Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Qupperneq 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Qupperneq 25
uAÍÁ'bfcúmle^ weð-ferð uið p-sorU.sí.s - Göngudeíld Bláa lónsins heímsótt Það hefur ekki farið mikið fyrir tilvist göngudeildar Biáa iónsins þó fjölmargir sjúklingar, sem glíma við húðsjúk- dóma, fái þar verulega bót meina sinna. Lónið varð, sem kunnugt er, til fyrir algjöra tilviljun er heitu vatni, sem mynd- aðist vegna hitaskipta við háhitasvæði við Svartsengi, var veitt út á hraunbreiðurnar í kring. Gert var ráð fyrir því að vatnið rynni niður í hraunið en það safnaðist hins vegar fyrir því að leðja, sem myndaðist, lokaði sprungum í hrauninu og vatnið myndaði lón sem fer stækkandi með árunum. Lækningamáttur lónsins uppgötvaðist er menn fóru að baða sig í því, psoriasissjúklingar tóku eftir því að þeir fengu mikla bót meina sinna við að baða sig þar reglulega. Ríkisstjórnin skipaði nefnd 1986 sem beitti sér fyrir rann- sóknum á efnasamsetningu, lækningamætti og lífríki lóns- ins. Niðurstöður frumkönnunar á lækningamætti Bláa lónsins voru birtar 1987. 1992-1993 fóru fram viðameiri rannsóknir sem sýndu að regluleg böð í lóninu væru mjög áhrifarík meðferð gegn psoriasis. Eftir að heilbrigðisráðu- neytið hafði formlega viðurkennt meðferðina var göngu- deildin opnuð og greiðir Tryggingastofnun ríkisins hlut íslenskra sjúklinga sem fara í meðferð þar. Rannsóknir hafa sýnt að í lóninu er að finna bakteríu sem hlotið hefur nafnið „silicibacter lacuscaerulensis“. Það hefur verið þýtt lauslega sem kísilbakterían úr lóninu bláa. Baktería þessi er í miklu magni í lóninu en hefur hvergi fundist annars staðar og kann að vera orsök lækninga- Myndirnar eru teknar fyrir og eftir meðferð. máttar lónsins. En það er einnig athyglisvert við lífríki lóns- ins að bakteríur sem kallaðar hafa verið mannabakteríur, svo sem saurgerlar, þrífast ekki í vatninu og má því segja að það sé sjálfhreinsandi. Göngudeildin var opnuð 1. janúar 1994. Frá þeim tíma hafa fjölmargir íslendingar fengið meðferð við húðsjúk- dómum, einkum þó psoriasis. Á síðasta ári var íslenskum sjúkiingum veitt meðferð við húðsjúkdómum í 4.285 skipti að sögn Sólveigar Bjarkar Gránz hjúkrunarforstjóra, en árið áður enn oftar eða í 4.935 skipti. Meðferð veitt Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 76. árg. 2000 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.