Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Side 5
fjarðar, um leið og aðalfundur er boðaður.
Gætir kjörstjórn þess, að svo sé frá þeim
gengið, að full leynd verði með kosningunni.
Félagar, sem seðla hafa fengið, endursenda
þá til kjörstjórnar, áður en kjörfundi lýk-
ur, en hann skal halda degi fyrir aðalfund.
Skal kjörfundur standa yfir minnst 10 klst.
og vera boðaður um leið og aðalfundur.
Skulu minnst 2 aðilar, sem sæti eiga í kjör-
stjórn, vera á kjörfundi, meðan kosning
stendur yfir.
Séu eigi fleiri tilnefndir í félagsstjórn
en kjósa á, teljast þeir rétt kjörnir til
næstu fjögurra ára, án atkvæðagreiðslu.
Kjöri stjórnenda skal lýst á aðalfundi.
Stjórnin ræður starfsmenn og ritstjóra
og ákveður þeim laun. Heimilt er félags-
stjórn að skipa nefndir, er hafi með hönd-
um ákveðin verkefni.
15. gr.
Formanni ber að sjá um, að stjórnin leysi
hlutverk sín fullnægjandi af hendi.
Formaður er fulltrúi félagsins út á við,
kveður til funda, ákveður dagskrá og stjórn-
ar fundum.
1 forföllum formanns gegnir varaformað-
ur störfum hans. í upphafi hvers fundar
hefur formaður leyfi til þess að stinga upp
á einhverjum viðstöddum félaga til að
stjórna fundi.
16. gr.
Stjórnin boðar til fundar í félaginu, þeg-
ar ástæða þykir til. Stjórnin undirbýr fundi,
og er henni heimilt að fá utanfélagsmenn
til að annast fundarefni.
Rita skal stuttan útdrátt af öllu, sem
fram fer á fundum, í gerðabók félagsins,
einkum allar fundarsamþykktir og aðrar
ákvarðanir. Fundarstjóri og fundarritari
skulu skrifa nöfn sín undir allar fundar-
gerðir.
17. gr.
Aðalfund skal halda á tímabilinu marz
—júní ár hvert. Til aðalfundar skal boðað
með bréfi til hvers fulltrúa með minnst 3
vikna fyrirvara miðað við póstlagningu
fundarboðs. Þá skal aðalfundur auglýstur
með viku fyrirvara í minnst 2 dagblöðum
í Reykjavík. Aðalfundur er lögmætur, ef
löglega er til hans boðað, og hefur innan
takmarka þeirra, sem ákveðin eru í lögun-
um, hið æðsta vald í öllum málum félagsins.
Skipa skal landinu í 7 svæðisdeildir:
1. Reykjavíkursvæði:
(Reykjavík, Kópavogur, Garðahreppur,
Hafnarfjörður, Keflavík).
2. Vesturlandssvæði:
(Akranes, Borgarnes, Ólafsvík, Stykkis-
hólmur).
3. Vestfjarðasvæði:
(Patreksfjörður, ísafjörður).
4. Norðurlandssvæði:
(Hvammstangi, Blönduós, Sauðárkrókur,
Siglufjörður).
5. Akureyrarsvæði:
(Dalvík, Akureyri, Húsavík, Vopnafjörð-
ur).
6. Austurlandssvæði:
(Egilsstaðir, Neskaupstaður, Eskifjörð-
ur, Höfn í Hornafirði).
7. Suðurlandssvæði:
(Vík í Mýrdal, Hella, Vestmannaeyjar,
Selfoss).
Stjórn HFÍ sendir stjórnum svæðisdeild-
anna tilkynningu um það, hve marga ful!-
trúa hvert svæði eigi að kjósa á aðalfund
(fulltrúaþing) HFÍ, og skal sú tilkynning
einnig birt í tímaritinu.
Félagaskrá miðast við 1. janúar kosn-
ingaárið.
Stjórn hverrar svæðisdeildar lætur fara
fram kosningu fulltrúa og varafulltrúa til
aðalfundar (fulltrúaþings) HFÍ. Kjörtíma-
bil er 4 ár.
18. gr.
Hverjum aðalfundi stýri kjörinn fundar-
stjóri. Formaður tilnefnir fundarstjóra í
upphafi fundar, og sér hann um, að aðal-
fundur fari fram eftir ákvæðum laga þess-
ara og í samræmi við settar fundarreglur.
Á aðalfundi eru ákveðin öll málefni fund-
arins með meirihluta atkvæða. Standi svo
á, að atkvæðatala sé jöfn, ræður atkvæði
formanns úrslitum.