Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Blaðsíða 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Blaðsíða 39
Á þeim stöðum, þar sem aðeins einn hjúkrunarfræðingur er í héraði án læknis, reynir meira á sjálfstæði hans, t.d. að taka á móti sjúklingum og ákveða hvort þarf að fá ráð hjá lækni, vísa áfram eða sinna þeim heima í héraði. Sameining heilbrigðisstofnana á Austurlandi hefur tekist vel og þess vegna má gera ráð fyrir að hún eigi eftir að skila sér í betri þjónustu til íbúa fjórðungsins. F.h. svæðisdeildarinnar Helga Sæunn Sveinbjörnsdóttir, verkefnisstjóri í hjúkrun á Heilbrigðisstofnun Austurlands Deíld Vestmannaeyja Fyrsta svæðisdeildin Fyrir rúmum 30 árum höfðu hjúkrunarfræðingar, eða hjúkrunarkonur í þá daga, í Vestmannaeyjum áhuga á því að stofna með sér fagfélag, aðalhvatamaður þess var Aðalheiður Steina Schewing. Landfræðileg staða var á þann veg að ekki var auðvelt að sækja fundi til Reykja- víkur. Haft var samband við frú Maríu Pétursdóttur, þáver- andi formann H.Í., og tók hún erindinu vel og var hún svo vinsamleg að mæta á stofnfundinn. Fundurinn var settur í Akóges-húsinu 10. júlí 1967 klukkan 20:30. Mættar voru 13 af 14 hjúkrunarkonum í bænum. Steina Schewing ávarpaði fundinn og frú María flutti erindi og fagnaði mjög þessari framtakssemi Vestmannaeyjakvenna og flutti þeim árnaðaróskir. Síðan var gengið til kosninga, lög félagsins sett fram og markmið deildarinnar. Það var aðallega fólgið í því að tengja saman allar hjúkrunarkonur á staðnum og fá þær til að vinna að sameiginlegum áhugamálum og stuðla að bættum heilbrigðismálum bæjarins. Fyrsta verkefni deildarinnar var að fara þess á leit við leitarstöð Krabba- meinsfélagsins að senda hingað leiðangur, starfshóp, til að rannsaka konur í Vestmannaeyjum með tilliti til krabba- meins í leghálsi. Voru allar félagskonur fúsar að leggja málinu lið og gefa vinnu sína og aðstoð ef til kæmi. Er skemmst frá því að segja að þessi þjónusta komst á og allar götur síðan hafa bæjarbúar notið þessarar þjónustu. Til marks um þann áhuga og samheldni, sem deildin naut, voru haldnir fundir í Reykjavík eftir að gos hófst í Eyjum 1973. Alls voru haldnir 3 fundir að Þingholtsstræti 30 í Reykjavík. Frá stofnun deildarinnar til dagsins í dag hefur hún verið í góðum tengslum og starfað innan vébanda H.í. og síðari ár innan F.í.h. Félagsmenn eru nú 28 talsins, haldnir eru a.m.k. 5 félagsfundir og 7-8 stjórnarfundir á ári. Starf félagsins er mikilvægt. Mikil áhersla hefur verið lögð á að efla fræðilega þekkingu meðal hjúkrunarfræðinga í heimabyggð með námskeiðum og fræðslu, möguleikar okkar til endur- og viðbótarmenntunar eru að aukast með meiri tækni, m.a. í fjarskiptabúnaði, og margir læknar og hjúkrunarfræðingar hafa lagt okkur lið með fyrirlestrum og námskeiðum. Hjúkrunarþjónusta í dreifbýli þarf að vera víðtæk og fjöl- breytt og uppfylla ólíkar þarfir samfélagsins. Þekking fagfólks, ný tækni og nýjungar í hjúkrun eru okkur því lífsnauðsyn svo allir landsmenn eigi möguleika á að búa við bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. F.h. deildar Vestmannaeyja Selma Guðjónsdóttir og Eydís Ósk Sigurðardóttir i'ommn svœðisAúiÁA JÍ000 Deild Vestmannaeyja vestmannaeyjar@hjukrun.is Eydís Ósk Sigurðardóttir eydis@eyjar.is Heiðarvegi 11, 900 Vestmannaeyjum hs. 481 3252, vs. 481 1955 Deild Norðurlands vestra nordvesturland@hjukrun.is Elín H. Sæmundsdóttir joel@simnet.is Raftahlíð 65, 550 Sauðárkróki hs. 453 5319, vs. 455 4000 Deild Austurlands austurland@hjukrun.is Sigrún Guðjónsdóttir sigridur@fsn.is Nesbakka 14, 740 Neskaupstað hs. 477 1395, myndsími 477 1993, vs. 477 1993 Deild Suðurnesja sudurnes@hjukrun.is Þórunn Agnes Einarsdóttir gilbert@simnet.is Tjarnargötu 41,230 Keflavík hs. 421 3793, vs. 422 0500 Deild Vestfjarða vestfirdir@hjukrun.is Sigrún Gerða Gísladóttir Heilbrigðisstofnun ísafjarðarbæjar, 400 ísafirði s. 456 7770, vs. sjúkrah. 456 7287 Deild Vesturlands vesturiand@hjukrun.is Kristjana Kristjánsdóttir Esjuvöllum 17, 300 Akranesi, s. 456 7287 Deild Norðurlands eystra nordausturiand@hjukrun.is Kristín Sólveig Bjarnadóttir kristsol@mmedia.is Sigluvík, Svalbarðsstr., 601 Akureyri vs. 463 0141, hs. 462 5136, GSM 896 0412 Deild Suðurlands suduriand@hjukrun.is Aðalheiður Dagmar Matthíasdóttir adaimat@centrum.is Fossöldu 5, 850 Hellu hs. 487 5414, vs. 487 5993 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 76. árg. 2000 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.