Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Blaðsíða 36
ur þó því miður ekki borið tilætlaðan árangur,
fyrst og fremst vegna hinnar öru uppbyggingar
sjúkrarýmis ,,acut“ sjúkrahúsa, sem hefur yfir-
stigið vinnustundafjölda hjúkrunarstarfsliðsins
jafnóðum.
Bóklegt hjúkrunarnám er ráðamönnum ærið
áhyggjuefni vegna hins mikla skorts sérlærðra
hjúkrunarkennara í landinu. Samtímis þessu eru
alþjóðlegar menntunarkröfur á hendur hjúkr-
unarstéttinni sífellt að aukast og óbreytt stefna
því vaxandi vandamál hérlendis.
Háskólarektor, Magnús Már Lárusson, taldi
Háskóla fslands ekki sem stendur geta tekið að
sér einn að sjá fyrir þeirri framhaldsmenntun
á sviði hjúkrunar, sem til umræðu var af hálfu
nefndarinnar, heldur áleit hann, að skipta yrði
því hlutverki meðal Hjúkrunarskóla Islands og
Háskólans.
Eftirfarandi námsgreinar taldi rektor að
mætti e. t. v. kenna hjúkrunarstúdentum innan
Háskóla Islands:
sem fram úr skaraði við ýmsa sérskóla, þar á
meðal Hjúkrunarskóla fslands, en þótt háskóla-
rektor hafi þegar verið falið af hálfu ráðherra
að gjöra tillögur þessu að lútandi, verður málið
síðar að koma til afskipta löggjafans, Alþingis.
Rektor vill mæla með, að núverandi hjúkrunar-
grunnnám frá Hjúkrunarskóla fslands verði virt
til jafns við 2 háskólastig og reiknist til góða, ef
reiknað yrði til hluta af kröfum til B. A. eða
B. S. prófs innan Háskóla Islands, þannig að
til viðbótar kæmu þá 3 háskólastig, t. d. í hjúkr-
unar- eða þjóðfélagsfræðum, sem öðlast mætti
við Háskólann.
f bréfi, sem háskólarektor ritaði nefndinni um
þessi mál, segir hann: „Mun ég óhikandi fyrir
mitt leyti beita mér fyrir því í háskólaráði, þar
eð ég tel, að hjúkrunarnám sé svo mikilvægt
þjóðhagslega, að menn, sem leggja á sig viðbót-
arnám, fái maklega viðurkenningu, auk þess
sem nauðsynlegt er að laða til þess náms.“ (Sbr.
bréf sent nefndarritara 1. 6. 1971 ásamt ódag-
settu bréfi til nefndarinnar).
Sálarfræði
Félagsfræði
Uppeldisfræði
Líffræði
Lífeðlisfræði
Eðlisfræði
í tengslum við
Kennaraháskólann
í Raunvísindadeild H. I.
Efnafræði
í læknadeild H. I.
Tölfræði
Hagfræði
St j órnunarf ræði
í þjóðfélagsfræðideild H. f.
(þ. e. innan viðskiptadeildar)
Forspjallsvísindi í heimspekideild H. f.
Auk þess að gera ráð fyrir, að Hjúkrunarskóli
fslands gæti annazt kennslu í öllum hjúkrunar-
fræðigreinum, taldi háskólarektor, að styrkja
bæri aðstöðu Hjúkrunarskólans til að annast
einnig kennslu í eftirtöldum greinum:
Meinafræði
Heilbrigðisfræði
Lyfjafræði
Líffærafræði
Háskólarektor taldi fjárskort hamla starfs-
getu Háskóla íslands mjög verulega og benti á
ýmis dæmi þar að lútandi, engu að síður var af-
staða hans gagnvart hugsanlegu hjúkrunar-
námi afar jákvæð. Hann lagði áherzlu á,
að auk þess að skapa stúdentum aðstöðu til
hjúkrunarnáms við Háskóla Islands væri æski-
legt að rýmka inntökuskilyrði fyrir námsfólk,
f stórum dráttum hafa fengizt upplýsingar
frá erlendum heimildum, er bera þess vott, að
háskólanám í hjúkrun er að ná síaukinni fót-
festu víðast hvar í heiminum, en einna lengst
mun þróun þessara mála vera komin meðal
Kanadamanna og í Bandaríkjunum. f þessum
löndum er síaukin áherzla lögð á, að þar sem
hjúkrunarfræðsla fer fram innan háskóla, skuli
athyglinni beint að hjúkrun og hjúkrunarmennt
sem vísindalegu viðfangsefni og aðalfagi þess
verðugu, að veitt sé fyrir það sérstök háskóla-
gráða.
Þar er námstíminn, sem þarf til að öðlast
B.S.N. gráðu, oftast rúm 4 ár, eða minnst 2 ár
til viðbótar, ef nemandi hefur lokið 3ja ára
grunnnámi við skóla hliðstæðan Hjúkrunarskóla
íslands, áður en háskólanám hefst, þannig að
þá tekur námið minnst 5 ár.
Á Bretlandseyjum er sú stefna fremur ríkj-
andi ennþá, að nemendur öðlast háskólagráðu
í t. d. þjóðfélagsfræði eða sálarfræði með hjúkr-
unarpróf að auki á vegum háskólans (t. d. S.
R.N. Honors degree in Sociology or Psychology
- eða S.R.N. B. Sc. Human Biology) og tek-
ur námið þar um 4(4 til 5 ár.
Á Norðurlöndum er enn eigi hægt að stunda
hjúkrunarnám og vinna til háskólagráðu sam-
tímis, en mikill áhugi er fyrir að hrinda slíku
í framkvæmd, svo sem m. a. kemur fram í
nefndartillögum frá 5. júní 1969 varðandi end-
urskipulagningu á hjúkrunarfræðslu við fremsta
hjúkrunarskóla Finna. I nefndarskjölum má sjá,
26 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS