Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Side 37
að Ráðgjafanefnd Hjúkrunarskóla Helsingfors
fer fram á, að menntamálaráðuneytið finnska
láti kanna, hvort breyta megi skóla þessum í
háskóla eða leita annarra leiða, er opni nem-
endum Hjúkrunarskóla Helsingfors möguleika
á að stunda akademískt nám í hjúkrun. Einnig
er lagt til, að ráðuneytið skipi nefnd til að gera
tillögur um framkvæmd náms af þessu tagi.
Ráögjafanefndin telur, aö til kennslu- og stjórn-
unarstarfa á sviöi hjúkrunar þurfi aö mennta
hjúkrunarkonur til jafns við fil. kand., þar
sem aöalnámsgrein væri HJÚKRUN. Slíkt nám
álítur Ráögjafanefndin aö eigi aÖ byggja ofan á
lægra akademískt 'próf, sem felur í sér hjúkr-
unargrunnnám.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin skipaði nefnd
sem skilaði niðurstöðu þess eðlis, að nauðsyn-
legt sé að auka menntun hjúkrunarstéttarinn-
ar og að æskilegt verði, að hjúkrunarfræðslan
tengist háskólakerfinu svo fljótt sem verða má
í hverju landi fyrir sig.
(WHO skýrsla V, 1966)
III. NiöurstaÖa nefndarinnar.
1. Nefndin hefur orðið sammála um, að mjög
nauðsynlegt sé að koma á fót hjúkrunarmennt-
un á háskólastigi hérlendis, þar eð hjúkrun er
sérgrein, sem krefst forystu háskólamenntaðra
einstaklinga.
2. Starf lækna og annarra samstarfshópa
hjúkrunarstéttarinnar er í grundvallaratriðum
svo háð hæfni þeirra einstaklinga, er skipu-
leggja, stjórna og annast hjúkrunarstörf, að
heilbrigðisþjónusta þjóðfélagsins hefur ekki til
frambúðar efni á að vera án þeirrar háskóla-
greinar, er að hjúkrun lýtur.
3. Hjúkrunarstéttin er fyrst og fremst
kvennastétt, og til muna örðugra reynist fyrir
konur en karla að sækja háskólanám erlendis
vegna fjölskylduástæðna.
4. Islenzkar hjúkrunarkonur hafa orðið að
leita framhaldsmenntunar erlendis, en slíkt
verður æ erfiðara með hverju árinu sökum þess,
hversu aðsókn heimamanna viðkomandi landa
fer vaxandi í þá skóla, sem einna helzt hafa
verið sóttir af Islendingum. Auk þessa eru
kröfur um stúdentsmenntun (eða hliðstæða) að
verða æ algengari sem inntökuskilyrði, en slík-
an grundvöll skortir mikinn meiri hluta ís-
lenzkrar hjúkrunarstéttar í dag.
5. Duglegasta námsfólkið, sem lýkur mennta-
skólanámi, leitar því miður hlutfallslega of
lítið inn á svið hjúkrunar, og mikilvægt atriði
í framtíðinni er því, að reynt verði að laða þessa
aðila að hjúkrunarnámi með ráðum og dáð.
6. Sé þjóðarhagur hafður í huga virðist hæp-
ið að kosta stórfé til háskólamenntunar annarra
stétta umfram þjóðarþörf, á sama tíma og
Háskóla Tslands væri synjað um fjárveitingu
til nauðsynlegrar hj úkrunarmenntunar.
7. Stúdentar, sem útskrifast eftir 3ja ára
nám við Hjúkrunarskóla Islands, en sækjast
síðan eftir frekara hjúkrunarnámi innan Há-
skóla Islands, þarfnast námsbrautar í Háskól-
anum, sem óhjákvæmilega verður að vera nokk-
uð frábrugðin þeirri, sem ætluð yrði háskóla-
stúdentum í hjúkrunargrunnnámi. Hinir fyrr-
nefndu gætu þurft að stunda 2ja ára háskóla-
nám í hjúkrun, sem jafngildi 4 háskólastigum,
en hinir síðarnefndu yrðu að afla sér 8 háskóla-
stiga á 4 árum (sbr. að á 3 árum er hægt að
afla sér 6 stiga til B. A. prófs í þjóðfélagsfræð-
um).
8. Nefndin telur eðlilegt að hjúkrunarnáms-
braut við Háskóla Tslands miði að B.S. prófi.
IV. Tillögur nefndarinnar.
Nefndin leggur til, að nemendur í hjúkrunar-
fræðum hljóti innritun í Háskóla Islands eigi
síðar en haustið 1972. Að þeir njóti þar kennslu
í öllum greinum, sem þeim verður ætlað að
læra, nema í hjúkrunarfræðum, en þar myndi
Hjúkrunarskóli Tslands taka að sér kennslu
(sbr. frumdrög nefndarinnar að námsskrá).
Um verklegt nám hjúkrunarstúdenta gæti
farið á líkan hátt og með verklegt nám lækna-
stúdenta.
Nefndin harmar, að Háskóli Tslands skuli
ekki hafa aðstöðu til að takast nú þegar á hend-
ur alla kennslu fyrir hjúkrunarstúdenta. Þar
sem ljóst er, að mjög erfitt verður að koma
þessu námi á hér, leggur nefndin eindregið til,
að leitað verði aðstoðar Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar til þess að fá sérfræðing, sem
dveldist hér eitt til tvö ár til að skipuleggja
háskólanám í hjúkrun og koma því áleiðis. Það
er álit nefndarinnar, að vinda þurfi bráðan bug
að útvegun slíks sérfræðings og að á þessu
hausti beri að skipa starfsnefnd, er falinn yrði
undirbúningur og framkvæmd í samvinnu við
slíkan sérfræðing, sem geri kleift, að nám þetta
hefjist við Háskóla Islands á tilskildum tima.
V. Frumdrög nefndarinnar aö námsskrá.
Nefndin vill leggja áherzlu á, að námið allt
beinist að hjúkrun sem sjálfstæðu fagi á grund-
velli heilsuverndar og sjúkrahjúkrunar.
I aðalatriðum gæti námsskráin á hjúkrunar-
námsbraut orðið sem hér segir:
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 27