Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Page 40
kvöldið var svo hin skemmtileg-
asta og fjörugasta kvöldvaka.
Það voru sagðar skemmtisögur,
farið í leiki, sungið og dansað,
svo að eitthvað sé nefnt.
Sunnudagurinn 31. okt. Á
fætur kl. 9, engin miskunn. í
gang með vinnuna, og hvað
haldið þið að hafi verið á dag-
skrá? Ó, jú, rétt til getið, það
var starfsmatið. Starfshóparnir
skiluðu síðan áliti sínu eftir há-
degishléið. Þar á eftir voru hug-
ljúfar þakkar- og kveðjuræður
fluttar, ráðstefnunni slitið og
haldið heimleiðis kl. 16.10. Þann-
ig enduðu þessir ánægjulegu
dagar.
En það er ekki allt búið enn,
því að ég á eftir að segja ykkur
frá seinna námskeiðinu, en ég
ætla að reyna að stikla á stóru,
því að ég vil ógjarnan þreyta
ykkur um of í fyrsta sinn, sem
ég læt heyra frá mér. Það var
haldið dagana 18.—21. nóv. 1971
og viðfangsefnið var: Fundar-
sköp og fundarreglur - undir-
búningur félagsstarfsemi -
samningaaðferðir og starf og
skipulag BSRB. Þátttakendur
voru milli 40 og 50. Frá HFl
voru Magdalena Búadóttir, Sig-
rún Gísladóttir, Bergþóra Reyn-
isdóttir hjúkrunarnemi ogGerða
Ásrún og ég, þeir einu af þátt-
takendunum, sem voru í annað
sinn, og ég segi fyrir mig, að ég
geri ekkert upp á milli þessara
námskeiða. Ferðin sóttist vel
upp eftir, þrátt fyrir að Borg-
arfjörðurinn var kominn í vetr-
arskrúðann. Ráðstefnan var sett
á sama hátt og hin fyrri, og á
föstudeginum var fyrsta erind-
ið: Fundarsköp og fundarreglur,
flutt af Karli Guðjónssyni. Eftir
það var okkur skipt í 6 starfs-
hópa, hver hópur dró umræðu-
efni, og voru þau sum bráð-
skemmtileg, eins og t. d. þetta:
„Þuríður sundafyllir nam Bol-
ungarvík ásamt Völusteini syni
sínum. Nú telja fróðir menn, að
1100 ára afmæli hennar sé fyrir
dyrum, og vilja láta minnast
þess. Hafa sumir talað um hóp-
ferð Bolvíkingafélagsins í
Reykjavík vestur, aðrir um
minnismerki um kvenskörung-
inn eða þau mæðgin. Hvernig
ætti að taka á málinu?"
Hver hópur tilnefndi tvo
fi’amsögumenn, annan með mál-
inu, hinn á móti, fundarstjóra
og fundarritara. Eftir hádegis-
verðarhlé hófust þessir skemmti-
legu tilraunafundir og stóðu
fram að kvöldmat. Síðar um
kvöldið sagði Guðjón B. Bald-
vinsson okkur frá „starfi og
skipulagi BSRB“.
Laugardaginn 20. nóv. voru
starfshóparnir aðeins 3 og var
verkefnið fyrir hádegi að útbúa
spurningar um „starf og skipu-
lag BSRB“, til að leggja fyrir
Harald Steinþórsson, Einar Ól-
afsson, Guðjón B. Baldvinsson
og Sigfinn Sigurðsson, stjórn-
andi var Ársæll Magnússon. Eft-
ir hádegi var erindið: Samn-
ingagerð, framsögumaður Har-
aldur Steinþórsson. Síðan skiptu
hóparnir með sér verkum og
hófu undirbúning að kröfugerð.
Fræðslunefndin valdi 3 dóm-
ara úr hverjum hópi, en að öðru
leyti skiptust starfshóparnir í
tvennt eftir eigin vali og sam-
komulagi. Annar hlutinn samdi
kröfugerð og stutta greinargerð
af hálfu samtakanna (BSRB),
en hinn miðaði við sjónarmið
ríkisins. T. d. hafði hópurinn,
sem ég var í, það verk að vinna
að starfsmati á 5 starfsheitum,
og var þetta mjög lærdómsríkt,
en um leið hlýtur að hafa verið
dálítið spaugilegt að sjá og
heyra til okkar. Þessu var skilað
fyrir kvöldmat og allt síðan fjöl-
ritað. Eftir kvöldverð var hin
langþráða kvöldvaka, sem tókst
með mikilli prýði.
Sunnudaginn 21. nóv. gerðu
starfshóparnir athugasemdir við
lcröfur gagnaðilans og síðan at-
hugasemdir lagðar fram og mál-
flutningi lokið. Eftir að lokið
var við að ganga frá farangri og
taka til í húsunum, var drukkið
kaffi og þá um leið birt dómsorð,
og af þessu öllu saman höfðum
við bæði gagn og gaman. Og
eftir að búið var að slíta ráð-
stefnunni, var lagt af stað heim
strax upp úr kl. 16, en sú ferð
gekk ekki eins greiðlega og hin-
ar fyrri vegna geigvænlegrar
hálku, ferðin tók rúmar 6 klst.
frá Munaðarnesi til Reykjavík-
ur í staðinn fyrir 3 klst. í venju-
legri færð. Reyndi fólk að liafa
ofan af fyrir sér með söng og
glensi til að sjá ekki skuggalegu
hliðina á ferðalaginu, en allt
tókst þetta vel vegna hins ágæta
bílstjóra, og í bæinn komum við
þreytt en ánægð. Og þökk sé
fræðslunefnd BSRB fyrir prýði-
legt námskeið. Þeir, sem hafa
tækifæri til að sækja svona
fræðslunámskeið í framtíðinni,
ættu ekki að láta það fram hjá
sér fara, svo mikla ánægju veit-
ir það. Með þessum orðum lýk
ég þessu spjalli.
TILKYNNING
UM AÐALFUND
Aðalfund ber að halda ár hvert á
tímabilinu marz—júní. Ber nú að
kjósa tvær félagskonur í stjórn.
Á stjórnarfundi 7. janúar 1972 voru
eftirtaldar hjúkrunarkonur kosnar í
nefndanefnd (uppstillingarnefnd),
en samkvæmt félagslögum ber stjórn
HFl að tilnefna þessa nefndaraðila
fjórum mánuðum fyrir aðalfund.
Guðrún Margrét Guðjónsdóttir,
Kleppsspítalanum, Dvergabakka 26,
sími 83208.
Þorbjörg Friðriksdóttir, HSI,
Mjóuhlíð 12, sími 20945.
Guðrún Eygló Guðmundsdóttir,
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur,
Bogahlíð 15, sími 36609.
Með tillögur um hjúkrunarkonur í
stjórn og nefndir ber að snúa sér til
nefndanefndar fyrir 15. marz n.k.
Athygli skal vakin á því að skv.
17. gr. félagslaga skal boða til aðal-
fundar með minnst þriggja vikna
fyrirvara.
30 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS