Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Page 43

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Page 43
IUX.VSÓk.MII: Mikilvægasta rannsóknin er röntgenmyndataka af maga til þess að sjá, hvar sárið er, og athuga tæmingartíma magans. Þegar tekin er röntgen- mynd af maga, þarf sjúklingur að vera fastandi frá kl. 22 kvöldið áður. Fyrir kemur, að sjúklingur er magaskolaður, en sé um tæmingartregðu að ræða, er það alltaf gert. Þá er oft gert histamínpróf til þess að athuga sýruinnihald magans. Sé um of mikla sýru að ræða, bendir það til magasárs. Magasár, sem myndast af völdum magasafans, eru yfirleitt góðkynja. En ef í ljós kem- ur lítið sýrumagn eða jafnvel ekkert, gæti það bent til þess, að um krabba- mein væri að ræða. Blóðrannsóknir eru ýmsar gerðar: hæmoglobin, hæmatokrit, sökk og talning hvítra blóðkorna eru alltaf gerðar, að öðru leyti geta þær verið breytilegar. Einnig er ætið gerð blóðflokkun, því að oft er hætta á maga- blæðingu. Þvagrannsóknir eru einnig gerðar: miðbunuþvag er sent í almenna rannsókn og microscopi. Stöku sinnum er mæld eðlisþyngd. LVF: Sjúklingum þessum eru gefin sýrueyðandi lyf, t. d. gelatum aluminium hydroxið. Einnig lyf, sem draga úr framleiðslu magasafans og því einnig saltsýrunnar. Þá getur reynzt nauðsynlegt að gefa þeim róandi lyf til þess að minnka hina andlegu spennu og draga úr kvíða. Stundum eru gefin lyf, sem draga úr krampasamdrætti í sléttum vöðv- um magans. Þau nefnast anticholinergisk lyf og draga úr áhrifum ósjálf- ráða taugakerfisins á slímhúð magans. Einnig eru þeim gefin væg hægða- lyf, t. d. liquid, paraffín eða hörfræ, en forðast ber hægðatöflur. Oftast eru gefin járnlyf í einhverri mynd. iiiiii;i:cu.\i:\it FYitin i'tskiiift: Sjúklingum er ráðlagt að hafa hægt um sig og forðast alla áreynslu. Þeim ber að lifa reglubundnu lífi. Læknir gefur ráðleggingar varðandi vinnu, hvort sjúklingar megi sinna því starfi, sem þeir hafa haft á hendi e. t. v. um margra ára skeið, eða verði heilsu sinnar vegna að skipta um atvinnu. Eigi sjúklingar að nota einhver lyf, eftir að heim kemur, þurfa þeir að fá skýr og góð fyrirmæii um notkun þeirra. Þeim er ráðlagt að borða þann mat, sem þeim verður bezt af, en forðast allan sterkan mat og drykki. Jafnframt er þeim ráðlagt að hafa stutt milli máltíða og gefa sér góðan tíma til að borða. Forðast ber reykingar. Unnið af: Ölmu Birgisdóttur, Eygló Þóru Guðmundsdóttur, Guðnýju Bjarnadóttur í starfshópi F (F-holli). Ofanrituð grein er sýnishorn af verkefnum þeim, sem blánemum er ætlað að vinna að, að loknu námi á lyfjadeild hinni fyrri. TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 33

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.