Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1997, Side 59
Flutnmgur lífeyrisréttinda
hj nkrunarkennar a
við Sjúkraliðaskóla íslands, Hjúknuiarskóla íslands og
Nýja hjúknmarskólans til Lífeyrissjóðs hjúknmarfræðmga
Félag íslenskra hjúkrunar-
fræðinga hefur á undanförn-
um mánuðum unnið að því að fá
áunnin lífeyrisréttindi hjúkrun-
arfræðinga, sem sinntu kennslu-
störfum við Sjúkraliðaskóla Is-
lands, Hjúkrunarskóla íslands
og Nýja hjúkrunarskólann og
greiddu iðgjöld sín til Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins (LSR),
flutt yfir til Lífeyrissjóðs hjúkr-
unarfræðinga (LH) ef þeir ósk-
uðu þess. Var erindið rekið fyr-
ir hönd nokkurra fyrrverandi
kennara í þessum skólum, þar
sem þeir bentu á að hjúkrunar-
kennurum við framangreinda
skóla hafði ýmist verið gert skylt
að greiða iðgjöld sín til LSR eða
til LH. Athugun fjármálaráðu-
neytisins, sem fram fór sl. haust
staðfesti þetta.
Á fundi stjórnar LH 17. des-
ember sl. var ákveðið að óska
eftir viðræðum við stjórn Lífeyr-
issjóðs starfsmanna ríkisins um
Kynningarfundir um lífeyrissjóðsmál hafa verið haldnir víðsvegar uin
landið og verið vel sóttir.
Fundarmenn á ýmsum aldri á
kynningarfundi uin lífeyrismál.
leiðréttingu vegna mismunandi
sjóðsaðildar kennara við framan-
greinda skóla. A fundi stjórnar
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis-
ins, sem haldinn var 26. mars
1997, var síðan samþykkt að
færa réttindi þeirra hjúkrunar-
fræðinga, er störfuðu við kennslu
hjá Hjúkrunarskóla Islands, Nýja
hjúkrunarskólanum og Sjúkra-
hðaskólanum, úr LSR í LH.
Félag íslenskra hjúkrunar-
fræðinga bendir fyrrverandi
kennurum við framangreinda
skóla að leita til Lífeyrissjóðs
hjúkrunarfræðinga óski þeir að
flytja réttindi sín úr LSR til LH.
Lífeyrismál hjÚLknmarfræðinga
- kyimingarfimdir
Eins og áður hefur verið greint frá í þessu tímariti
urðu miklar breytingar á lífeyrismálum hjúkrunar-
fræðinga um síðustu áramót. Lífeyrissjóður hjúkr-
unarfræðinga sendi öllum hjúkrunarfræðingum
bækling í mars sl. þar sem farið var nákvæmlega
yfir þessar breytingar. Fjölmargir kynningarfundir
liafa verið haldnir um þessi mál og nú þegar hafa
á fimmta hundrað hjúkrunarfræðingar sótt kynn-
ingarfundi um lífeyrismál hjúkrunarfræðinga.
Þegar þetta er skrifað á enn eftir að halda nokkra
fundi, t.d. á Selfossi, ísafirði og í Vestmannaeyjum.
Fulltrúar félagsins og lífeyrissjóðsins eru einnig
reiðubúnir til að mæta á vinnustaði með kynn-
ingarfundi. Þeir sem áhuga hafa á því hafi sam-
band við félagið.
Nú þurfa hjúkrunarfræðingar að taka ákvörðun
f. 1. desember nk. um hvort þeir vilja halda áfram
að greiða til Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga eða til
A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Því
eru allir hjúkrunarfræðingar hvattir til að mæta á
fundi og kynna sér vel efni kynningarbæklingsins
um lífeyrisréttindi hjúkrunarfræðinga. VJ
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2.TBL. 73.ÁRG. 1997
123