Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.1996, Síða 43

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.1996, Síða 43
Starfsmenntunar sjóður Nú hefur starfsmenntunarsjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga starfað í tæp tvö ár. Komin er reynsla á starfsemi sjóðsins og tími til að endurmeta hluti. Asókn hjúkrunarfræðinga í sjóðinn er alltaf að aukast sem sést á því að á árinu 1995 sóttu 434 hjúkrunarfræðingar um styrk til sjóðsins en árið 1991 sóttu 173 hjúkrunarfræðingar um í starfs- menntunarsjóð HFÍ. Þrátt fyrir þessa auknu ásókn í sjóðinn hefur hann ekki rýmað og frekar safnað fé. Fésöfnun er ekki tilgangur sjóðsins og því ákvað stjórn sjóðsins á fundi sínum 9. apríl s.l. að liækka hámarksfjárhæð þá sem hægt er að fá úr sjóðnum úr krónum 15.000 í krónur 18.000 frá og með næstu úthlut- un í júní n.k. Er það von stjómarinnar að við þessa hækkun taki fé sjóðsins að rýrna. Hámarksfjárhæðin verður síðan endurskoðuð reglulega í framtíðinni. Talsvert hefur verið um það að hjúkmnarfræðingar séu að sækja um styrk úr sjóðnum fyrir kostnaði við endurmenntun sem átti sér stað fyrir mörgum mánuðum eða jafnvel ámm. Stjórn sjóðsins fannst ekki að honum bæri að greiða fyrir endurmenntun sem átti sér stað áður en hann tók til starfa. Jafnframt væri óeðlilegt að styrkja mjög gömul verkefni því tilgangur sjóðsins er Virgina Henderson er látin Einn ástsælasti hjúkmnarfræðingur heims, Virginia Henderson, er látin 98 ára að aldri. Hún lést þann 19. mars sl. á heimili sínu í New Haven í Connecticut í Bandaríkjunum. Hjúkmnarfræðingar um allan heim hafa litið á Virginiu sem fyrirmynd og eftir hana liggja tvær bækur um hjúkmnarfræði sem hafa verið í föstu sæti á bóksölulistum um allan heim. Þetta eru bækurnar „Basic Principles of Nursing Care“ og „Nature of Nursing“. Fyrri bókin var fyrst gefin út á sjöunda áratugnum og hefur síðan verið þýdd og gefin út á um 30 tungumálum. Öll hennar störf hafa verið í þágu framfara í hjúkmn og árið 1985 varð hún fyrst til að hljóta hin virtu Christiane Reimann að stuðla að því að hjúkrunarfræðingar afli sér nýrrar þekkingar í hjúkmnar- fræði. Því ákvað stjórnin á síðasta ári að styrkja ekki verkefni sem em eldri en níu mánaða. Er þá miðað við níu mánuði frá lokadegi á skilafresti á umsóknum fyrir hverja úthlutun. Um mitt síðasta ár var lokið við gerð nýs umsóknareyðu- blaðs fyrir sjóðinn. Vom eintök af því send á alla vinnustaði hjúkrunar- fræðinga. Á nýja blaðinu er farið fram á að umsækjandi rökstyðji umsókn sína ef vafamál er hvort hún uppfylli skilyrði 2. greinar reglna sjóðsins. Talsvert emm að umsækjendur geri það ekki og tefur það afgreiðslu umsóknarinnar jafnvel fram að næstu úthlutun á eftir. Umsækjendur em því hvattir til að senda skriflegan rökstuðning með umsókninni ef vafi er á að umsóknin uppfylli þetta skilyrði. Skrifstofa Félags íslenskra hjúkmnar- fræðinga sér um að taka á móti umsókn- um í sjóðinn og um afgreiðslu styrkja. Þangað er hægt að snúa sér með almennar spurningar varðandi sjóðinn. Einnig má snúa sér til formanns stjórnar sjóðsins, undirritaðrar, bæði heima og á vinnustað. Hildur Einarsdóttirformaður stjórnar starfsmenntunarsjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Frá Vesturlandsdeild Á aðalfundi Vesturlandsdeildar sem haldinn var þann 30. janúar sl. var kosin ný stjórn og hana skipa: Halldóra H. Arnardóttir, formaður Elín Sigurbjömsdóttir, ritari Vigdís Eyjólfsdóttir, gjaldkeri Ragnheiður Gunnarsdóttir, meðstjórnandi. Frá Norðausturlandsdeild Á aðalfundi Norðausturlandsdeildar FÍH var eftirfarandi stjórn skipuð: Árún Sigurðardóttir, formaður Helga Erlingsdóttir Sigfríður Héðinsdóttir Kristrún Ríkarðsdóttir Margrét Þorsteinsdóttir Hómfríður Kristjánsdóttir varamaður. FRÉTTIR Frá Skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Viðtalstímar Vigdísar Jónsdóttur hagfræðings eru kl. 9-12 þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Sesselju Guðmundsdóttur hjúkrunarfræðings em kl. 9-12 mánudaga og þriðjudaga. Vísindasjóður Um miðjan mars sl. voru greiðslur úr A-hluta vísinda- sjóðs félagsins lagðar beint inn á bankareikning félagsmanna. Þeir sem vom í fullu starfi árið 1995 fengu 16.909 krónur. Aðrir fengu greitt miðað við starfshlulfall. Þeir sem ekki fengu greitt samkvæmt því sem hér greinir eru beðnir að snúa sér til félagsins. 10 AR FRA ÚTSKRIFT Hjúkrunarfræðingar útskrifaðir 1986 frá HÍ Höldum upp á 10 ára afmælið okkar 31. maí n.k. Þeir sem vilja taka þátt í afmælinu hafi samband við Sesselju Guðmundsdóttur í síma 568-7575 eða Guðrúnu Bjarnadóttur síma 554- 6690. LOKAÐ-LOKAÐ Skrifstofa Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður lokuð vegna sumarleyfa dagana 15. júlí - 6. ágúst. TtMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2 . tbl. 72. árg. 1996

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.