Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.1996, Qupperneq 28
Spurt & svarað
Á opnum fundi um Tímarit hjúkrunar-
frœðinga komu fram óskir um að fá svör
við ýmsum hagnýtum atriðum varðandi
starf hjúkrunarfrœðinga. Eftirfarandi
spurning komfram áfundinum og var
leitað eftir svari við henni. Ef dhugi er
fyrir hendi -og fleiri spurningar berast,
símleiðis eða bréfleiðis- getur þetta orðið
fastur liður í blaðinu.
Barn á brjósti þyngist
ekki?
Hvað ráðleggur hjúkrunarl'ræðingur að
gefa þegar barn þyngist ekki hjá móður
sem er með það á brjósti?
Svar:
Ef barn er eingöngu á brjósti og gengið
er út frá því að það sé heilbrigt en það
þyngist ekki milli vitjana hjúkrunar-
fræðings á fyrstu mánuðunum, er rétt að
kann fyrst vilja foreldranna. Er móðirin
lilbúin til að leggja barnið oftar á brjóst
og faðirinn að veita lienni þann stuðning
sem með þarf? Með því að leggja barnið
á brjóst á u.þ.b. 2ja klst. fresti yfir
daginn í 2-3 sólarhringa eykst mjólkin
yfirleitt og barnið fer aftur að þyngjast.
Ef þessi leið er valin þarf að veita
foreldrum góða fræðslu og stuðning og
koma í vitjanir á 2ja-3ja daga fresti.
Ef barnið þyngist ekki og er farið að
„síga niður“ á vaxtalínuriti þrátt fyrir að
móðirin hafi reynt að auka mjólkina, þarf
að gæta að því að barnið líði ekki skort
og fer þá eflir aldri barnsins hvaða ábót
er gefin. Satt að segja er erfitt að gefa
einhlítt svar við þessari spurningu því
margir þættir geta þarna haft áhrif. Til
dæmis, hve lengi hefur bamið ekki
þyngst og hvernig lítur vaxtalínurit þess
út, þ.e. bera saman lengd og þyngd.
Hvað foreldrarnir vilja gera -og ef þeir
vilja reyna að hafa barnið eingöngu á
brjósti, er þá búið að þrautreyna allt til
að auka mjólkina án þess að barnið líði
skort, áður en ábótargjöf er reynd? Ef
foreldrar eru ósáttir við að þurfa að gefa
barninu ábót er rétl að minna á að það er
hægt að gefa ábót í nokkum tíma og
þegar barnið er farið að þyngjast og taka
betur við brjóstinu, má reyna að draga
smátt og smátt úr ábótinni. Aðrir eru
sáttir við að gefa ábót og það er liægt að
halda brjóstagjöf lengi áfram með ábót.
Svona er það nú með brjóstagjöfina
eins og svo margt annað í þessu lífi, það
er liægt að fara margar leiðir. Það er bara
spurning um að velja það sem hentar
best hverju sinni. Hlutverk hjúkmnar-
fræðings í tilfelli sem þessu er að benda
skjólstæðingnum á leiðir og svo er það
hans að velja en þó verður öryggi og
heilsa barnsins alltaf að koma fyrst.
Hjördís Guðbjörnsdóttir hjúkrunarfrœðingur.
Hjúknunapvöpur
Vissir þú að Lyfjaverslun Islands hefur fjölbreytt úrval af hjúkrunarvörum?
Eigum yfir 500 vörunúmer á lager. Lyfjaverslun Islands, vörugæði og lágt verð í þágu okkar allra.
LYFJAVERSLUN ÍSLANDS H F
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2. thl. 72. árg. 1996