Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Síða 29
fyrsti hópurinn, er nám hlýtur og brautskráist
samkvæmt hinni nýju reglugerð.
KÖSTGEJÍT.KKXAH —
HÖ.\T(ii:\TTiKXA.SKÓI.IXX
Landspítalinn og Borgarspítalinn hafa ákveð-
ið að reka sameiginlegan röntgentæknaskóla.
Skólinn hefst um miðjan febrúar, nemendur
verða 10—12. Skólastjóri verður Ásmundur
Brekkan, yfirlæknir við röntgendeild Borgar-
spítalans.
Samkvæmt reglugerð, er gefin var út af heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu í okt. s.l.,
er sjúkrahúsum, er hafa sérstakar röntgen-
greiningardeildir með a. m. k. 15000 rannsókn-
um á ári, heimilt að starfrækja röngtentækna-
skóla.
Sjúkrahúsum þessum er og heimilt að starf-
rækja sameiginlega skóla, þar sem bókleg
kennsla fer fram, en verklegt nám fer þá fram
í röntgendeildum viðkomandi sjúkrahúsa.
Hlutverk skólans er að tæknimennta aðstoð-
arfólk við röntgengreiningu, er geti aðstoðað
röntgenlækna og framkvæmt sjálfstætt sumar
tegundir röntgenrannsókna eftir fyrirmælum,
ennfremur metið ástand sjúklinganna að nokkru
og aðstoðað þá eftir þörfum og samkvæmt fyr-
irmælum.
Stjórn röntgentæknaskólans skipa forstöðu-
konur sjúkrahúsanna, framkvæmdastjórar
þeirra, einn læknir frá hvorri röntgendeild, einn
fulltrúi skipaður af ráðherra og einn tilnefndur
af nemendum skólans.
Inntökuskilyrði skólans eru:
1. Umsækjandi skal vera fullra 17 ára.
2. Umsækjandi skal hafa lokið landsprófi
miðskóla eða gagnfræðaprófi með fyrstu
einkunn í stærðfræði, eðlisfræði, íslenzku
og einu erlendu máli.
3. Umsækjandi, sem lokið hefur stúdents-
prófi, hjúkrunarprófi, framhaldsdeild
gagnfræðaskóla eða hefur tilsvarandi
menntun, skal að öðru jöfnu ganga fyrir
um skólavist.
4. Umsækjandi skal framvísa læknisvottorði
um heilsufar sitt.
Námstíminn er 2 ár og 6 mánuðir, og námið
skiptist í 3 stig:
1. Undirbúningsstig — 26 vikur
2. Bók- og verknámsstig — 52 vikur
3. Starfsþjálfunarstig — 52 vikur
Fyrstu vikurnar verða nemendur við nám í
sjúkradeildum, slysa- og skurðdeildum og bók-
nám með sjúkraliðanemum. Nám sjúkraliða
verður endurbætt á þessu ári, bóknám þeirra
verður rúmar 200 kennslustundir eða um helm-
ingi fleiri en verið hefur.
Að öðru leyti verða námsgreinar í skólanum
eftirfarandi:
Stærðfræði ........................... 20 stundir
Eðlisfræði ........................... 20 ---
Líffæra- og lífeðlisfræði, meinafræði 90 -——
Eðlisfræði og röntgentækni ........... 46 ---
Geislavarnir og geislalíffræði ....... 10 ---
Ljósmyndatækni ....................... 12 ---
Starfsfræðsla ........................ 12 ---
Viðbótarkennsla ...................... 24 ---
Fyrirlestrar........................... 8 ---
Fylgzt með athugunum lækna á gerð-
um rannsóknum ..................... 100 ---
Myndasýningar og umræður.............. 24 ---
Auk þess verða tímar til upprifjunar,
prófa og ritgerða.
1 verknámi hljóta nemendur tilsögn og þjálf-
un á öllum rannsóknartækjum röntgendeild-
anna.
Kennslan miðar að því að gera nemendur
færa í hvers kyns rannsóknaraðferðum og að
þeir hafi vald og þekkingu á þeim tækjum, sem
notuð eru. Hver nemandi skal hafa námsferils-
bók, þar sem í eru skrifaðar þær rannsóknir,
sem hann tekur þátt í:
1) sýnikennsla,
2) framkvæmdar með aðstoð og tilsögn,
3) framkvæmdar án aðstoðar.
Samtals skal nemandinn hafa framkvæmt a.
m. k. 800 rannsóknir, sem skiptast milli hinna
ýmsu líffæra eftir töflu, er skólastjóri ákveður.
Bók- og verknámi lýkur með prófum. Nem-
endur þurfa að fá einkunnina 5 í meðaleinkunn
til að standast kröfur skólans.
Nemendur fá engin laun fyrsta misseri náms-
ins, 2. og 3. misseri fá nemendur námslaun, sem
svara til 50% byrjunarlauna röntgentæknis í
samningum hverju sinni. Á 4. og 5. misseri fá
nemendur 75% ofangreindra launa.
Kostnaður við rekstur röntgentæknaskólans
skiptist þannig:
1) Laun kennara greiðast úr ríkissjóði.
2) Námslaun nemenda greiðast af hlutaðeig-
andi sjúkrahúsi.
3) Kennsluefni og kennsluaðstaða er á kostn-
að hlutaðeigandi sjúkrahúss.
4) Allur kostnaður vegna prófa greiðist úr
ríkissjóði.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 23