. 13. gr. Stjórn félagsins skipa 7 félagar. Kjör- tímabil er 4 ár. Formaður skal kosinn sér- staklega fjórða hvert ár og aðrir stjórn- endur þannig, að 2 þeirra gangi úr stjórn- inni í senn, þegar ekki er kosinn formaður. Endurkosning er heimil, en þó má stjórn- araðili ekki sitja lengur en 8 ár samfellt. Stjórnin kýs sér sjálf varaformann og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Kosning varamanna fer fram með sama hætti og kosning stjórnarmanna, þannig að 7 menn eru í varastjórn. Koma vara- menn til starfa í forföllum aðalmanna (í þeirri röð, sem þeir eru kosnir). Kjörgengir í stjórn eru þeir, sem eru fullgildir félagar í HFÍ. Hjúkrunarnemar tilnefna einn áheyrnar- fulltrúa og varamann, og hefur hann til- lögurétt á stjórnarfundum en ekki atkvæð- isrétt. Sama rétt til fundarsetu hefur full- trúi trúnaðarráðs, sbr. 20. gr., svo og rit- stjóri Tímarits HFl. Verði autt sæti stjórnarmanns á milli aðalfunda, velur stjórnin sjálf mann í hið auða sæti og gildir kjör hans til næsta að- alfundar. Á stjórnarfundum ræður fjöldi atkvæða. Séu atkvæði jöfn, ræður atkvæði formanns úrslitum. 14. gr. Fjórum mánuðum fyrir aðalfund skipar stjórn félagsins 3 félaga í nefndanefnd (uppstillingarnefnd) og 3 félaga í kjör- stjórn. Nefndanefnd (uppstillingarnefnd) tekur við tilnefningu um stjórnendur og sér um undirbúning stjórnarkosningar. Ber- ist fleiri tilnefningar um stjórnendur en kjósa á hverju sinni, skal fara fram skrif- leg leynileg kosning. Kjörstjórn skal þá senda atkvæðaseðla öllum félögum utan Reykjavíkur, Seltjarn- arness, Kópavogs, Garðahrepps og Hafnar- 2 -i

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.